Monday, June 11, 2012

Lífið er indælt og veðrið eftir því.

Þá eru komnar rúmar 3 vkur frá síðasta bloggi. Hitt og þetta búið að gerast. Það besta er að við gengum endanlega frá flugi fyrir KD og Arnhildi. Þær fljúga til Berlinar í staðinn fyrir Oslo. Komast báðar á tæplega 400 evrur aðra leið. En til Oslo væri það a.m.k.  600 fyrir þær. Svo þær aka þá með okkur til Norge og til baka. KD fannst ekki slæmt að koma fyrst til okkar. Komumst við þá í bæinn var hennar fyrsta spurning--. Og auðvitað verður farið til BS fyrsta daginn, held nú það.--
Við eigum svo eftir að panta lestarferð frá Berlin. Það eru rosa góð tilboð í gangi. T.d. eitt á undir 50 evrur fyrir þær báðar aðra leiðina. Þær koma 10.7. Eru fullfærar um að redda sér í lest hingað.
Og allir hlakka mikið til.
Líklega leggjum við svo af stað til Malmö þann 19.7. Gistum þar í "okkar gamla hóteli"--hehe. Etv. komumst við af stað 18. Eftir hádegið. Eða fyrir hádegi þann 19.7.  Sjáum til. Og í Norge bíður Margrét eftir innrásinni. Líka spennt--held ég  :)

En áður en mæðgur mæta, koma Þorgerður og Gísli með yngri börnin.  Ég hlakka ekki lítið til að fá þau. Bíð eftir ferðaplaninu, og reyni sem mest að fá þau til að vera hérna sem lengst--haha. En þau vilja jú sjá eitthvað af suðrinu líka og eru að spá í þetta allt.

Í dag tók ég næstum allt úr fataskáp Margrétar og setti fötin í skáp á stigapallinum. Þetta eru nú mest föt, sem hún passar ekki í. Ætla að mála skápinn, en það verður ekki fyrr en í haust. En gott að vera með hann tóman þegar kemur lið  í heimsókn. Og tók til í minni kommóðu.
Auðvitað gistir Helga Margrét í rúmi nöfnu sinnar og spurning hvort Dagur verði á gólfinu hjá henni eða foreldrunum. Þau verða sko sett í brakandi hjónarúmið, og við Klaus verðum að venju í vinnuherberginu.
Kristín Dögg fær svo rúmið eftir Helgu M. Arnhildur verður að láta sér nægja að vera í tölvuherberginu--haha. Þar eru nefnilega stundum kongulær. KD fékk einu sinni eina á andlitið á sér í þessu herbergi. Og verður fegin að komast í hitt herbergið. 

Erum komin með nýja veggi í sturtunni okkar. Þvílíkur mundur. Hinir voru með þrískifta hurð,sem var sett saman með einhvejru drasli, sem ekki var hægt að þrífa. Og svo var rauf undir grindinni, sem fylltist af drullu. Ojbara. ----
Á fimmtudaginn koma tveir tveggja sæta sófar, sem við pöntuðum fyrir meira en 3 mánuðum. Já, það verður sko flott þegar gestirnir mæta  haha.

Hef reyndar miklar áhyggjur  af því að ég geti ekki gert eldhúsið hreint, og alla gluggana--. Er nefnilega í meira stuði að gera "óþarfa". Tók fataskápinn í holinu og kommóðuna þar í gegn . Og er að þvo alla trefla, húfur, vettlinga og klúta. Alveg að verða búin. sko mig.
Annars er það garðurinn, sem mestan tíma tekur. Fékk nýlega fullt af blómum gefins hjá bónda í bænum. Og líka hjá einni, sem vinnur með mér.  Tók sinn tíma að planta þessu niður. Alltaf nóg af illgresi og maurarnir að gera mann viltlausan. Keypti eitursprey og sprautaði á allar hrúgur, sem ég fann í grasinu. það sást vel hvar sandur kemur upp í hrúgu. Rótaði í sandinum--hehe--Affí hefði viljað vera með--og þeir skriðu  um og ég sprautaði á þá af kappi. Þeir bera þetta eitur í búið og vonandi drepast sem flestir. Hm hm--dýraavinur ?

Á sunnudaginn sungum við í kirkjunni í messu. Var ekki hrifin þegar eg sá hver predikaði.  Ótrúlega íhaldssamur karl, sem hefði nærri gert Margréti að trúleysingja ef hann hefði ekki hætt sem betur fór áður en hann var búinn að eyðileggja allan áhuga á kristni. --Við sungum eins og englar. Allt gekk vel og við fengum mikið hrós.  Fékk mér kaffi á eftir og spjallaði smá við hina og þessa.

Búin að fara tvisvar til Frau Kühle til að ráðast á bókahillur og sortera með henni. Hún tók svo skurk ein eftir það. Núna eru Kiki, Katrin og Mia litla hjá henni og verða í 2 vikur. Það gengur mjög vel. Aldrei þessu vant.

