Góðan og blessaðan daginn. Laugardagur og aðventan nálgast. Reyndar er ekki mikið, sem minnir á jól hér. Þoka og drungalegt. Enda er nú Nóvember í Þýskalandi mánuður sorgar og minninga. Eilífir sunnudagar, sem minnst er hinna dánu.
En nú eru markaðir að byrja sitt starf. Eftir helgi opnar Jólamarkaðurinn í BS, og hér allt um kring.
Þessa helgi eru jólamarkaðir í gróðurhúsum. T.d. hér í Ahnsen. Og ég ætla að líta inn þegar ég fer að gefa kisa. Nú langar Margréti að vera komin :).
Tölvan var lengi í lamasessi. Klaus þurfti að setja í hana gamla forritið, og var lengi að baksa við þetta. Mér finnst vont að skrifa á "nýju" tölvuna, og þess vegna var svona LANGT hlé--hehe.
Og svo var ég svo bissí.
Tók húsið vel í gegn í vikunni, ryksugaði og þvoði gólf, setti hreint á rúmið og svo framvegis.
Fór á fimmtudaginn í síðustu viki í jóga með vinkonu minni. Við ætlum að fara vikulega, en tengdamamma hennar lést í byrjun vikunnar, og þessa viku fórum við því ekki.
Leila kemur einu sinni í viku í ensku. Bauð Sonju i hádegismat nýlega og hún lærði hér og lék sér með playmobil.
Svo þurfti ég óvænt til BS. Var með skrjálf í eyra og ætlaði að láta heimilislækninn líta á þetta. En var sagt að drífa mig í hvelli til sérfræðings. Þetta gæti verið Tinnitus. Svo ég varð að sleppa vinnunni, biðja Susanne að fara með mig til BS. (Bíllinn hans Klaus var bilaður og hann á mínum í vinnunni ). Allt hafðist þetta, og það kom í ljós að ég var með sýkingu í eyrnagöngunum, en ekki neitt hættulegt. Fékk dropa við þessu.
Við Susanne fengum okkur svo að borða í Karstadt. Röltum um og skoðuðum bækur og hefðum alveg getað keypt svona einar 20 bækur--hehe. Erum báðar lestarahestar.
Fann rosa fína "hækju", innkaupatösku á hjólum. En var ekki með gjafamiðana, sem ég fékk hjá Karstadt. 10 evru afsláttur á vöru á 60 evrur, eða 15 % afsláttur innan við 60 evrur. Ekki fór ég nú að sleppa þvi.
Er heim kom leitaði eg dinum og dyngjum--er það sagt svo---???? og ekkert fannst. Það var bara einn möguleiki. Þetta hefði óvart lent í pappírstunnunni. Og úti var dimmt og kalt-sótti því tunnuna og setti í forstofuna, og viti menn--eftir að vera búin að veiða upp helling komu miðarnir í ljós--sko MIG !!!!!
Maður er nú ekki búinn að búa í Þýskalandi í 28 ár fyrir ekki neitt. Hendir ekki peningum í ruslið í orðsins fyllstu merkingu.
Klaus flaug á miðvikudaginn til Monaco. Kom heim í gær og var ekki neitt hrifinn af Monaco. Maja við hliðina varð alveg hissa. Henni finnst Monaco ofsalega falleg og spennandi. Já, minn maður sér aðra hluti. Hehe. Hann flýgur svo til London á þriðjudaginn og gistir aftur í 2 nætur.
Ég dreif mig til BB á miðvikudaginn í klippingu. Það var sannarlega kominn timi til. Fékk strípur, sem eru strípur og ekki bara stórar rendur fremst og líitð aftan við. Er núna svo pen og fín. Og verð að dröslast i klippingu oftar en á þriggja mánaða fresti.
