Monday, July 9, 2012

Júlídagar.

Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur núna. Vildi að maður gæti sett á hann lás. En því er ekki að heilsa. Nú er kominn 9.7. Afmælisdagur Aldísar Dagmar. Þessi börn að verða fullorðin.  21 árs daman.
Það er meira en nóg að gera í garðinum og vinnunni. Við höfum verið að taka til í dótinu okkar þar, en bara smá búið miðað við hvað eftir er. Svo var Diana veik í meira en viku og ég var ein með fyrstu bekkingana í 4 skifti.
Hélt að ég yrði klikkuð á fö. þvi tveir strákar voru í stuði og einn stakk af bak við skólann, og einum  hélt ég föstum í nokkur skifti. Já, fjör hér  :)
Það er heitt úti flesta daga , en undanfarið hefur rignt nokkrum sinnum. Við höfum sloppið mjög vel. Ekki langt frá hefur rignt svo óheyrilega mikið að göturnar voru líkari ám en vegum. Þrumuveður hefur valdið miklum skemmdum viða, og við erum fegin að hafa bara séð nokkrar eldingar og ekki lent í neinu slæmu.

Hæst ber svo heimsóknin frá Íslandi. Það var svo ljúft að fá þau öll og tíminn var bara allt of stuttur.
Ég skrapp með þeim í sundlaugina í Wolfsburg. Fór m.a.s. í rennibraut á uppblásnu dekki! Ekki smá stolt. Það er nú eitthvað fyrir börnin. Enda skemmtu Dagur og Helga sér vel.
Dagur fór með mér í vinnuna. Og bræddi meyjarhjörtun. Celine kom tvisvar til að reyna að hitta hann, en við vorum ekki heima. Svo það var planað almennilega að þýskum sið og þau léku sér saman þó að ekki væri talað sama tungumálið. Ekki vandamál það. Bróðir hennar kom líka, og svo Lassi, sem býr hér rétt hjá. Og Lúkas úr næsta húsi. Hér var því fjör eins og í gamla daga.

Þorgerður, Gísli og Helga fóru til BS og eyddu einu síðdegi þar meðan ég sá um barnahópinn :)
Þau voru að leita að tösku handa Helgu í afmælisgjöf, og fund eina flotta. Svo fóru þau aftur til BS á afmælinu og borðuðu á flottum og ódýrum veitingastað.
Við fórum fyrst á jarðaberjaakur hér nálægt og bæði tíndum og keyptum helling af jarðarberjum. Og það var ekki kaka í kaffinu heldur "Erdbeer satt"--  jarðarber þar til allir voru saddir. Nokkuð sem Íslendingar þekkja ekki, eða gera afar sjaldan.
Og eina ferð fórum við "konurnar" einar til BS. Helga Margrét  komin í fullorðinna tölu eftir að hún drakk kaffi á Starbucks ! Við náðum góðri törn í H&M, og Þorgerði fannst hún hafa sparað mikið, en einhvern veginn var Gisli ekki á sama máli.

Þau fengu svo bílinn á afmæli Klaus og óku um Hartzfjöllin. Á meðan voru ættingjar Klaus hér. Við grilluðum, og svo var risa skammtur af heitri eplaköku með ís, sem dugði  handa öllum.
Íslendingarnir fengu svo kalda afganga. Það var nú ekki stjanað nóg við þau og  ég verð að bæta úr þvi seinna.:) Vona að þau komi aftur sem fyrst.
Klaus fékk lítið, sætt grill fyrir tvo, -svona kúlugrill. Við tókum það í notkun þessa helgi og þvílíkur munur að þrífa svona litla grind:) Hann fékk rauðvin og flott nammi frá Þorgerði og fjölskyldu, tyrkneskar kastaníur í súkkulaði frá Alper, vini Danielu, bók um Noreg og geisladisk með fallegri tónlist frá Margréti. Á eftir að fá gjafakort í nudd frá mér og bók frá mömmu og pabba. Kem því í verk eftir að allir gestir verða farnir í haust.

Og svo dundar maður sér á skæpinu. Þvílkur luxus. Búin að tala oft við pabba og mömmu. Og Maddý og eitthvað af liðinu á Garðslofti. Við SÁ og Svanhildi. Og auðvitað við Margréti. En hún hefur varla tima í slíkt núna. 
Hún var í burtu á kóramótinu frábæra, og í morgun fór hún til Theu, vinkonu úr kórnum. Og verður þar í viku. Í Elverum eða Elverun.--
Thea er að passa hús og hunda !!! Gaman væri að sjá Margréti hjálpa henni við það. Fjölskyldan, Dani, Jan og krakkarnir, er á leiðinni til Kiel og veður þar í 3 vikur. Öll eitthvað lasin, en vonandi hressast þau fljótlega við.
Og svo eru Arnhildur og Kristín Dögg að koma. Það er bara ótrúlegt. Allt að gerast.

Klaus minn var á fundi í dag og fór svo að borða með liðinu á eftir. Það er alltaf brjálað að gera hjá honum.
Og ekki mikil orka í framkvæmdir um helgar. En hann sló grasið og ég rakaði.
Mikið er nú gott að vera að fá þrælana!!!!!

Í morgun fór ég í afmælis-morgunverð til Gifhorn. Regina, kona, sem býr hér ekki langt frá. Hún var með mér um tíma i  kirkjukórnum. Á veitingastað, sem við Helga og Þorgerður settumst inn á, og fengum geðveika tertu.  (Já, gleymdi að segja að fyrsta H&M ferðin var í Gifhorn, og það var"fyrsti í upphitun":)  -eða þannig. )
Við vorum um 14, og ég þekkti nokkrar og þetta var bara fínt. Fékk loks tækifæri til að fara í nýju hvítu kvartbuxurnar mínar--og rauða nýja toppinn.
Jæja. Klukkan að nálgast 11 að kvöldi og Klaus minn ókominn. Er oðrin þreytt í puttunum og þessari vitlausu heldi. Er ansi oft með verki í vinstri hendi. Já, þessi gigt.

Vona að þið hafið það sem best. Og ég er sem sé ekki hætt að bloga og verð duglegri á næstunni.






4 comments:

Anonymous said...

Gaman að sjá nýtt blogg. Vonandi hefur allt gengið vel hjá þeim mæðgum og þið eigið góðar stundir áður en þið farið í ferðalagið, það verður æði!
Og síðbúnar afmæliskveðjur til Klaus :)

Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Gott að heyra að það sé nóg að gera hjá þér, nú eru mæðgurnar mættar til þín... reikna með að þið hafið það yndislegt saman :o)
kv
Kristín E. á Garðslofti

Anonymous said...

Var að tala við Þjóðverja, konu sem átti í miklum erfiðleikum með ensku og ég skipti því yfir í mína "þýsku" og talaði við hana góða stund. Hún vildi vita hvar ég hefði lært þýsku og ég sagði m.a. að systir mín byggji nálægt Braunsweig. Það þótti henni merkilegt, en sjálf kom hún frá Goslar í Harzfjöllum. Henni þótti ekki síður merkilegt að ég hefði komið þangað. Svo það þarf oft ekki mikið til að gleðja fólk.
Bk Diddi

Þorgerður said...

Langt síðan ég kíkti hér inn - gaman að rifja upp ferðasöguna en fannst fyndið að sjá þig segja að þú hafir ekkert stjanað við okkur, þú gerðir það nú heldur betur og mátt bóka að við kíkjum til þín aftur!!
Styttist í að þið fáið Margréti heim, og við reynum svo að vera dugleg að bjóða henni í mat í vetur :)