Friday, July 13, 2012

Enn rignir.

Hann tók sig til og fór að rigna hressilega. Með versta móti í dag. Hlé á milli og svo kemur damban. En það vantar alltaf vökva og svo sem gott að fá þetta regn. En dóttir mín og barnabarn vildu nú gjarnan fá sól. Þær eru eitthvað óheppnar með veðrið. Fóru frá Akureyri þegar sólin mætti, frá landinu þegar hlýnaði sem mest, og lenda svo í regninu hér.
En þær eru samt hressar og allt í besta.
Skruppu áðan til BS. Ég var í kaffi hjá Frau Kühle að hitta kærasta Steffi, fyrrverandi tengdadóttur hennar, sem er þarna með 2 syni. Annar er barnabarn Frau Kühle . Og svo er Ulli, sonur hennar, pabbi hins stráksins, þarna. Smá flókið? Já, ekki laust við það.
Klaus kom heim um 4, og nýtur þess að geta slappað af. Rosalega mikið að gera og ekki síst áður en hann fer í friið. Ég var í gærkvöldi á foreldrafundi, sem haldinn var fyrir foreldra fyrstu bekkinga. Sagði frá gæslunni. Svo var síðasta söngæfingin straks þar á eftir. Syngjum á sunnudaginn og ég þarf að vera komin út klukkan 8.40--þessir Þjóðverjar.

Í gær fórum við á hjóli út í búð. Því blái bíllinn var á verkstæði og Klaus fór á þeim rauða. Mæðgur skruppu líka í hjóltúr út í skóginn. Annars vorum við latar i gær og dag. Þær sváfu lengi og voru afslappaðar.
Það tekur við törn þegar við förum að pakka fyrir Norge og taka til hér heima.

Margrét er hjá Theu vinkonu, og þær eru að passa hús og hunda. Frekar gaman að Margrét sé í því starfi. Þær eru líka í alvöru frístuði. Sofið lengi og horft á sjónvarp og dundað sér. En þær fóru nú líka í líkamsrækt og tóku vel á í hálfan annan klukkutíma.
Fjölskyldan farin til Kiel. Og styttist i okkar ferð til Lier  :)

Á þr. fórum við til BS. KD hlakkaði mikið til. Hún fann ýmislegt fínt og margt á tilboði. Ég bauð þeim á kaffihús Möwenpick og við fengum okkur þessa frægu jarðarberjatertu. Gátum ekki klárað og fengum afganginn með heim. Keypti mér tvo boli á til samans 5 evrur. Í Ann Christine, sem Þorgerður kom mér uppá að versla  :)
Við stefnum á að tína jarðarber, en ekki verið nógu þurrt til þess. Veit ekki hvort maður getur gert slíkt í Norge.

Kristin Draheim, sem var skiftinemi á Íslandi fyrir nokkrum árum, fer í lok júlí til Íslands. Þau eru 5. Hún, kærastinn hann Peter, sonur hans og afi hans og amma. (held örugglega ekki foreldrar hans ? )
Arnhildur er búin að lána þeim íbúðina á meðan þau eru á Akureyri. Verða þar svona 4 daga. Akkurat á þeim tíma,  sem pabbi á afmæli.
Það verður ekki mikið um veisluhöld hjá honum, blessuðum. Affí og Elli á ættarmóti, ég og mitt lið í Norge, Strákar Didda að vinna og hann farinn suður. Brói á Nesinu. Og Þórdís að fara i útilegu. Eða það var planið.
Verst að geta ekki gert neitt fyrir hann. En kannski ykkur detti   eitthvað í hug. Ætli sé nokkuð pláss í þessu veiðihúsi á Nesinu hjá Bróa og Svanhildi--líklega ekki.

Við erum enn ekki búin að kaupa flugmiðann til baka fyrir A og KD. En reiknum með að flogið verði aftur frá Berlin.  Kristin Draheim bauð okkur að koma og gista þegar þær færu. Hún og Peter búa nálægt flugvellinum. Og kannski við leggjum af stað þangað þann 16.8., og gistum þangað til þær fljúga heim. Ég er í fríi til 3.9.--Jibbí. Og get gert hvað sem er.  Margrét kemur svo 26.8. Á sunnudegi. Eigum þá viku frí saman.

