Monday, February 18, 2013

Þokudagar.

Þá er enn og aftur kominn mánudagur. Tíminn líður og styttist í vorið. Hér bólar samt ekki á vorkomu og í nótt á aftur að vera frost og jafnvel snjókoma á morgun. En við því er ekkert að gera og best að taka þessu vel og hlakka til vorkomunnar, sem mun allavega koma fyrr en hjá ykkur heima svo best er að vera ekki að kvarta.
Ramona er komin heim af sjúkrahúsinu. Það eina, sem þeir finna út, er að hún sé með "Kreislaufdysregulation"--blóðrásartruflun--. Eiginlega engin niðurstaða. Hún á að passa sig vel að borða nóg af salti og ekki verða svöng.Og svo er hún að leita að vinnu, sem ekki gengur vel.Stress í vinnu er ekki gott. Hún gæti ekki fengið vinnu í öðru landi, því þetta nám hér er ekki viðurkennt annars staðar. Ekki stúdentspróf hvað þá háskólanám.

Klaus var á ferðinni í 2 daga, en kom heim um kvöldið. Það er rosalega mikið að gera já honum. En hann kom mér á óvart um helgina með því að vinna í því að sortera pappíra , sem eru að fyllla vinnuherbergið okkar. Henti fullum haldapoka af pappír. Ég tók allt vel í gegn. Þvoði yfir borðið, sem var svo fullt af ryki að það mátti skrifa í það  :). Þið sjáið hvað ég er góð húsmóðir af eftirfarandi dæmi- þurkaði af í hillu, sem standur við gestarúmið-og fann þar afgang af M&M, sem Arnhildur hafði geymt þar í september !
Svo tók ég gólfin uppi í gegn og þurkaði af í herbergi Margrétar.

Vann mikið fyrir skólann í síðustu viku. Bjó til fullt af skapalónum eftir að ég var búin að fara í gegn um helling af föndurblöðum og skoða á netinu. Svo vann ég tvo tíma sem forfallakennari á fö. Margir kennarar veikir og fullt af krökkum mættu ekki. Frau Kühle orðin lasin. Svo ekki fer ég að aðstoða hana í tiltektinni í þessari viku.

Skrapp til Gifhorn og hitti vinkonu mína, Kerstin. Skoðuðum nýja verslun, sem selur efni. Frábær efni og æðisleg teppi, sem fyrirtækið lánaði til að hengja upp og auglýsa þar með efnin. Stóðast samt freystinguna að kaupa efni þvi ég á slatta, sem ég verð fyrst að sauma úr. Meterinn kostar um 22 evrur, sem er ekki gefið. Væri gaman að vita hvað flott efni kosta heima.
Við Kerstin settumst inn á kaffihús og það var notalegt að vera á þvæling í bænum. Hef ekki komist til BS í 2 mánuði og það er alveg kominn tími á að fara þangað.
Mætti loks á söngæfingu á fim. og er búin að læra öll lögin bara nokkuð vel. En á eftir að læra taxtann. Er svo gleymin  :).

Margrét á ekki erfitt með að læra texta. Eins og ég hér áður fyrr. Hún var að syngja í Neskirkju um helgina. Nóg að gera hjá henni. Vann í Tiger 3 daga í röð. Og svo er hún að læra og vinna verkefni og taka próf. Bara gott að frétta af henni.
Arnhildur líka á fullu. Próf framundan og skil á verkefnum. Dæmatímar líka. Gott að hún hefur Gunna vin sinn til að fara í stærðfræðina með sér. Hún hringdi í mig í gær til að segja mér að Viktoría systir Helga væri dáin. Hún er búin að stríða við krabbamein í ein 3 ár. Þeir komust fyrir brjóstakrabbann en svo tók hann sig upp aftur-held annars staðar. Og hún fór mjög skyndilega. Það er sorglegt þegar fókk fer svona ungt.
En minnir okkur á að við eigum ekki ótakmarkaðan tíma og eins gott að nota hann vel.
Og nota hann með fjölskyldu og vinum og njóta allra samverustundannna. Ekkert er eins mikilvægt og tíminn okkar með börnunum okkar og þeim, sem okkur þykir vænt um.
Og maður ætti ekki að vera að hneikslast á hugsanlegum göllum anarra og velta sér upp úr þvi að þessi eða hinn hafi ekki geta staðið sig í einhverju,heldur bara þykja vænt um hann-- án þess að dæma og án þess að ætlast til nokkurs-- bara vera til staðar fyrir ættingjana. Allir hafa galla og við sjálf líka.
Hafa samband- hringja- heimsækja hvern annan. Það skiftir máli.

