Wednesday, October 24, 2012

Þoka og stillla.

Þá er undirrituð orðin 57 ára gömul. Hvernig er þetta hægt? Ekki langt í sextugsaldurinn. En meðan allt gengur vel er sama hver aldurinn er. Þakka ykkur öllum, sem senduð kveðjur og hringduð.
Þetta var mjög rólegur og góður dagur. Hefði ekki haft á móti því að vera aftur í innkaupamiðstöðinni með Margréti og börnum Hildar og Ásgeirs eins og í fyrra. Og hjá Hildi á vinnustofunni, og með Margréti á kaffihúsi. En á góðar minningar, sem verma hjartað.
Við Klaus vorum búin að taka fataskápinn minn í gegn. Ég fer reglulega í gegn um hann. En alltaf hefur hellingur verið settur inní aftur--því ég get notað það í garðinum,-við að mála og svo framvegis. Í þetta sinn tók Klaus af skarið og við tókum frá heilan helling, sem á eftir að koma í rauða krossinn.
Afmælisgjöfin mín frá Klaus var svo--innkaupaferð til BS til að fylla aftur skápinn   :)   .
Við fórum í gær. Klaus er í fríi þessa viku. Ég þessa og næstu. Haustfrí í 2 vikur er mikill luxus. Klaus átti tíma í sjúkarþjálfun og þetta passaði sem sagt vel.
Ekki er ég nú sú besta í innkaupaleiðangri fyrir mig. Klaus var frekar óánægður með árangurinn. Einar gallabuxur, einar grænar riflaðar flauelsbuxur, langerma bolur-rauður og annar ólífugrænn. Svo útprjónuð golla í haustlitum. Mér fannst þetta nú heldur betur meira en nóg. En--við pöntuðum svo skó í dag með dálitlum hæl, -svona haustskó---og ullarjakka. Og nú held ég að þetta sé orðið dágott    :)    .

Kristín Dögg gaf mér hálsmen, sem hún bjó til sjálf. Úr gleri. Mjög fallegt og í mínum rauða lit. Á annað frá Arnhildi, sem er svart með bláu og bleiku. Líka mjög sætt. Og mest gaman að eiga eitthvað, sem þær búa til sjálfar.
Margrét gaf mér viskastykki með Muminálfum--blátt og hvítt. Frá Norge og góðar minningar fylgja því. Líka 4 langar plastskeiðar í mismundandi litum. Liturinn á viskastykkinu er akkurat sá, sem ég vil fá í eldhúsið og get því farið með það að panta litinn.
Frau Kühle kom í kaffinu og færði mér meira en 150 blómlauka til að setja niður. Á eftir að drífa í þvi. Ekki smá vinna. Hehe. Herra Albrecht, sem vann i þorpsskólanum kom með sem leynigestur. Var voða gaman að fá hann. Hann færir manni alltaf heimagerðar sultur. Æðislegar.
Svo komu Susanne og Gregor eftir vinnu hans. Með hvítt blóm í hvítum potti , krimma og sturtusápu og krem.
Ég keypti mér svo bók fyrir pening frá mömmu og pabba.

Nina frænka hringdi í mig eins og alltaf. Hún og Svend koma sennilega til Íslands um jólin. En það er ekki búið að ákveða hvenær eplaskífukaffið verði hjá Birnu frænku og þau því ekki búin að kaupa miða.
Og við ekki heldur en verðum víst að drífa í þvi.

Það var gaman að vera í BS í gær, en frekar stressandi að vera með Klaus, sem vildi endilega að ég keypti og keypti, en maður vill nú hugsa sig vel um, ekki satt. Og ég er ekki sú besta í að taka ákvarðanir. Haha.
Þegar hann fór í nuddið settist ég niður á Miners og fékk mér mitt karamellukaffi. Splæsti á mig litlum pakka með marsmellows með súkkulaðihjúpi utan um. Nammmmmmmi. Góður endir á "öðrum í afmæli"-hehe.

Í morgun fór ég að hitta kvennsjúkdómalækninn minn. Það verður ekki nein auðveld aðgerð í þetta sinn. Út af öllum þessum undanförnu aðgerðum. Ég á að panta tíma í viðtal hjá yfirlækni á deildinni í Gifhorn. Láta svo minn lækni vita hvenær ég fer og hann sendir honum nánari upplýsingar. En ég er komin með tilvísun og skýrslurnar. Og svo glotti hann og sagði-ef hann treystir sér til að skera þig upp--hehe. Uppörvandi. Haha.--
Ég mun vera skráð i veikindafrí  í allvega 8 vikur, í ró í 12 vikur. Má ekki fljúga fyrr en eftir 4-6 vikur. Fj-----.
 Hann spurði hvort ég ætlaði heim til að láta mömmu mína stjana við mig. Og ég sagðist sko ekki ætla að hanga  hér alein. Svo nú er næst  að tala við skólastjórann og ath málið, en það verður ekki af þessu fyrir jólin því yfirlæknirinn var lasinn og kemur ekki til vinnu fyrr en í nóv. Og margt biður hans þá.
Kannski ég geti tengt þetta páskunum og  komið heim. Sjáum til.

Það er búin að vera þoka frá þvi á mánudagsmorguninn. Kólar hratt eftir að við fengum meira en 20 stiga hita um helgina. Klaus byrjaði að klippa runna og ég að plokka illgresi.
Núna ætla ég að fá mér kaffi og setjast framan við sjónvarpið. Prjóna sokka um stund og slappa af.
Vona að þið séuð hress og framtakssöm. Hlakka til að sjá myndir úr nýju íbúðinni hans Didda þegar búið er að mála og taka til. Og hver veit hvað verður með aðra fjölskyldumeðlimi, sem lesið var fyrir í bolla--breytingar?????  Hahaha. Fjör að vera með í beinni útsendingu hjá Maddý að lesa í bolla    :)    .
Ástarkveðjur ykkar Áslaug.



3 comments:

Anonymous said...

Mér finnst þetta vera fínt hjá þér að hafa keypt þér þessi föt! Ég er stolt af þér að hafa hent svona mikið af fötum !!!
Margrét

Anonymous said...

Ég er hjartanlega sammála Margréti...já og svo held ég að Klaus gæti gefið Sigurði góð ráð ;)

Hafið það gott! Það verður gaman að sjá ykkur í jólafríinu.
Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Það er ótrúlega frelsandi að henda :) Spurðu bara Affí tihi
kv. Malla