Í morgun var hlaupið í kring um skólann og krakkarnir voru búin að fá fólk til að borga svo og svo mikið fyrir hvern hring. Ég studdi Sonju, og mætti á staðinn til að kvetja hana og alla, sem ég þekki. Hann fór svo auðvitað að rigna. En þau voru samt ekkert að gefast upp.

Jæja. Nóg í bili. Mæðgur enn í BS þegar þetta er skifað klukkan að verða hálf sjö. Á ekki von á að þeim leiðist mikið. Hafið það sem best og njótið blíðunnar.





9 comments:

Anonymous said...

Hér er sem sé blessuð blíðan, um 17 stig en ekki mikil sól þó hún birtist af og til. Búið að vera nokkur vindur núna seinnipartinn. ágætur dagur til að taka til í bílskúrnum, búin að sortera slatta af dóti og ryksuga niður stigann en á neðsta kjallarann eftir og litla vinnuherbergi Elli niðri í endanum. Búin að slá garðinn, klippa kanta, reita arfa, þvo þvott og taka til á neðri hæðinni. mikið er gott að vera einn heima svona stundum :) Svo bíður mín sænskur krimmi- að sjálfsögðu á sænsku, og svo er ég enn að lesa smásöguna frönsku sem Svanhildur sendi mér. Er svo með þýska Mary H. Clark bók frá pabba, en held ég verði nú meira að skoða orðabókina en söguna sjálfa hehe. Fer í mat í Litluhlíð í kvöld. Heyrði í Ella, hann ánægður með ferðalagið, allt Frakkar og indælis fólk. Allt gengið vel utan að vatnskassinn í rútunni fór að leka en hann hélt að hann gæti fengið það lagað. Er held ég núna á leiðinni á austurland, búinn að fara fjallabak nyrða,og jökuldalinn austan við Mýrdalsjökul, þaðan í Kirkjubæjarkl og Skaftafell. Hann verður aldeilis útferðaður þegar hann kemur loks heim :) Aldís ánægð á Seyðisfirði, gott veður og allt gekk vel, hef ekki heyrt í henni í dag, en reikna bara með að það sé mikið fjör. Bið að heilsa liðinu, kv þín sys affí

Anonymous said...

Gott að allt er gott að frétta af ykkur, bestu kveðjur til allra.
Aldeilis stuð hjá Ella..."chouette" eins og Frakkarnir segja! Og mikið langar mig að skreppa á Seyðisfjörð.
Veit ekki alveg hvar við verðum 27. júlí, á nesinu, í bænum eða hvar (en veiðihúsið því miður alveg fullbókað út sumarið og ekki spennandi að koma í Dal svo sem þar sem ekkert eru nema stigarnir). Hafið það öll gott, bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Var búinn að skrifa langa athugasemd um ekkert sérstaklega gott veður, að pabbi verði að gleðjast á afmælisdaginn sinn þó ekki komist allri til hans, að Affí ætti að koma upp í sveit og vera í nokkra daga og óskir um góða ferð. Helv. kerfið þurrkaði allt út þegar okkur feðgum tókst ekki að lesa úr þessum heimskulegu róbottekstum. Læt þetta því duga að sinni.
diddi

Anonymous said...

þá er ég líka búin að lesa bloggið :) heyri í þér í kvöld. elska þig <3

Anonymous said...

Góða skemmtun í Noregi :) ég er á Akureyri núna, svo er það Húsavík á fimmtudag og svo flýg ég suður á sunnudag, seinna sumarfríið búið og ég aftur að vinna.... Siggi verður aðeins lengur á Norðurlandinu með börnin.
kveðja
Kristín E.

Anonymous said...

Elsku Áslaug, Klaus, Arnhildur og Kristín Dögg! Takk kærlega fyrir kortið. Af ykkur að dæma heyrist mér að Stavanger sé yndislegur. Vonandi að þið hafið haft það gott. Skilaðu kveðju til allra. Ykkar frændur, Ástþór Örn og Arnaldur Kári

Þorgerður said...

Þarftu ekki að fara að blogga aftur, með aðstoð Öskubusku? :)

Anonymous said...

Tek undir með síðasta ræðumanni!

Anonymous said...

Ætli við fáum nokkuð blogg fyrr en systurnar verða komnar aftur til Íslands, skil þig vel frænka en sakna samt blogganna :)
kv
Kristín E.