Wednesday, September 26, 2012

LOKSINS !

Það er víst löngu komið að því að ég ætti að setjast niður og pikka fréttir. En sumarið leið svo hratt. Og ég vildi ekki eyða tíma í nokkuð annað en að vera með barnabarninu og dætrunum.
Þessi tími var einfaldlega dásamlegur. Við höfðum það svo gott. Hápunkturinn var auðvitað ferðin til Noregs.
Reyndar allt of stutt stopp, en út af fríinu mínu og mikilli vinnu hjá Klaus komumst við ekki fyrr af stað. Það er líka ergilegt að það fari 4 dagar í ferð á bíl til Oslo. En Arnhildur og Kristín sáu þá allavega eitthvað af Svíþjóð.
Við gistum í Malmö á leiðinni norður og í Lundi á heimleiðinni. Allir þreyttir á heimleiðinni og við vildum bara komast sem fyrst heim. Ekkert ekið inn í borgina.

Það var dásamlegt að fá að faðma Margréti aftur að sér. Þær systur voru í miklu stuði og svo hressar að við áttum æðislegan tíma saman. Kristín var ótrúlega þolinmóð í öllum þessum bílferðum þó hún sé ekki hrifin af því að vera lengi í bíl. Það má sko alveg hrósa henni fyrir það. Vorum held ég þegar mest var á akstri í 9 tíma. Í það heila gekk þetta allt svo vel og við sáum margt og skemmtum okkur vel.
Stavanger er fallegur bær og á ekki marga sína líka. Svæðið við Kristianssand er fallegt og sumarbústaðahverfið þar sem við gistum mjög huggulegt. Já, við sáum margt og settum líka helling af myndum inn á Facebook, sem þið, sem lesið hafið eflaust séð.

Fyrir Arnhildi var líka gaman að fá að kynnast fólkinu, sem systir hennar bjó hjá. Og sjá þetta umhverfi, sem hún bjó í. Mér þykir verulega vænt um krakkana og vildi svo óska að þau væru hér nær. Þau skæpuðu við Margréti tvisvar eftir að hún kom svo heim í lok ágúst, og það var gaman að sjá stelpurnar, sem veifuðu höndum og ráku upp gleðióp.

Kristín leiddist náttúrlega dálítið. Hana vantaði félaga á hennar aldri. Hún flug því fyrr heim og gekk það allt vel þó hún færi í fysta sinn alein. Við Arnhildur áttum þvi tíma saman, einar, sem hefur ekki gerst síðan Margrét fæddist. Það var líka mikils virði og Arnhildur var langt komin í að "skilja" mömmu gömlu, sem alltaf segir eitthvað bull og kemur hlutunum öfugt út úr sér. Hún slær þó Margreéi ekki við, sem er snillingur í að skilja mig-hehe.

Þetta var bara byrjunin því nú er Klaus mættur og við ætlum að fá okkur te saman og brauðbita. Meira seinna--fljótt  :)




5 comments:

Anonymous said...

jej, þú ert aftur farin að blogga !!! :)

Anonymous said...

ó já, kveðja Margrét :)

Anonymous said...

íha - blogg. Hlakka til að lesa meira og hitta svo vonandi fljótlega dætur þínar báðar ;)
kv. Malla

Anonymous said...

Já loksins! Gaman að lesa nýja færslu. Vona að allt hafi gengið vel í gær hjá þér. Við hugsuðum til þín. Margrét kom til okkar í gær, mjög gaman að fá hana. Við erum alveg óskaplega heppin familían öll að hafa hana hér og vonandi að ég nái líka að hitta eldri stelpuna þína bráðum líka.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Þorgerður said...

Loksins loksins!
Vonandi getum við spjallað saman fljótlega á skype, er að koma því í gang heima aftur...