Og enn er liðinn langur tími frá því ég skrifaði síðast. Það er svo mikið að gera í garðinum á vorin. Maður kemst ekki yfir helminginn. Og svo vex illgresið daglega og ekki hefur maður undan að rífa það upp. En það er yndislegt að geta verið með puttana í moldinni og verið úti. Svo auðvitað situr margt inni á hakanum.
Þessu til viðbótar var ég dugleg að koma mér til læknis. Fór til kvennsjúkdómalæknisins, og fékk að vita að ekki slippi ég við annan uppskurð út af siginu. Ekki til að hlakka til. Þarf að fara til læknisins í Gifhorn, sem gæti gert þetta og fá betri upplýsingar.
Svo var ég hjá Heilpraktiker í BS. Hjá bæklunarlækni í Hannover. Hann tók röntgenmynd af hnakkanum á mér. Er jú með þennan hnakka, sem fyrgir dönsku konunum. Fékk uppáskrifaða 6 tíma í sjúkarþjálfun. Og svo hnykkti hann hausnum hressilega til. Á reyndar eftir að fara til hans Geissler, nuddara og sjúkraþjálfara, og fá uppgefið hvenær hann geti tekið mig.
Eins fór ég til háls, nef og eyrnalæknis. Hann skóf úr eyrunum og ég finn ekki lengur til í þeim. Hér er til eyrnasprey, sem er víst gott. Betra en að ýta þessu innar í eyrun, hehe.
Endaði törnina með ferð til BS til að láta skoða skjaldkirtilinn. Læknirinn var með afbrigðum hress. Og sagði að allt liti vel út og ekki þörf á uppskurði í bili. Á að koma í árlegt eftirlit. Það er gott ef hnútarnir eru til friðs.
Notaði mér ferðirnar í bæinn til að kíkja í búðir. Hitti Ramonu í Hannover. Við sátum lengi á kaffihúsi í E.A.Galleria, sem er verslunarmiðstöð við lestarstöðina.
Í BS rölti ég um. Er að reyna að hætta að splæsa á mig ís og kaffi. Við erum búin að eyða svo miklu og nú er eftir sumarfríið. Og allt, sem því fylgir.
En mig vantaði topp, og bikiní, og fann bæði í BS í gær.
Klaus er orðinn galinn. Hann vill bara að ég kaupi og kaupi á mig föt. Hann neyddi mig sko til að kaupa háhæla skó. Með 7 cm hæl. Rauðir rússskinnsskór. Flottir og ég reyndar get staðið á þeim, haha.
Svo pantaði ég buxur, BH, kjól og blússu, en veit ekki hvort allt er til ,eða uppselt. Það var einhver heimskur gaur, sem tók við pöntuninni.
Við erum búin að panta nýja sturtuveggi. Og svo var miðstöðin biluð, og eitthvað tæki, sem er við sjónvarp Margrétar. Já, svona fer auðurinn. :)
Nýlega fór ég til BS og hitti gömlu vinina okkar, þá Heinz-Günther Bär og Bernt Ritter. Klaus kom svo til okkar og við áttum voða notalega stund á kaffihúsi í gamla hverfinu, Magniviertel. Komst að því að það eru mörg ár síðan ég hef komið þangað. Á minningar um okkur Þórdísi þarna.
Á eftir hittum við Danielu, frænku Klaus. Svo ég hef bara verið dugleg að vera á ferðinni og hitta fólk.
Svo fer ég á kóræfingar á fim.kvöldum. Við sungum nýlega í kirkjunni. Vorum nú ekki upp á það besta í öllum lögunum, en allt í lagi. Ætlaði svo í hjóltúr með Renate G., sem stjórnar kórnum, á fö. En þá var ég komin með svo mikið kvef að ég sleppti því. Ergilegt að eiga langa helgi og vera slöpp.
Við erum búin að fá þvílík frí undanfarið að það er bara yndislegt. 1.maí., uppstigningardagur, og svo kemur Hvítasunnan. Fjagra daga helgi í hvert skiftið. Klaus var líka með "brúardag", ( frí hjá mörgum án þess að það sé tekið af frídögunum.) en tekur sér frí á þr. eftr Hvítasunnu. Til að vera líka í 4daga fríi.
