Monday, October 15, 2012

Ánægð með tilveruna.

Mánudagskvöld. Rigning í morgun, sem kom með ferskt loft og sólin kíkti svo til okkar í hádeginu. Kom mér úr bælinu  fyrir 9, og fór í sturtu og var þar með hress og til í allt. Tíndi laufblöð af trjám bæði hér og hjá nágrönnum. Síðan var vatnslitað í gæslunni af kappi  :) . Lét 4 í einu vera við vatnslitaborðið, og lita yfir laufblöðin þannig að eftir var hvítt far þegar blaðið var tekið upp. Voða flott auðvitað. Hin, sem biðu, fengu blöð sem skapalón og ekkert þeirra átti í erfiðleikum með að nota skapalón. Held að það hafi aldrei gerst fyrr.

Skæpaði við Margréti, sem var aldeilis hress eftir heljartön um helgina. Leikhúsferð, heimsókn, barnaafmæli, göngutúr, stórafmæli Sigga. Henni fannst rosa gaman í afmælinu og skemmti sér vel að sjá liðið komið í stuð eftir að áfengið var farið að virka. En enginn fór yfir strikið. Ásta vill endilega kenna henni að drekka smá og þar sem FAF er farinn að fá sér í  glas er hún bara ein eftir. En-ég held að henni sé nokk sama um það. Fer sína leið.
Hún fór til Sólveigar með Arndísi og stelpunum. Finnst húsið og staðurinn rosa skemmtilegt. Vona að ég fái að sjá það við tækifæri.
Takk fyrir þið öll, sem stuðlið að þvi að dvölin hennar verði sem best. Ég er ykkur svo þakklát. Þetta verður mikil lífsreynsla -að vera innan um þessar rugluðu fjölskyldur mínar--hehe.

Ég hélt um helgina að ég væri að fá kvef. Svo ég tók þvi með ró. Drekk engiferte, og sit hvort sem er  oft með hitapúða út af bakinu. Það er til friðs, og á miðvikudaginn fer ég í þriðja skiftið í nudd. Vildi nú óska að ég gæti komist í garðinn. Finn hvað það er miklis virði að vera úti og vinna með hendurnar í moldinni. Við Klaus erum búin að fara nokkrum sinnum í göngutúr, en hann var frekar latur um helgina og ekkert farið, og hann  kom seint heim í kvöld. Ég þyrfti að fara án hans og þá bara aftur ef hann er tímalega kominn heim.
Útivera er allra meina bót.

Það er að koma haustfrí. Eftir 4 vinnudagar. Klaus tekur sér frí fyrri vikuna. Susanne og Gregor koma til mín á afmælinu eftir vinnu, og við ætlum að borða saman kvöldmat. Svo er ég búin að plana að við verðum með fjölskyldudag. Bað Susanne að ath hvenær dæturnar hefðu lausa helgi í nóvember. Þá kæmum við hér saman, ég pantaði mat frá fyrirtæki og við héldum upp á silfurbrúðkaupsdaginn og afmælið i einu. Finnst þetta afskaplega gott plan  :)  .

Hef þetta stutt í þetta sinn. Spennandi krimmi að fara að byrja. Svo er Varg Veum á fimmtudagskvöldið. Margrét sá einhverja þætti af því úti. Gerist í Bergen. Æðislegt að sjá staði, sem maður hefur komið til.
Þekkið þið þessa þætti heima?

Hafið það gott, og aftur og enn takk fyrir dóttur mína--nema Diddi--hann á eftir að gera eitthvað fyrir hana eftir þrældóminn--hahaha. (Veit að honum þætti leiðinlegt að fá hana t.d.  með stelpurnar í bústaðinn eina helgi þegar Arndís eru í USA.  :)  )
Og nú hnussar í Margréti og hún hugsar--"mamma vertu ekki alltaf að skifta þér af mér. Ég get séð um mig sjálf. Þú þarft ekki að kalla saman hjálparsveit til að koma þegar eitthvað er erfitt". --Og ég er víst búin að lofa að taka mig á og skifta mér sem minnst af henni. Enda er þess ekki þörf, en--mömmur eru nú einu sinni mömmur alla ævina   :)  .
Hafið það gott. Þið eruð öll frábær.















3 comments:

Anonymous said...

Já ég þarf enga hjálparsveit. Spjara mig sko alveg príðilega !! :)
En skemmtu þér vel að horfa á Varg Veum. Mér fannst hann skemmtilegur. Enda var hann líka að tala norsku þegar ég sá hann! ;)
Knús
Margrét in the middle :)

Anonymous said...

Vil nú bara byrja á að segja að mér finnst titillinn á þessari bloggfærslu frábær!
Heyrist þú hafa nóg að gera, þú ferð vel með bakið. En það er yndislegt að hlaða batteríin utan dyra og ég skil þig vel að langa í garðinn.
Aldeilis farið að styttast í afmælið þitt og fjölskyldudagurinn hljómar vel.

Margrét kom til okkar í dag, við erum enn að meðtaka hvað við erum heppin að hafa hana nálægt okkur svona lengur en nokkra daga :)

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Farðu vel með líkama og sál
diddi