1.11. og varla að maður trúi því. Ekki mikið eftir af fríinu mínu. Og hægt að segja að ég hafi ekki setið auðum höndum þessar tvær vikur. Eiginlega er það Margréti hennar Sólu að kenna að ég tók aðalkastið og komst í stuð að fara að gera jólahreingerningu. Hún var að kvarta yfir verkjum í hnjám og sárum fingrum þar sem hún hefði það í beinen kvennlegg að þrífa allt hátt og lágt ef maður færi á annað borð í slíkt.
Svo ég fór af stað. Tók allt úr stóra stofuskápnum. Þvoði mest allt upp í höndunum. Ekkert gaman að eiga falleg glös, sem eru rykug. Raðaði betur inn í hann. Svo tók ég litlu skápana og breytti og lagaði. Bar tekkolíu á allt. Og fór svo að draga hillur og skápa frá veggnum. Það eru ekki fætur undir skápunum svo ekki er hægt að þrífa undir þeim nema draga þá fram. Drullan maður minn. Kongulær eru óþolandi-hehe.
Og úr því ég fór að draga- þá til gat ég alveg eins fært þá fram og til baka. Svo nú er skattholið komið hjá litla glugganum, tveggja dyra skápurinn í hans stað, en upp við stóra skápinn. Þá var rýmra í horninu og ég snéri stofuborðinu við. Það er núna með endann við hurðina og við Ikeaskápinn--hehehe.
Og svo var farið í glugga og gler í hurðum, þvegin gluggatjöld og núna er stofan næstum alveg búin. Í staðinn er allt í rusli og skít uppi. Svona er það.
Fór i gær til Hannover með Anitu úr kórnum. Bróðurdóttir mannsins hennar kom með, 14 ára indæl stelpa. Og svo Naja litla. Anita var ekki mikið að hjálpa Kim að versla. Kim er frá smábæ í austur Þýskalandi og ekki vön að versla. Svo það var gott að vera með þaulvana Islendingaleiðsögubúðarkonu, og ég fór með hana í H&M, og aðra staði þar til hún var búin að kaupa það, sem hún hafði ætlað sér. Alltaf góð í verslunarferðunum, ekki satt :) .
Keypti sjálf bara eina jólagjöf. Settumst inn á lestarstöðinni og fengum okkur pizzu frá Pizza Hut. Æðislegar að venju. Það var sól og frábært veður og gaman að rölta um. Vorum svo komnar heim fyrir klukkan 4 því þær ætluðu í hrekkjavöku party. Hingað komu bara tveir strákar, sem ég var með í gæslunni, og þeir brostu blítt þegar ég gaf þeim nammi.
Var að passa kisu mánudaginn og þriðjudaginn.. Þurfti að hleypa hundinum við hliðna út í hádeginu því veslingurinn var einn. Sonia í Póllandi. Þau fór svo af stað í dag að ná í hana.
Á laugardaginn er aftur Stoffmarkt--markaður með efni-í Hannover. Vinkona mín vill óð fara og ég var búin að lofa að koma með. Það er ágæt tilbreyting. Svo kemur fjölskylda Klaus í hádegismat á sunnudaginn. Ætlum að halda upp á að það séu 16 ár frá því við fluttum inn-(2.eða 3. 11.) 25 ár frá því við giftum okkur og svo eftirá afmælishóf fyrir mig. Meike, kona slátrarans hér, ætlar að elda tvö pottrétti fyrir mig og ég tek þessu bara létt.
Verð svo aftur á kisuvakt á morgun og fram á sunnudaginn. Það er greinlegt að ekki myndu hjólin snúast ef mig vantaði hér um langan tíma :) .
Hugurinn hefur verið heima hjá þessum strandaglópum. Arndís í New York, Arnhildur í Hveragerði.
Fegin að ekki hefur verið slæmt á Akureyri hjá pabba og mömmu. En mér heyrist víða vera slæmt verður.