Vildi vera nærri ykkur en mín aðferð er að nálgast ykkur með Facebook, Skæpi og Bloggi. Og hugurinn er svo sannarlega hjá ykkur.
Enda þessar pælingar með mikilvægri frétt  hahahaha --ég átti ekki í litlum erfiðleikum með að ná eyrnalokkunum úr mér--hélt sko að maður þyrfti að kreysta festinguna saman og toga í um leið--hahaha. Allt stóð blífast. Þar til ég skoðaði hina lokkana --og gat loks togað festinguna af. Snillingur Og kom svo nýju lokkunum í án mikilla vandræða.
Já, maður getur ýmislegt á gamals aldri. 
Ástarkveðjur og góða vinnuviku og hafið það ávallt sem best.


5 comments:

Anonymous said...

Já maður þarf að njóta líðandi stundar, svo satt og rétt. Við erum að fara til Ak í skíðaferð - njóta saman, að vísu er ÁE ekkert spennt fyrir þessari skíðaferð, hún verður með mömmu og pabba í vinnunni, en það verður gaman fyrir hana líka :) Hlakka mikið til!!
kv. Malla

Anonymous said...

Elsku Áslaug.
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt.

Skrifaði þér nokkrar línur á gamla netfangið þitt, vona að þú getir enn lesið póstinn þinn.
Láttu mig vita hvort þú getir séð hann.

Kv. Hildur frænka

Þorgerður said...

Leitt að heyra með Viktoríu. Verið að jarða pabba Stefaniú bestu vinkonu Hildar (sem var með henni í Asíuferðinni) á morgun, svo við frestuðum norðurferð og förum eftir jarðarförina á morgun í staðinn. Svo Össi losnar við mágkonu sína í bili, getur notið þess að vera einn í Steinahlíðinni - haha! Vonandi næ ég að skíða eitthvað með þeim! Hann var fæddur ´60 og greindist með krabba í lok nóvember, svo það tók ekki langan tíma hjá honum. Svona er víst þetta blessaða líf. Væri gaman að ná skype-spjalli, tek ipadinn með mér norður!!
Við heyrum ekkert í Margréti síðan það fór að vera nóg að gera hjá henni, vonandi er hún hress og spræk.
Heyrumst og sjáumst vonandi sem fyrst :)

Anonymous said...

Þokan líka náð til okkar, maður skilur nú ekki alveg í þessu "vetrarveðri" lengur.
Hér er ekki mikið úrval af efnum...það er eiginlega sama hvað maður ætlar að sauma - alltaf bent á sömu efnin, og þau kosta sitt. Bútasaumsefni í föndur og handavinnubúðum eru líka frekar dýr en bjargar því að þar er maður bara að kaupa svona bút og bút!

Bestu kv. Svanhildur

Anonymous said...

Er á næturvakt og svo ánægð að finna blogg :)
Fékk elsku Margréti þína í heimsókn í gær og Ássý frænku í afmæliskaffi, ekki lítið gaman. Vissi að Ássý var ekki með neitt planað afmælisboð og þar sem systur mínar voru fyrir norðan ákvað ég að græja þetta, voða gaman :)
Sendi ykkur knús í veturinn, hér er bara vorlegt en er voðalega hrædd um að runnarnir mínir sem eru að byrja að laufgast fari illa.... það er víst enn febrúar :S
kveðja
Kristín E.