Sunday, February 3, 2013

Febrúar tekinn við.

Sunnudagur. Frekar hvasst og sólarlaust. En ekki frost. Enn ein vikan horfin og ný að byrja og styttist í vorið. Heilsan hjá okkur hjónakornum að lagast. Klaus hóstar enn. Miklu minna og styttra samt. Hann fer í vinnuna á morgun og ég í mína. Ekkert varð úr eldhúsmálningu eða slíku, en það koma helgar eftir þessa helgi.
Einhverju kom ég samt í verk. Fór í gegn um litla kómmóðu í vinnuherberginu og henti helling af upplýsingum um megrunarfæði og íþróttaæfingar. Hef ekki litið á þessar æfingar í mörg ár og mun örugglega ekki gera það á næstunni hehe. Enda finnur maður allt nú til dags á netinu.

Gúllasið mallar í pottinum. Ekki hefur verið eldað mikið undanfarið. Í gær gerði ég salat, sem var æðislegt. Hef ekki búið það til svo lengi. Svona þegar mig vantar dæturnar til að hugsa um hollustuna :)
Ætla síðan að fara í fataskápinn og ath hvort öll rúmfötin séu í lagi eða eitthvað, sem henda megi. Keypti kassa með rennilási frá Tchibo--auðvitað aðalkassamerkið mitt-dætur minar vita hvað ég elska kassa og box --heheh, og kannski mér takist að koma röð og reglu á fatnð, sem er ekki notaður nema af og til.

Á fö.morguninn skrapp ég með gamla þorpsskólaliðinu til Kerstin, sem kenndi þar líka. Við áttum ágætis morgun hjá henni og margar minningar rifjaðarð upp.
Það er ótrúlegt hvað það er langt síðan Margrét byrjaði í skóla og hversu lengi ég er búin að vinna hérna.
Og ekki mörg ár í að þessu tímabili ljúki. 4 ár í að Klaus hætti, og það verður spennandi að sjá hvað þá tekur við.

Ég er byrjuð í bakskóla á máundögum. Það er mesta púl og mikið hefur maður gott af þessu. Ergilegt að missa af tímanum síðasta mánudag. Kannski ég komi mér í jóga aftur þegar bakskólinn hættir eftir 10 tíma námskeiðið. Er svona rétt byrjuð að sauma aftur. Bjó til poka uatn um tissupakka, sem er ekki alveg fullkominn haha. Og er að sauma innkaupapoka úr gömlu pilsi. Ekki hjálp í því að vera slappur og lasinn en nú hlýtur þessari törn að vera lokið. Áfram og hærra !!!
Það er boðið upp á stutt námskeið fyrir byrjendur í bútasaumi hjá þessari sömu og ég var hjá fyrir14 mánuðum. Kannski ég ætti bara að skella mér til hennar.
Gott að vera með einhvern, sem ýtir manni í gang.

Hef ekki unnið neitt með Frau Kühle undanfarið í hennar drasli. Hún fékk nú dót ofan í hausinn eina nóttina. Var búin að setja skáp ofan á skáp og dót þar ofaná, -inni í svefnherberginu, og þetta lét sig og hún má þakka fyrir að ekki fór verr. Er með risa glóðarauga og mar hér og þar, og rosalegt að sjá hana. Hefði kannski átt að henda einhverju fyrr um dagana. Og ég ætla sem sé ekki að láta fara svona fyrir mér hahaha.

Klaus situr framan við sjónvarpið. Vetraríþróttir hverja helgi frá morgni til kvölds. Ég er ekki í þeirri deild en Margrét væri til í að vera hér og horfa á með honum.
Hún er að syngja í dag í fyrsta sinn með Háskólakórnum og var spennt. Kórfélagsskapur er góður félgsskapur og flott að hún og Eiríkur Hákon skuli vilja vera í kór.

Ég held ég komi ekki um páskana og fara kannski frekar til Dresden eða Leipzig með kallinum mínum. Hann fær svo að taka til hendinni á háaloftinu með mér. Sem sé frí og vinna til skiftis.
Það er svo mikið að gera hjá Margréti að hún kemst ekki yfir að hugsa um fleiri  "gesti".
Jæja, þessari dagbókarfærslu er þá lokið í bili---
Vona að það fari að koma myndir hjá Svanhildi.  Hlakka til að sjá meira.
Hafið það sem allra best og njótið tilverunnar sem mest þið megið.






3 comments:

Anonymous said...

Gott að þið eruð að hressast :) Fór í skemmtilega skautaferð með Þorgerði og co í dag, ég bauð Margréti með en hún var bissý með kórnum. Gott að hún hefur nóg fyrir stafni. Kv. Malla

Anonymous said...

kvitti kvitt. knúsí knús
Magga Tagga :)

Anonymous said...

Vona að allt sé á uppleið hjá ykkur. Ég er eiginlega sjálf farin að vonast eftir nýjum myndum líka, en ætli það verði ekki einhver bið á þeim samt þar sem myndavélin tekur ekki nothæfar myndir innan dyra...þar sem ég dvel að mestu! Eitthvað gæti orðið í að ég dragi þá feðga með mér í göngutúr og þess háttar...vona að þessi liðbönd verði með mér í liði næstu vikurnar.

Bestu kveðjur, Svanhildur