Úti er smá gola. Glampandi sól og haustið bara eins og það gerist best. Það var svalt þegar ég fór út áðan að taka nokkrar myndir í garðinum. Kominn tími á hnésokka og fer að styttast í leggings innanundir. A.m.k. fyrir svona kuldakreistinga eins og mig. Húfan fer með í hverri ferð eða eyrnabandið. Já. Haustið er mætt. En samt ætlar skaparinn að gefa okkur smá sumarbót næstu daga. Það er reiknað með um 20 stiga hita. Ekki slæmt að vera úti þá. Fram að þessu höfum við sloppið við næturfrostið. Í Austur Þýskalandi eru þeir búnir að fá sitt fyrsta frost. Og frost á stöðum, sem liggja hærra.
Í gær var hinn árlegi haustmarkaður í Meinersen. Þetta er óttalegt skran, sem boðið er uppá. Útlendingar, sem aka milli markaða með fatnað og töskur. Skartgripi og svoleiðis dót. Reyndar keypti ég mér litla rauða buddu undir smápeninga. Búin að leita lengi að slíku. Finn aldrei þá svörtu í svörtu töskunni--hehe. Já, og svo keypti ég nokkur pör af sokkum á Klaus , hunang, fékk mér kaffi og köku hjá Kvennfélaginu.
Rakst á nokkra, sem ég spjallaði við. Hitti Frau Kühle, sem vann hjá slátraranum okkur við að selja grillaðar pylsur. Þessi hjón eru búin að reynast henni ótrúlega vel og hún vill reyna að endurgjalda þem hjálpina.
Annars var ég mest í rólegheitum í gær að prjóna sokka. Á sjálfa mig í þetta skiftið. Vantar í gúmmistígvélin mín.
Klaus fór til Frankfurt í gærmorgun. Eldsnemma að venju. Var kominn fyrir átta til baka. Við áttum rólega stund framan við sjónvarpið og spjölluðum um verkefnin, sem framundan eru. Það þarf að fara að klippa greinar og taka til í skúrnum. Og svo erum við farin að þrá að fá nýtt rúm. Dýnurnar eru orðnar þannig að maður liggur í dæld í miðjunni :) . Og ef--EF- við fáum okkur rúm, þá vildi ég breyta öllu. Henda skápnum, sem er til vinstri, út--etv. í herbegi Margrétar þegar hún er búin að taka eitthvað af mublum þaðan, og setja rúmið beint á móti glugganum. Þá væri maður ekki lengur undir súðinni. Og svo að gera skápa undir súðinni, með rennihurð framan við. En sem sagt. Þetta eru allt draumórar.
Hvað væri tilveran án drauma :) .
Nú fer Margrét að fara norður með Össa og krökkunum. Hún hlakkar ekki lítið til að hitta afa og ömmu, sem hún hefur ekki séð í langan tíma. Og alla hina, sem búa fyrir norðan.
Hún hefur það gott og allir stjana við hana. Held að Svanhildur vildi helst að hún flytti bara endanlega til Íslands. Gott að hafa eina, sem er ekki útivinnandi og hægt að hitta fyrripartinn.
Slæ þá botninn í þetta að sinni.
Kærar kveðjur úr sólinni og haustlitunum í Meinersen.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ha ha! Já, mynduð þið kæru hjón ekki fylgja fordæmi hennar!?!
Haustkveðja, Svanhildur
Elsku Áslaug! Innilega til hamingju mað afmælið, vona að þú njótir dagsins vel.
Við náum kannski að sjá þig eitthvað á Skype í dag eða næstu daga.
Afmælisknús frá okkur, Svanhildur, Sigurður Ágúst, Ástþór Örn og Arnaldur Kári
Elsku Áslaug.
Innilegar hamingjuóskir með daginn.
Ég þarf endilega að skrifa þér, ertu enn með gamla netfangið ?
Kv. Hildur Halldórs.
Takk takk allir--já Hildur,- er enn með það gamla. Hlakka til að heyra frá þér.
Post a Comment