Margrét er himinlifandi í Lier. Stelpurnar búnar að sakna hennar mikið. Það er geinilegt. Þær hanga í henni og
enginn má gera neit tneitt nema Bagga/Magga. Það er gott að finna að manns er saknað og að maður fái viðurkenningu og ást. Ég held að litla Alma sé nú líka farin að sætta sig við Margréti. Hún sagði við mömmu sína þegar þær fóru að sækja Geira- núna vantar bara einn pabba og eina Margréti--. Þetta var svo sætt. Auðvitað tekur tíma að aðlagast og það er örugglega ekki auðvelt að mamma og pabbi séu svona oft í burtu. Börn skilja ekki af hverju og láta það svo bitna á einhverjum. Tekur allt sinn tíma.
Það eru meiri fréttirnar af veðrinu heima þessa mánuðina. Mér skilst að Víkurskarðið hafi verið lokað alls í 18 daga fram að þessu. Ekki hefur Helgi getað heimsótt Arnhildi oft, og manni finnst þetta bara ótrúlegt þegar verið er að lýsa ástandinu. En vonandi fer allt að batna og verða rólgt og fallegt á aðventunni.
Við Lilla erum svo duglegar að skæpa, og eins pabbi og mamma. Diddi meldar sig oft. Þvílíkur lúxus að geta séð fólkið, sem manni þykir vænt um eins og það væri framan við mann. Þorgerður kann líka á þetta og við þurfum endilega að spjalla um helgina og eins er allt of langt síðan ég hef séð þá frændur mína Arnald og Ástþór að ég ekki nefni nú Maddý.
Jæja. Þá er þetta dágott í bili. Er á leið í sturtu og svo ætla ég að plata Klaus í bíltúr til Leiferde þar sem er markaður á Unsahof,- verslun og verkstæði rekið af konum. Þá getum við komist að því hvort bílinn er í lagi. Þeir gáfust upp á verkstæðinu hérna og sögðust ekkert finna. En það gekk allt vel með að keyra hann frá verkstæðinu og hingað.
Hafið það sem best og óska ykkur öllum betra veðurfars. Stórt norskt KLEM frá Áslaug.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Gaman að lesa nýja færslu og mikið væri nú gaman að komast með ykkur á jólamarkaði og á Unsahof.
Klaki hér á gangstéttum og götum...það jaðrar við að best sé bara að renna sér á rassinum það sem maður þarf að komast!
Bestu kveðjur, Svanhildur
Þeir bræður hér þurfa að fara að heyra í þér á Skype fljótlega ;)
Takk fyrir nýtt blogg :-) Hér eru rólegheit, krakkarnir farin í næturpössun til afa og ömmu í Hafnarfirði, fóru snemma til að geta séð þegar kveikt verður á jólatré Hafnfirðinga. Við Siggi á leið á jólahlaðborð Advania, sem byrjar kl 19..... þannig að nú kúrum við í þögninni hehehe
Heyrumst á Skype fljótlega :-)
kv
Kristín E.
Ég kemst ekki upp með að fara sjaldan í litun og klippingu þar sem ég tók að mér að vera gráhærð fyrir alla heimsbyggðina !!!! Amma Dúa og amma Malla - já takk ég tek þetta að mér :)
Sendi knús frá klakanum tihi
kv. Malla
Já þú varst frábær að leita í allri tunnuni að afsláttarmiða. Mjög þýsk :)
Klem frá Margréti <3
Sama gránan hér, og furðulegt að við Malla skulum toppa mömmu hvað þetta varðar :) Væri sko til í að koma með þér á jólamarkaði!! Aldrei að vita nema við stelum Margréti í mat um helgina, erum að kanna málið. Hafið það gott, nú styttist heldur betur í að við sjáum ykkur!!
...er nokkuð gamla tölvan biluð aftur! Þegar maður situr og vinnur við tölvuna frá morgni til kvölds er ægilega gaman að lesa nýtt blogg!! En þú hefur kannski bara engan tíma í það þessa dagana.
Vona að allt sé gott að frétta.
Bestu kveðjur, Svanhildur
Post a Comment