Er búin að fara í 5 skifti í sjúkraþjálfun og komst að þvi að ég geri sumar æfingarnr, sem ég lærði hjá honum í fyrra, bara alveg kolvitlaust. Sumir góðir.  Hehe. Ætla með myndavél á miðvikudaginn í siðasta skiftið og hann ætlar að mynda mig í réttum stellingum--erum við ekki klár  :)

Er reyndar með áhyggjur af þessu minnisleysi hjá mér. Það er skelfilegt hvað ég gleymi og ruglast í hlutunum.

Á morgun ætla ég að hitta Huldu, dóttur Dúdda og Beggu. Hún er í BS, en langar að fara til Hannover og ég skrepp þangað eftir vinnu með lestinni.Hef ekki séð Huldu eða systur hennar frá því þær fluttu úr sveitinni. Hvað ætli það séu mörg ár ? Við komumst í samband á Facebook. Hvað myndi ég gera án Snjáldurskinnu minnar :)

Margrét þrælhress. Mikið fjör hjá þeim Birthe. Hún flýgur svo heim á miðvikudaginn. Þær eru búnar að aka um, og skoða margt. Fóru þrisvar til Oslo. Margrét farin að aka hraðbrautirnar--eins gott að mamman var ekki með í fyrstu skiftin :)
Hún fer í lok júní í æfingabúðir hjá kórnum og það verður örugglega geðveikt gaman. Margir kórar mæta.

Ég fitna og þyngist og þyngist. Nenni ekki að hjóla og ganga. Og ekki heldur Klaus. Vona að Arnhildur og KD komi mérí gang þegar  þær mæta. Er að verða komin í 75 kíló eftir þessi 69 kíló  síðasta árið. Úff.
Ég gæti borðað og borðað allan daginn. Í fyrra hafði ég ekki matarlist. Svona er maður stundum skrítinn. Ýmist of eða van.
Jæja. Best að fá sér tesopa og setja tærnar upp í loft eftir erfiði dagsins :)
Hafið það gott og verið þakklát fyrir að vera Íslendingar--þó  að oft sé það erfitt----- : ---------
Oft finnst oss vort land / eins og helgrinda hjarn/ en hart er það aðeins/ sem móðir við barn./ Það agar oss strangt / með sín ísköldu él, / en á samt til blíðu./  Það meinar allt vel.

Ástarkveðjur   Áslaug Arnar.







7 comments:

Anonymous said...

Nóg að gera eins og venjulega. Nú er svo að taka á þessu með hjólin og labbið og klára nokkur kg.
Bk Diddi

Anonymous said...

Sumarið verður greinilega spennandi hjá ykkur :)
kv Kristín E.

Anonymous said...

Nóg að gera og frúin ánægð sé ég :) Hentu þér á hjólið mín kæra - þá kætistu enn meir. Kv. Malla frænka

Anonymous said...

Hér er þoka yfir firðinum en aldrei að vita nema sólin nái að brjótast fram eins og í gær, en hitinn er þó ekki nema um 8 gráður. Elli er að keyra flutningabíl suður, kemur aftur heim á morgun. Vö kom í gær um miðjan dag og verðu fram á næsta mánudag, er 5 ára stúdent og ætlar að halda upp á það með skólafélögum sínum. Aldís á leið í vinnu í búðina, og ég kem því vonandi í verk að fara í líkamsræktina. Var hjá tannlækni í gær, er búin að vera með verki í kinninni, gæti verið út frá gamalli fyllingu og nú er verið að rótarfylla tönnina- ekkert voða gaman, en vonandi fer þá þessi eilífa bólga og verkir úr andlitinu. Á samt að fara fara á lyf,e.k. nefsprey, í tvo mánuði því einhver sýking var í kynnholunum líka, kom í ljós við myndatöku á FSA sem læknirinn sendi mig í fyrir rúmum mánuði, fékk fyrst að vita niðurstöðurnar í gær.... Gott heilbrigðiskerfi hér eða þannig. Afmælismatur hjá mömmu og pabba í kvöld, norróliðið mætir og Einar kemur en ekki víst með Maddý sem fór suður í söngferðalag með Emblunum. Jæja best að fara og laga til, þegar maður les um hvað þú ert dugleg fær maður samviskubit :) Gaman hvað mikið er framundan hjá þér og þínum, vildi sko alveg vera á leið til Berlínar með ykkur. Heyrumst fljótlega, þín sys affí

Anonymous said...

Var búin að lesa bloggið fyrir nokkrum dögum. Núna kemur kvittið :D kvitt kvitt :D
Margrét

Anonymous said...

Hæ hæ, já það er eins gott að allt verði þrifið almennilega áður en Þorgerður og fjölsk. koma....híhí :Þ
Flott að hafa nóg að gera en ekki of mikið ;) knús og klemmmur þín Arnhildur

Anonymous said...

Bestu kvedjur fra okkur i Sverige,thar sem vid erum buin ad hafa tad oskaplega gott. Vonandi allt gott hja ykkur og hja Margreti i Norge en eg hef ekkert komist inn a siduna hennar til ad lesa frettir af henni.
Bestu kvedjur, Svanhildur og co.