Við erum búin að koma ýmsu í verk í grðinum. Klaus gekk alveg frá þessari frægu rafmagnsleiðslu. Hann hreinsaði tjörnina. Það þarf að ausa úr henni skítuga vatninu og henda laufinu og jukkinu. Svo setti hann grind á vegginn við eldhúsið og nú vex þar klifurjurt. Sólhlífin komin á sinn stað og notuð mikið undanfarið. Og búið að slá grasið í fleiri skifti.
Það var geðveik vinna í skólanum fyrir mæðradaginn og Himmelfahrt--Uppstigningardag. Hann er kallaður pabbadagur. Við létum krakkana teikna á púslhjarta og svo útbjó ég myndir af þeim, sem við límdum í ramma, sem við þurftum að líma saman fyrst. Héldum að krakkarnir gætu það, en límið hélt svo illa að við þurftum að nota límbyssu og gera allt sjálfar! 60 börn, 60 myndir og svo allar þær, sem ég henti. Tók örugglega yfir 200 myndir. Já, nóg að gera.
Mér var boðið í kynningu á frönskum snyrtivörum í öðru apótekinu hérna. Lét náttúrlega plata mig í að kaupa mér rándýrar vörur. En hef verið dugleg að nota þetta og ekki sleppt neinum degi úr. Enda eins gott þegar maður spælsir á sig svona.
Tók eina törn með Frau Kühle í tiltekt. Fórum í bókahillur í vinnuherberginu, og hún henti slatta. Annars hefur hún ekki haft tima í neitt undanfarið. En þetta bíður okkar og við verðum að dunda við þetta næstu mánuðina. Eða árin :)
Pabbi og mamma loks búin að læra á skæpið. Svo við notum okkur það. Er nýbúin að hringja í Arnhildi. Og svo er skæpað við Möggu í Norge oft í viku. Gott hljóð í öllum. Veðrið í Norge er fínt. Ekki reyndar 30 stiga hiti eins og hér í dag, en mín vegna má það vera minna og jafnara.
Er farin að hlakka til að fá Þorgerði og hennar lið. Veit ekki hvenær þau koma, en vonandi sem fyrst og verði sem lengst. Vesen á tölvumálum þar á bæ, og Þorgerður fer etv. til Kristinar og skæpar við mig. Svona til að við getum nú skipulagt eitthvað, við Viktoría frænka.--
Ferming framundan. Útskrift. Ferð hjá Maddý til útlanda. Diddi og Sigyn að koma frá Sikiley, FAF nýkominn frá útlöndum, og svona má víst lengi telja. En allt of fáir koma til mín!!!
Það fer að lagast :)
Jæja, best að hætta og fara að lesa um gamlingjann, sem skreið út um gluggann. Bókin er frábærlega fyndin. Þurr og látlaus húmor. En hittir sko í botn. Ekkert í sjónvarpinu þar sem þessi fj--- fótbolti sat fyrir þáttaröðinni, sem ég horfi á á þriðjudögum.
Er frekar þreytt eftiir daginn. Tók alla neðri hæðina í gegn. það var allt orðið svo ógeðslegt þar. Enda var ég ekki beint mikið heima undanfarið og svo tók kvefið við. Og þá er efri hæðin eftir--og illgresið--og 15 skyrtur--og og og---- haha -svona er tilveran.
Bestu kveðjur til allra. Hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Greinilega nóg að gera. Það er eins hér, á föstudag fer ég í útskrift hjá Karlottu Gilladóttur og svo beint þaðan í 2x40 ára afmæli hjá Siggu Dís og Sigga, á laugardaginn er það útskrift Ástu og svo á sunnudaginn ferming HM :) Já nóg að gera. kv. Malla
og núna er líka komin hitabylgja í Noregi :)
Margrét
Gaman að skoða þetta. Nóg um að vera. Maður er rétt að ná sér niður eftir ferðina út og ég hef verið að ganga frá einhverjum lausum endum. Sigyn aftur á móti alveg á milljón að funda og plana og ..... Ástuútskrift og 2 fermingar um helgina svo okkur ætti ekki að leiðast. Förum samt austur seinnipartinn þó við þurfum að koma snemma í bæinn við Eiríkur Hákon, söngvari við útskriftina í Hörpu. Við gengum alveg helling þarna úti, ég mældi helstu leiðir sem við fórum og þær einar voru rúmlega 100 km. Svo hef ég hjólar mikið eftir að heim kom, enda keppnin "hjólað í vinnuna" í gangi. Vonandi þýðir þetta einhverja léttingu sem gott svigrúm er fyrir. Annars bið ég bara að heilsa. Bk Diddi
Post a Comment