Loksins loksins--komin í mína gömlu stellingu og farin að blogga. Geri fastlega ráð fyrir að þið hafið saknað mín. Og nú er janúar að kveðja og svo sannarlega margt búið að gerast. Maður veit ekki hvar byrja skal.
Jú--á því að þakka ykkur öllum fyrir góðar stundir á Íslandi.
Það voru allt of margir, sem ég get ekki séð. Hringdi ekki einu sinni í, og þrátt fyrir góðan ásetning er ég ekki búin að þvi enn. En það er efst a langa listanum.
Það var frábært að vera heima með fjölskyldunni. Vera með mömmu og pabba, sem eru farin að eldast mikið. Ekki jafn mikill kraftur í þeim og áður. Hver veit hvað jólin eru mörg, sem þau eiga eftir og hvar við litla fjölskyldan á Vorfeldweg erum. Svo þetta var ómetanlegt og ógleymanlegt.
Og auðvitað gekk mamma fram af sér við bakstur og tiltekt.
Hún var slæm í bakinu í nokkra daga og fékk svo aftur verki í janúar. En þið, sem þekkið mömmu vel, vitið að -það er ekkert að mér--er hennar setning.
Það eina, sem skyggir á, er að samvinnan hjá AB og Margréti var ekki eins og þær höfðu hugsað sér.. AB sagði henni því að best væri að hún hætti bara, þar sem hún væri farin að hugsa mest um háskólanámið, og hún myndi redda þessu án hennar. Margrét bauðst til að vera út janúar, og koma hverær sem á hennar aðstöð væri þörf, en þetta virðist allt ganga án hennar hjálpar. Svo Margrét flutti út 14.1. þegar HÍ byrjaði og var hjá Þórdísi í nokkra daga.
Er svo komin í þvílíkan lúxus hjá foreldrum Svanhildar. Fær að borða með Kötu og Ástþóri, nota baðið með þeim, sjónvarp og nettengingu. Er með sér vask og klósett fyrir utan herbergi með fínum hirslum. Og ekki kostar þetta mikið. Þau eiga svo sannarlega eitthvað inni hjá mér.
Það er svo óendanlega gott að vita af henni hjá folki, sem hugsar vel um hana og sambúðin er hin besta. Greinilegt að við Kata erum svona ömmutípur báðar. Eitthvað líkar. Allavega geta þær Margrét tekið góða kvöldstund í að spjalla saman.
Svo eru vinkonur og vinir farin að tilkynna um heimsóknir til Íslands og Margrét getur nú tekið á móti gestum og látið gista-- með samþykki Kötu auðvitað--og auðvitað verða þá matvæli keypt af Margréti.
Í febrúar koma 3 frá Noregi. Vona að sem flestir komi til með að kynnast þeim. Þær fengu íbúð á leygu. Verða í viku. Thea, vinkona hennar úr kórnum. Kari og dóttir hennar- frábær kona, sem syngur eins og engill og er bara eins og hress engill :)
Hún bjó í nokkur ár í Danmörk og talar lýtalausa dönsku. Sem sagt Diddi--er ekki heimboð í pottinn hjá ykkur fyrir hresst lið! Veit að þið Sigyn mynduð fíla Kari í botn.--ekki af því að ég sé að skipuleggja fyrir Margréti--ég vil bara segja hvað Kari sé frábær!!!! :)
Og svo ætlar Maria gamla skólasystir hennar að koma.
Ég held að Margrét verði "pottþétt" næstu árin heima á Íslandi því það verður svo mikið um að vera. Og svo er hún komin í háskólakórinn og það er fjör. Eftir prólok er hringferð með kórnum un landið.
Af Arnhildi minni er líka hið besta að frétta. Hún er hress og kát. Ákveðin í að klára stúdentinn og fór í Símennt og fær aðstoð til að ljúka þessum tveimur fögum, sem hún á eftir.
Það var ekki beint leiðinlegt að vera með þeim systrum og barnabarninu og skreyta og elda. Arnhildur sá um kalkúninn á gamlársdag. Hann var svo fluttur í potti til Affíar og við vorum öll saman að borða og fagna áramótunum. Rosa flottur matur með ýmsu girnilegu. T.d. bakstri úr sætum kartöflum með sykri og Cornflakes--jummí! Sætt !
Við vorum hjá mömmu og pabba á aðfangadag. það er einn af fáum aðfangadögum, sem þau hafa ekki verið hjá Affí. Tími til kominn að hún hafi minna um að vera blessunin. En ekki bað hún um það-öðrunær.
