Friday, October 26, 2012

Vinna í garðinum.

Kominn föstudagur. Sólin lét sjá sig eftir hádegið í gær og ég fór út að hreinsa undir girðingunni og meðfram henni. Gat næstum lokið við alla leiðina út að akrinum. En þá meldaði bakið sig og ég ætla ekki að ganga fram af mér. Fór í gott bað á eftir. Nudd með bursta og blóðrásinnkomst vel í gang. Svo krem og ilmvatn. En yndislegt líf  :)  .
Söngæfing hálf átta og þar sungu kórsystur minar fyrir mig. Alltaf sungið fyrir þær, sem eiga afmæli.
Svo skæpuðum við hjón við yngri dótturina eftir að ég var búin að hringja í þá eldri.

Í dag er yndislegt veður. Svalt reyndar, eða það kallar maður nú þegar hitinn er um frostmark að morgunlagi og allt pikkfrosið á rúðunum--hehe. Svo fór hann í ein 7 stig held ég. Nú, ekki um neitt að velja. Urðum að grafa upp blómlaukana ,sem ekki þola frost. Og það var mikið unnið og það af kappi í garðinum eftir hádegið. Búin að grafa upp allar Dalíurnar, og klippa af þeim. Setja laukana í skúrinn, og nú þarf að redda kössum og koma þeim til bóndans, sem geymir þær fyrir mig í vetur. Klippa af blómum, sem ég fékk gefins í sumar og setja helling af trjáberki ofan á þau. Klaus sló grasið og rakaði, og ég dreyfði því undir tré og runna. Inn á milli var drukkið kaffi. Að sjálfsögðu. Og í lokin dreif ég mig á pósthúsið-í drullugallanum- með stúdentsskýrteinið hennar Margreéar, sem hún þarf að fá fyrir HÍ. Er að sækja um norkukúrsa. Rétt náði að kom þessu í póst áður en póstbílinn kom. Og svo voru keypt Brötchen , farið í bað og borið á sig olíu.

Skórnir, sem við pöntuðum á mig--og Klaus valdi að mestu þar sem ég hélt að ég gæti ekki gengið í svona skóm--hehe--komu í gær. Eru miklu þægilegri en ég hélt, og ég var í þeim á söngæfingunni og gat líka ekið bílnum.  :)  . það kemur bráðum mynd á Facebook.

Klaus minn festi svo upp mynd, sem er búin að standa í forstofunni frá því í ágúst lok. OGg bar inn 2 plöntur, sem ekki mega vera úti í vetur. Og hann kom þeim m.a.s. alla leið upp á háaloftið þar sem þær eiga að vera. Segið svo að hann Klaus minn komi ekki hlutunum í verk--bara kannski ekki straks-hahaha.

Á sunnudaginn verður svo klukkunni breytt. Þvílík sæla!!!!! Þá er bara einn klukkutími milli okkar.
Í dag er afmæli Þuriðar Önnu. Þessi miklu afmælismánuður ekki enn liðinn. Eftir litla systir á mánudaginn.
Og svo Lilla.
Mig minnir að í gær hafi verið giftingardagur Svanhildar og Sigurðar.--Til lukku bæði tvö   <3 .="." nbsp="nbsp" p="p">
Held að Svanhildur ætli bara að ættleiða Margréti. Þær tvær voru á rölti á Laugarveginum í gær og núna fer Margrét að fara í pizzu til þeirra. Það er gott hvað allir eru jákvæðir í hennar garð.
Þá held ég að ég fari að hita tevatnið og bera á borðið.  Hafið það gott.
Hjartans kveðjur til allra frá Vorfeldweg á fallegu haustkvöldi.





6 comments:

Áslaug said...

Ég finn ekki hvernig ég kemst aftur inn á skrifað blogg til að leiðrétta það--alltaf verið að breyta þessu---.
Ykkar gamla Áslaug--hehe.

Anonymous said...

Jú mikið rétt, brúðkaupsafmæli í gær! Takk fyrir kveðjuna.
Alltaf gaman að hitta Margréti...við "frænkurnar" vorum að láta okkur dreyma um að komast í jólatívolí í Kaupmannahöfn...spurning um að fara að spila í lottó.

Það væri ekki ónýtt að vera líka að fá eldri stelpuna þína í föstudagspizzu, það verður vonandi seinna.

Bestu kveðjur frá öllum hér, Svanhildur

Anonymous said...

Það er nú ekki annað hægt en vilja ættleiða Margréti - yndisleg frænka og notalegt að umgangst hana :) kv. Malla

Anonymous said...

Nú er bara hið besta haustveður, en svo á að fara að snjóa með tilheyrandi roki sýnist manni á veðurspánni. Við tókum smá bílaþvott í dag, ekki seinna vænna ef það á að fara að snjóa. Styttist í að Aldís D komi heim, vinnu lýkur hjá þeim á miðvikud. Annars bara nokkuð rólegt. 'Eg bakaði skúffuköku og steikti hrigg í kvöldmatinn. Södd og löt, og ætla að sitja og prjóna og horfa á sjónvarp það sem eftir lifir kvölds. Hafðu það gott mín kæra sys. þín affí

Anonymous said...

Það er aldeilis..... ég var búin að gefast upp á að leita að bloggum hér og nú er ég búin að lesa og lesa :-) dugleg ertu.
Farin að sofa, fer að fylgjast með og bíð spennt eftir næsta bloggi
Knús
Kristín E.

Anonymous said...

já ég var bara ekkert búin að kommenta :)
Margrét