Sunday, May 27, 2012

Hvítasunnan.

Hér er um 25 stiga hiti. Yndislegt veður og blómin spretta svo vel að maður sér daglega eitthvað nýtt springa út. Bóndarósirnar mínar eru komnar með sín fallegu blóm. Og Liljurnar koma daglega með fleiri klukkulaga blóm. Auðvitað vex illgresið líka vel. Var í törn að rífa það upp á fö. og í gær. Og fékk m.a.s. sólbruna á axlirnar og handleggina. Svo nú man ég eftir að bera á mig krem þegar ég fer út.
Við gömlu erum í fríi í 4 daga. Ótrúlegur maímánuður. 4 svona langar helgar og veðrið þetta frábært. Klaus sér um að slá grasið, og ég að raka. Og svo er setið úti og horft á blóm og bláan himinn.

Í dag kom Frau Kühle með Kiki, Katrinu og Miu litlu. Þau fengu lánaðan bílinn minn í gær, og skiluðu í morgun. Kiki fékk svo lánað hjólið hans Klaus, sem hann notar ekki eftir að ég keypti hjól af Hildegard. Og þau mega hafa það þangað til Þorgeður kemur. Við erum  með 4 hjól og þurfum bara að fá eitt laáað. Ef þau vilja hjóla. :)

Svo ókum við til Celle til  Birthe Sass. Hún flýgur til Oslo á fim. og kvíður fyrir að fljúga ein. En hún ætti nú ekki að vera í vandræðum með það. Foreldrar hennar eru í Hollandi þar sem þau eiga báta. Við sátum úti á æðislegu veröndinni þeirra,sem pabbinn smíðaði. Drukkum kaffi og borðuðum köku. Ókum  heim í gegn um þorpin. Keyptum Aspas og erum búin að borða hann og snitsel og kartöflur. Klaus sá að mestu um eldamennskuna.

Ég er komin í nýjan sumarkjól, sem maðurinn minn valdi í lista. Og hann er nýbúinn að gefa mér háhæla skó. 7 cm er ekki það, sem ég er vön að ganga í. En þetta gengur. Vantar bara tækifæri til að  vera í þessum skóm. T.d. hefði verið tilvalið að nota þá í dag í fermingu Helgu Margrétar og í útskrift Ástu í gær. En eins og vanalega missti ég af því.
Erum búin að eyða miklu og kominn tími að spara. Hehe.

Börnin eru úti í botlanganum að leika sér. Eins og í gamla daga þegar þau voru upp á sitt besta, Margrét, Doreen og Joy. Ótrúlegt að þessi tími hafi liðið svona fljótt.
Margrét er hress í Norge. Alltaf nóg að gera og ekki minnkar það á næstunni. Birthe verður í 2 vikur. Svo er kóramót. Styttist í lok dvalarinnar.
Nú er Klaus mættur til að setja inn myndir. Ótrúklegt hvað hann hefur þonlinmæði með þassari konu sinni--haha. Bestu kveðjur.

6 comments:

Anonymous said...

Já það hefði verið gaman að hafa þig nær þessa helgi, búið að vera mjög gaman. Skemmtilegt að eyða tíma með Arnhildi í gær og í dag :) Kv. Malla

Anonymous said...

Sumarið heldur betur komið hjá ykkur. Hér er fallegasta veður í dag þó að við séum nú ekki með 20°C eins og fyrir norðan! Ég get rétt ímyndað mér hvað garðurinn ykkar er fallegur núna með bóndarósum í blóma, yndislegt. Er ekki tilvalið að klæða sig upp fyrir þær og Klaus, í kjól og fína skó!
Hafið það sem allra best, kveðjur frá okkur hér, Svanhildur og co.

Anonymous said...

Gaman að ég hef ekki heyrt í þér í nokkra daga. Þá veit ég ekki allt sem stendur á blogginu þínu :)
Knús Margrét

Anonymous said...

kvitti kvitt... það hefði verið extra gaman að knúsa þig í veislum um helgina, en allavegana gott að ég náði að knúsa elsku Arnhildi þína, fulltrúi þinn á svæðinu :o)
Margrét er að hressast eftir gubbupestina, vonandi er þetta gengið yfir :)
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Gaman að fólki finnst ég svona gífurlega skemmtileg híhíhí, og gaman hvað ég skemmti mér vel og það var æðislegt að hitta alla ættina fyrir sunnan. Hefði svo viljað hafa þig með-sérstaklega í veislu undirbúningi híhí. knús, kram og lol þín Arnhildur

Anonymous said...

Hér var gott veður í dag, og nágrannarnir komu í kaffi á pallinn. Annars allt gott að fre´tta. Kv affí