Það yrði langt mál að telja upp allt það skemmtilega sem við gerðum. Það er líka bara skemmtilegast að vera með fólkinu sinu.
Aldís Dagmar útskrifaðist úr VMA og við mættum beint í veislu eða svo til. Gaman og góð súpa--góðar kökur! Flott stelpa og á eftir að spjara sig.
Eyddum seinni parti á Báu könnunni með henni, dætrunum mínum, manni, og KD. Ummm-terturnar þar.--
Áttum yndislega stund hjá Þorgerði og Gilla með hinum Steinahlíðarskvísunum. Vorum í "systkynaboðinu" hennar Lillu--þó ég sé ekki systir hennar--hehe-svona er stundum stjanað við mann af þeirri einu ástæðu að stundirnar eru svo fáar, sem ég er heima.
Ég gat heimsótt Helgu Sig. Fékk Jón og Helgu í heimsókn, og Diddu, Eika og Ásu frænku.----
Voða flott kaffi hjá Birnu frænku og hellingur af fólki þar, sem gaman var að hitta. Kvöldmatur hjá Didda með Ninu, Svend og Bibbu sem heiðursgesti--.
Þórdís dreif í að við fjórir arnarungarnir, sem stödd vorum á höfuðborgarsvæðinu, borðuðum saman. Það var frábært að vera með báðum bræðrunum og henni og afkomendum og mökum. Yndislegt kvöld og hún á mikla þökk skilið
Því miður snéri Svanhildur mágkona upp á öklann á sér og gat eki komið. Verulega ergilegt. En Ástþór var ekki í vandræðum með að vera fulltrúi fyrir móður sina. Hann er alveg dásamlegur þessi drengur og þvílíkt gaman að vera nærri honum-og auðvtað líka þeim litla--rúsínunni honum Arnaldi.
Til allrar lukku gátum við heimsótt Svanhildi áður en við lögðum af stað norður í sumarfærðinni.
Já, það eru ekki smá skemmtilegir krakkar í þessari fjölskyldu og ég vildi svo gjarnan vera nærri ykkur öllum.
Það var meiningin að koma um páskana, en nú ég farin að vandræðast með það. Kannski ég komi aftur í vor ---- það er ekki slæmt að borga tvær ferðir, en ég myndi akkurat fljúga heim straks eftir páskana og það er geðveikt dýrt!!! Svo það er spurning um hvort ég eigi að gera þetta eða nota peninginn í sumarfríið og gera eitthvað með Klaus líka. Hann varð náttúrlega útundan í þessu fríi kallgreyið. Eða fara með honum í annað svona páskafrí eins og í fyrra, sem lukkaðist rosa vel--sé til.
Jæja--er farin að sjá tvöfalt og hætti að sinni. Er enn lasin af kvefi, en ekki neitt verulega slæm.
Klaus á leiðinni til læknis. Vona að hann geti gefið honum eitthvað við þrálátum hósta, sem hefur kvalið hann í bráðum 3 vikur.
Hafið það gott-- og vonandi mörg kvitt. Og nú er ég aftur komin í stuð!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Mikið er gaman að finna hér aftur blogg.... eftir langa bið :) og ekki er ég að næturvakta núna, er að vinna til 9 í kvöld en í smá klúðri í skipulagningu er ég á næturvakt næsta laugardagskvöld.... úrslitakvöldið í vali á íslenska Eurovision-laginu í ár. Vona bara að hér verði rólegt og að sjónvarpið hér verði stillt, stundum heyrist ekkert í því :S hehehe
Takk fyrir blogg elsku frænka og takk fyrir skemmtilegar samverustundir í Íslandsfríinu ykkar :)
Knús og kossar og bið að heilsa Klaus :D
Stuð, stuð, stuð ;) Þú veist ekki hvað ég er oft búin að opna bloggið og kíkja eftir nýjum fréttum. Ég myndi koma í vor og fara í rómóferð með Klaus um páskana. kv. Malla
Gaman að lesa. Ég enn fótalaus, alveg hræðilegt...Soffía frænka er sko alveg búin að þagga niður í Pollýönnu í hausnum á mér.
Gott að geta orðið Margréti að liði.
Bestu kveðjur til ykkar Klaus (sem vonandi fer að lagast af þessum hósta). Svanhildur
Flott að þú sért búin að blogga aftur móðir góð! Knús, litla Margrét ;)
Jeij- nú getur maður farið að kíkja hér inn aftur annað slagið. Náði ekki skype helgina sem við ræddum um, held við höfum báðar legið lasnar hvort sem er, go við reynum síðar!!
Post a Comment