Komin upp og sit við gömlu tölvuna þar sem bloggin eru undir favorites og ég kemst straks á síðuna mína. Já, það varð lengra hlé á þessum skrifum mínum en til stóð.
Svona er það þegar maður gerir ekkert fyrir heilsuna og bara drekkur kaffi og þvælist um í bænum, hehe.
Þegar dæturnar færu þá ætlaði ég að---- og svo framvegis. En ég sé ekki eftir því að hafa eytt timanum í að vera með þeim og þetta sumar mun verða okkur lengi i minnum.
Ég fékk sem sé í bakið og gat mig ekki hreyft. Verst var að geta ekki einu sinni legið alveg kyrr. Það komu samt verkir með vissu millibili, sem skutust upp bakið. Ég var stynjandi eins og kona með hríðir-hehe-og svo hvild á milli. Það voru rosa elskulegir menn, sem komu á sjúkrabílnum. Þeir settu straks nál í handarbakið, og gáfu mér væg verkjalyf í slöngu/dripp ? , en þeir eru ekki með sprautur, og það kemur ekki læknir þegar þeir mætan ema þeir svo kalli eftir honum. Og læknirinn í Gifhorn var langt í burtu svo læknirin frá Hannover kom með þyrlu. Bara til að gefa mér sterk verkjalyf. Eitthvað finnst mér hljóti að vera hæg að gera þetta á ódýrari hæát, en svona er þetta bara.
Lá svo á hörðum bekk í sjúkrahúsinu þar til ég var loks sótt og farið með mig í herbergið. Eftir að búið var að taka röntgenmynd--undir rúminu. Flott dót hér. Ekki hægt að kvarta undan þvi.
Hef sjaldan verið jafn fegin að komast í mjúkt rúm. Gat loks lagst á það um klukkan 2--komin í herbergið undir hálf 3 og fékk svo kaffi og kex. Guðdómlega gott enda ekkert borðað frá því ég vaknaði fyrir hálf níu og heldur ekki farið á snyrtingu.
Þurfti að vera þarna yfir helgina því ég átti að fara í rörið á mánudgainn. Það var bara ekkert mál, og ég var voða montin að hafa komst klakklaust út úr því. Ekkert fannst við hryggsúluna, og eitthvað tautaði læknirinn um vöðvaverki-skildi ekki baun.
Er svo búin að vera á sterkum verkjalyfjum, 5 töflum á dag. Hætti í gær að taka nema 1, og vona að það dugi. Fór í gær í nudd, og er smá stíf á eftir. Fer svo á eftir og sjáum til hvað kemur út úr því.
Allir nágrannarnir fengu létt kast yfir þessu. Héldu að þyrlan væri að sækja mig. Fékk smá gjafir frá Caro og krökkunum, sem Klaus kom með,-bók, konfekt og te. OGgSonia teiknaði mynd, Maja keypti kerti og gaf mér prins pólo ,sem er nú farið að fást hér í Real.
Frau Kühle heimsótti mig og náttúrlega Klaus. En Susanne og fjölskylda voru í fríi við Norðursjóinn og fréttu þetta bara er heim kom.
Fer aftur í vinnuna á morgun. Það styttist í haustfríið. 19.10. er síðasti kennsludagurinn. Klaus tekur sér sennilega 4-5 daga, en veit ekki hvenær hann getur tekið frí. Hann var í fríi 4. og 5. okt.. 3. okt er þjóðhátíðardagurinn hér og þá eru allir í fríi.
Ég er búin að vera voða róleg og hef ekki reynt á mig. Á samt að hreyfa mig. Við Klaus minn erum búin að fara í göngutúr síðustu 4 dagana og ætlum að halda því við. Þó ekki sé nema hálftími þá er það mikilvægt.
Hef verið að koma röð og reglu á skattholið mitt, ryksuga niðri og taka vefi af veggjum. Sortera dót og drasl. Var búin að taka herbergi Margrétar í gegn áður en ég veiktist og eins geymsluna niðri. Er aftur komin með stóran kassa af dóti til að gefa í búðina í Gifhorn, sem tekur við gjöfum til að selja svo aftur á vægu verði.
Byrjaði að sauma í gær. Kláraði undir höndunum á svuntunni, sem ég byrjaði á fyrir nokkru. Ekki urðu nú saumarnir fullkomnir en það má taka viljann fyrir verkið :) .
Er svo að prjóna ullarleista. Og komst að því að ég er með helling af handavinnu til að sauma út--hvernig væri að kára---.
Það er frekar einmannalegt að komast ekki í vinnuna og sjá engann. En er dugleg á skæpinu og að hringja. Kerstin vinkona úr foreldrafélaginu kom eitt skiftið og Diana, sem vinnur með mér kíkti áður en hún fór í gæsluna. Mátti ekki keyra bíl meðan ég tók öll þessu sterku lyf.
En nú fer þetta allt að lagast og ég að geta ekið um.
Leila kemur aftur i enskukennsku til mín á fimmutdögum. Hún hækkaði um 2 í einkunn eftir að ég fór að hjálpa henni. Var ekki smá ánægð með það og vill ólm vera áfram svona góð.
Svo ætla ég aftur í kórinn, sem ég skrópði í allan september.
Framundan bakskóli og bara að vera dugleg að gera æfingar og hreyfa mig.
Jæja. Nóg í bili. Vildi helst stökkva út í garð og taka til. En sest á sófann og prjóna.
Bestu kveðjur til afmælisbarnsins í dag, hennar Möllu og líka til afmælisbarnsins frá í gær, til Dags.
Hafið það öll sem allra best--- sakna ykkar.
Ádda.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hvernig væri að klára jóladagatalið mitt? Er ekki alveg komin tími á það? :D
<3 Margrét
Úff, þú átt samúð mína alla varðandi bakið. En þú skalt passa þig að hætta ekki of fljótt að taka verkjalyfin. Án þess að ég vilji hvetja til lyfjatöku voru læknar og sjúkraþjálfari sem sögðu mér að það er betra að taka þau á meðan maður er slæmur...sem ég gerði einmitt ekki og fór öll að beita mér rangt til að hlífa sáru stöðunum. Það er ferlegt.
Héðan er annars allt fínt að frétta, við höfum verið svo heppin að fá Margréti til okkar í nokkur skipti síðan hún kom!
Hafið það gott, bestu kveðjur frá okkur. Svanhildur og co.
Takk fyrir fallega kveðjur - sendi batakveðjur ;) kv. Malla
Dagur þakkar fyrir afmæliskveðjuna. Mikil afmælishaldahelgi að baki sem var ánægjuleg. Gaman að fá mömmu, pabba og Láka í heimsókn. Þær eru nú meiri snúllurnar þær Alma og Birna, Birna sérstaklega kurteis og skemmtileg stúlka. Heyrðist Hildur og Stefanía ætla að kippa Margréti með í bíó eitthvert kvöldið. Hún verður með smá matarboð í kvöld, Dagur verður með afmæli fyrir bekkjarbræður í Skautahöllinni á fimmtudaginn og þar með er þetta orðið gott :)
Bestu kveðjur á Vorfeldweg, þetta sumar verður líka lengi í minnum haft hjá okkur!!
Post a Comment