Miðvikudagur og úti rignir. Búin að vera í alls konar snatti í dag og hef ekkert þrifið eða þvegið eða straujað. Vá, mikilvægar fréttir, ekki satt, haha. Smá letikast áður en gestir koma og ég fer að verða dugleg.
Sendi Þorgerði SMS í dag, en hef ekkert frétt enn. Vona að þau séu hress og lendi ekki í þrumuveðri. Í Rostock við austurströndina kom svo hræðilegt haglél að um 350 bílar skemmdust þegar korn á stærð við egg lentu á þeim. Við sleppum enn. Fáum bara notalega rigningu. Alltaf best í Meinersen. :)
Þorgerður og hennar lið ætla að koma um 26.-27., og ég er smá hrædd um að ég sé að pína þau til að vera of lengi hér. Hlakka til að fá þau, en auðvitað eiga þau að aka sem mest um og njóta dvalarinnar. Það er hægt að gera margt á þessu svæði, en meiri tilbreyting er í suðrinu. Nú, við sjáum til hvað þau ætla sér og hvað verður úr þessu öllu.
Fór til heimilislæknisins í dag. Allt í besta með niðurstöðurnar úr skjaldkirtlarannsókninni. Ætla svo að láta taka blóðprufu því ég er svo þreytt og syfjuð alla daga. Kannski járnskortur. Eða bara geðlyfin mín.
Læknirinn var voða ánægð með mig. það væri munur að sjá mig núna eða í fyrra. Ég sagði að ég væri búin að komast yfir þetta slæma þunglyndi og kvíða, og væri bara hress og farin að hlægja aftur.
Skrapp í garðyrkjustöðina í Müden í leiðinni og fékk nokkur blóm á hálfvirði. Svo var það gæslan. Skrapp til Miu liltu, barnabarns Frau Kühle. Foreldrarnir eru þar í 2-3 vikur og passa húsið meðan hún er hér og þar. Mia var voða glöð að sjá mig og við spiluðum eitt spil og spjölluðum.
Klaus var í gær í ferð með vinnufélögunum. Það fór eitthvað öðruvísi en til stóð. Farið var í gönguferð um skóg einn. Ákveðið að fara einhverja króka, sem varð til þess að gengið var alls í 5 klukkutíma. Klaus var allavega alveg búinn er heim kom. Hann á ekki góða gönguskó, en fór í skóm, sem hann er búinn að ganga vel til. Í morgun var honum illt í löppunum og hann fór í inniskónum í vinnuna :) Já, svona getur tilveran verið hörð.
Við leggjum af stað til Malmö þann 19.7. Gistum í eina nótt. Svo verðum við hjá Margréti í 3 nætur, svo 3 nætur í Stavanger, eða öllu heldur nálægt Stavanger. Ökum til baka með stoppi í Kristianssand og gistum í 2 nætur. Og svo hjá Margréti í 3 nætur. Þetta verður örugglega allt bara æði !
Skilst að Kristín Dögg sé farin að telja niður dagana. Og Margrét hlakka mikið til líka--og ÉG líka :) .
Við Klaus tókum svefnherbergið í gegn--áður en Viktoria kemur.( Lesist vandlega af þeim, sem elska fréttir um þrif :) :) :) ). Það þarf að draga fram rúmið okkar til að hreinsa vefina á bak við. Aldrei framar að kaupa rúm með höfuðgafli, sem er heill niður í gegn. Þvílíkir vefir--ótrúlegt.
Og svo er ísskápurinn hreinn. Hvað er þá eftir-tja. Nóg !
Við erum ekki komnar í sumarfri í kórnum. Eigum að syngja í þorpi hér nálægt þann 15.7. Skrítið að komast ekki fyrr en svona seint í sumarfrí. Þið heima öll á ferð og flugi, i sumarvinnu og svo framvegis.
Ég var að strauja síðustu stutterma skyrtur Klaus--já, spennandi aftur !, -og komst að því að hann á 35 langerma skyrtur og 15 stutterma. Svo núna þegar þessar stutterma eru komnar aftur í skápinn er hann vel fullur. Þær hverfa svo í haust.Sumar mættu nú vel fara í rauða krossinn.
Sófarnir fínir og gott að vera með svona miklu minni mublur. Stofan ekki svona full.
Jæja. Þetta dugar þá í bili og ég vona að allir séu hressir þrátt fyrir einhvern kulda, sem ergir Norðanmenn.
Gott að 17.júní var svona yndislegur.
Lifið heil og bestu kveðjur frá Vorfeldweg.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Ágætt að fá rigningu af og til en þessi haglél og læti kannski aðeins og mikið af því góða!
Gott að skjaldkirtilsrannsóknin kom vel út og að það sé bara eitthvað slen í þér sem valdi þreytunni, ertu ekki bara enn að vinda ofan af vetrinum þar sem var nú alltaf nóg að gera hjá þér. Gott að fá tíma núna til að hlaða aðeins batteríin.
Vona að allt gangi vel hjá Þorgerði og co. á ferðalaginu...og ég held að það sé aldrei hægt að vera of lengi hjá ykkur - svo margt að gera í nágrenninu og líka gott að eiga notalega daga saman. Góða skemmtun!
Bestu kveðjur, Svanhildur
Hæ hæ. Kemur Margrét með ykkur heim? Hér er komið hið besta veður, sól og spáir um 20 stiga hita. Hér rigndi hressilega í gærkvöldi svo nú angar allt af blómum og gróðri, og maður fyllist bjartsýni hehe. Var að slá garðinn og ormahreinsa runnana, - með höndunum og held ég hafi kramð minnst 100 orma. Bölvaðir ormarnir... .) Annars allt gott að frétta, AD í vinnu í búðinni hluta dags og hjá Gallúp við símakannanir hluta dags svo hún nær fullri vinnu með þessu. Er bara nokkuð ánægð sýnist mér. Ætla að labba í líkamsræktina, ekki veitir af að nota frítímann til að koma heilsunni í lag. M og p komu í gærkvöldi og ég kíkti til þeirra í gærdag, aðeins að hjálpa mömmu að púsla og skoða nýjar myndir sem pabbi er að mála, bara mjög fallegar af Bláfjalli. Heyrumst kkæra sys, þín affí
Aumingja pabbi ... langt síðan ég hef heyrt í ykkur þannig að það er víst best að við skæpum í kvöld! :)
LOL Margrét
Mikið væri ég til í að vera líka að kíkja til ykkar elsku frænka, seinna :)
Það verður gaman hjá ykkur í sumar, fyrst með viktoríu í heimsókn og svo elsku nafna mín og Arnhildur... og svo til Noregs, hljómar allt verulega vel.
Ekki strauja yfir þig hehehe og ef skyrturnar eru hæfar í rauða-krossinn þá myndi ég bara lauma þeim þangað :þ
Hafðu það gott
kveðja
Kristín E. á næturvakt
Ef skyrturnar eru gamlar og lúnar þá SETUR þú þær bara í rauðakrossinn - þarft ekkert að lauma þeim þangað :) kv. Malla
Góðan dag! Eitthvað hefur okkur gengið illa að svara Skype-inu...Sigurður virðist alltaf skráður inn í litlu tölvunni en við aftur á móti ekki alltaf á staðnum þegar einhver hringir. Við förum nú vonandi samt að hitta á þig!
Bestu kveðjur, Svanhildur
Djöfull er búið að vera miðvikudagur og rigning lengi þarna í Þýskalandi.
Bk Diddi
Post a Comment