Hræðilegt að sjá myndir frá USA. Er alltaf jafn fegin að búa hér hvað veðurfar varðar. Við búum á mjög rólegu svæði.
Í kvöld er svo söngæfing. Eiginlega nenni ég aldrei út á kvöldin. Þegar maður er einn allan daginn er notalegt þegar Klaus er kominn heim og rökkur skollið á á. Te, brauð og kertaljós og eitthvað að horfa á í sjónvarpinu eða jafnvel að skæpa við Margréti.
Ég sló öll fyrri met í gleymsku í fyrradag. Það er erfitt að toppa margt, sem ég hef gleymt. Vinkona mín, sem var kennari í grunnskólanum, hringdi í mig og bauð mér kíkja inn. Ég var búin að segja að mig langaði svo að sjá hvað hún hefði verið að sauma á bútasaumsnámskeiði nýlega. OK-ég kem klukkan 3- sagði ég. Svo datt þetta alveg gersamlega út úr hausnum á mér. Og það þó að ég hafi hlakkað mikið til að skreppa til hennar. Hún býr í svo notalegu húsi og er mjög indæl. Klukkan 6 um kvöldið var ég búin að hamast í stofunni, fara í gott og langt bað og byrjuð að elda mér hafragraut og setja bláber í diskinn. Þá allt í einu rann upp fyrir mér --ég ætlaði að vera hjá Brigitte!!! Hringdi í ósköpum, skildi grautinn eftir á vaskinum, og deif mig úr náttbuxunum og í gallabuxurnar,--og náði að vera hjá henni í klukkutima og skoða fallega dótið hennar. Þá kom maðurinn heim og ég fór svo þau gætu nú borðað saman kvöldmat. Klaus var þennan dag í burtu, og kom ekki fyrr en undir 9. --Hvernig er hægt að vera svona utan við sig?????
Jæja. Best að fá sér kvöldmat og fara svo á æfinguna klukkan hálf átta. Bestu kveðjur og vonandi lendið þið ekki í neinu slæmu út af veðurofsa.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Farðu varlega með þig systir í öllu þessu þrifaæði. Hér er rok og leiðindaveður, ekki snjór. Ég fer með Kristjáni upp á Mýrar í dag að hjálpa honum aðeins í staðinn fyrir það sem hann er búinn að hjálpa okkur. Það gengur hægt að laga hér þessa dagana, fólk dreift út um allt og því engir til að taka ákvarðanir saman eða hjálpast að. En það er voða lítið stress yfir þessu og okkur líður hér vel.
Annars ekki mikið að frétta.
Bk Diddi
úff ég verð að fara að byrja á þrifum áður en þú kemur um jólin - hér er allt frekar skítugt..... eða bara MJÖG skítugt tihi
kv. Malla
Ættir að sjá gluggana hjá okkur eftir þetta óveður undanfarið, allt salthúðað! Ekki nennti ég að eyða sunnudeginum í að þrífa þá :) Dagur að keppa í dansi alla helgina, keppti í gömlu dönsunum á sunnudaginn. Gaman að sjá krakkana dansa skottís og ræl, mörg prúðbúin, stúlkurnar í upphlut og drengirnir í íslenska búningnum. Margir með prjónaðar skotthúfur, svo þaðo þarf að fá pmmu Maddýju í málið :) Hildur Valdís á kafi í airwaves, tónleikar sl. 5 daga. Þuríður Anna kom suður á þetta og þær hittust aðeins. Helga Margrét á haus í skólanum, Ísbúðinni, pössunarstörfum og félagsmiðstöðinni í skólanum. Gilli að fara í 2 próf í þessari viku, búinn að læra og læra. Svona er nú heimilishaldið í Fjallalindinni, og allar rúður skítugar - haha...
Hafðu það gott frænka, gaman að geta séð fyrir sér hvernig þú fluttir mublurnar til í stofunni :)
Post a Comment