Já loks aftur smá pikk á bloggið. Maður er svo oft á skæpinu og Facebook að bloggið verður útundan.
En nú hef ég góðar fréttir að segja. Fer ekki í uppskurð á næstunni. Sem er reyndar bæði gott og slæmt--því ég ætlaði að dvelja í sjúkrafríinu heima á Íslandi. En held nú samt að þetta séu góðar fréttir. Hehe.
Fór í gær til yfirlæknisins á sjúkrahúsinu í Gifhorn. Hann segir að ég geti jafnvel haldið þetta út næstu árin EF ég verði dugleg að gera æfingar og nota hormón. Það þurfi að byggja upp mína vaginu, sem sé með afskaplega þunna veggi. Eitthvað sagði hann um 1 og 1/2 millimeter þykkt og svo væri blaðran ofan við það og ekki furða þó henni væri ekki haldið af svona þunnum vegg.
Hringdi í lækninn minn í dag og fæ þessi hormón á morgun. Og svo er bara að gera æfingar--oft á dag. Hm--ég sem er SVO góð í slíku--en til mikils er að vinna.
Fer svo í bakskóla eftir áramót.
Hér er vetrarríki frá því um helgina. það var yndislega fallegt í morgun. Smá sól og hvítt yfir. Hann þurfti nú samt að eyðileggja hluta af ánægjunni með þvi að koma með hláku seinni partinn á sunnudaginn eftir að hann var búinn að snjóa svo flott, og svo fraus-og svo snjóaði. En ekki má ég kvarta miðað við ykkur heima. það er nú meiri glæran hjá ykkur um allt.
Við hjón mokuðum gangstéttina og bílaplanið á sunnudaginn eftir að Arthur við hliðina var búinn að skafa fyrr um morguninn. Já, gott að eiga góða granna. Það var hressandi að vinna úti og okkur veitir ekki af að fara oftar út.
Við áttum rólega helgi. Ég bakaði eplaköku og sauð eplagraut. Við hlustuðu á jólatónlist og sátum á sófanum og slöppuðum af.
Reyndar fór ég á fö.kvöldið að hlusta á rithöfund lesa úr nýjum krimma. Þessi kall er hundleiðinlegur, en systir hans er vinkona Frau Kühle svo við mættum. Og það er alltaf gaman að sitja í Antik-kaffihúsinu og horfa á fallegu hlutina í kring um sig.
Var tvo morgna hjá Frau Kühle að taka í gegn vinnuherbergið hennar. Henda ýmsu og bera annað upp á loft. Tók slatta með af rusli og gat troðið í mína ruslatunnu--hehe. Já, alltaf nóg af drasli alls staðar.
Nóg að gera auðvitað, en alltaf þörf á afslöppun inn á milli. Er ekki búin að pakka niður í töskurnar eins ótrúlegt og það nú er------hehe.
Miðstöðin er að ergja okkur. Það kom maður að líta á hana og fann ekkert. Það kom svo reikningur uppá 75 evrur. Ég hringdi í yfirmanninn, sem ætlaði að ath þetta betur og hafa samband. En ekkert heyrðist í honum. Svo ég fór aftur í símann í dag. Annar þeirra, sem gert hafa við miðstöðina undanfarin ár, sagði mér svo að þetta væri mjög sennilega það sama og kom uppá fyrir einum 6 árum. Akkurat það, sem við erum búin að segja. Og hann pantaði stykkið og nú bíðum við eftir að það komi. Hér er oft eins og þyrla fari í gang á háaloftinu.
Við Sonia erum búnar að baka danskar piparkökur. Hún fékk slatta með heim. Voða ánægð með það. Gaf nágrannakonu, Caro, líka eitthvað þegar hún átti afmæli um helgina.
Annars er hér ekki bakað nema Heimilisfriður til að fara með í skólann og slíkt.
Mest komið af jólagjöfunum. Fór til BS/Watenbüttel á mið. í siðustu viku. Ein af kennurunum býr þar og tók mig með. Fer svo aftur með henni á morgun. Og heim með Klaus þegar hann er búinn í sjúkraþjálfun.
Dagurinn þyrfti að vera miklu lengri-- þvi Susanne er í bænum og vill gjarnan hitta mig,- og ein vinkona mín er í námi í BS og við ætlum pottþétt að hittast---og svo versla og versla ---- hehe.
Jæja. Klaus loks kominn heim í kvöldmat og te. Bestu kveðjur frá undirritaðri, sem gerði heiðarlega tilraun til að brjóta á sér nefið og gleraugun með þvi að ganga á slá á skólalóðinni í dag í gæslutímanum. En--er bara rauð og smá aum, en ekert brotið.
Hafið það sem best---
ÉG FER AÐ KOMA hahahaha tarllatralla lalalalala :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
<3 og Klem frá Margréti :)
Gott að þú þurfir ekki í aðgerðina :). Nú styttist heldur betur í ykkur, ég hlakka svo til að hitta ykkur :D
Þú verður vonandi ekki eins og rúdolf á jólunum með rautt nef tihi. Kv. Malla
Hlökkum til að sjá ykkur!
Skemmtileg lýsing á vaginu-vandamálum, svona á aðventunni finnst Viktoríu frænku - hahaha!
Nú verða það æfingar kvölds og morgna!!!
Sjáumst :)
Post a Comment