Yndislegt að vakna og sjá engan snjó og ekki slyddu út um gluggana. Þessi vetur er ekki búinn að vera skemmtilegur. Snjórinn hefur svo sem ekki verið svo slæmur, en dimman er leiðinleg. Það hefur ekki verið svona lítið af sólarstundum í 40 ár hér í Germaníu. Við getum lítið farið út með krakkana í gæslunni. Það er svo blautt og kalt. Þau hafa ekkert við að vera nema fara í fótbolta í svona veðri.
Þá er að gera það notalegt inni. Við erum að mála á litla blómapotta, og búa til annað hvort hænu eða nota pottinn til að setja fræ í. Og svo bjuggum við til einfalda fulga og máluðum fiska á pappadiska. Rakst á þetta á netinu og fannst svo einfalt og flott. Ég má víst ekki birta myndir af föndri krakkanna því myndirnar væri "eign" skólans en ætla samt að gera það við tækifæri. Treysti því að þið hringið ekki í kólastjórann haha.
Klaus er búinn að fara í lugnaröntgen myndatöku. Allt í lagi með lungun. En læknirinn sagðist ekki skilja af hverju hann hóstaði enn. Hann fer til heimilslæknisins bráðum og fær að vita hvað kom út úr blóðsýninu..
Ég var frekar slöpp á sunnudaginn. Fékk smá verki í bakið, en það varð ekkert alvarlegt úr því sem betur fer. Finnst gott að fara í bakskólann og ætla að halda áfram að fara í bakskóla þegar námskeiðið hættir. Hægt að kaupa sér kort og mæta á þriðjudagöum.
Er ferlega léleg að gera æfingar heima. Reyni að fá Klaus í það með mér, en að gengur ekki vel--hehe. Við reyndar drifum okkur út í hríð og kulda um helgina og vorum ansi ánægð með okkur þegar við komum heim eftir 45 min labb.
Svo er kominn hjólaþrá í mig--verð að fara í hjóltúr og hreyfa mig--er komin með öll kílóin, sem fóru í fyrra og ekki er það nú gott :).
Það er ótrúlegt hvað tíminn líður. Það voru komnir meira en 3 mánuðir frá því ég sá Danielu og álíka frá því ég sá Susanne mágkonu síðast. Og við búum í 35 mín fjarlægð eða um það bil.
Hef ekki komist til BS að dunda mér frá því í byrjun desember. Bílinn bilaður, Klaus og ég lasin, hálka, --.
Svo ég dreif mig í gær og byrjaði á að hitta þær mæðgur á nýju kaffihúsi i bænum. Áttum þar fína stund og svo löbbuðum við í Magnihverfið. Þar er gamla, góða tebúðin mín núna--því miður því þetta er svolítð út úr mínum vanalegu göngutúrum. Nú á ég aftur mitt yndislega Earl Grey te með appelsínubitum. Frábært.
Svo skildi ég við þær og naut þess að þvælast um.
Það eru ýmsir hlutir, sem ekki fást hér. Fyllti auðvitað keruna mína,- hækjuna nýju, af hinu og þessu.
Rúsínur frá Californiu, Speltmüsli, teið, handsápa,-rykkústur haha-, nammi handa Arnhildi og AD, (Jelly Bells), --.
Og auðvitað féll ég fyrir einhverju sem ég ætlaði ekki að kaupa. Rakst á hliðartösku-frekar litla og létta. Í nýja tískulitnum-nude-, og keypti um leið :). Þarf ekki stórt veski þegar ég er með hækjuna en samt eitthvað undir peningana og símann og fleira.
Fór reyndar í mjög stutta ferð með Frau Kühle til BS. Hún ætlaði í ljósameðferð, en þá var lokað. Við drifum okkur bara til Ikea. Ég keypti blómlauka, sem eru að springa út. Það er angandi lykt af hyazintunum þegar maður kemur inn í stofuna. Og svo fór ég til Heilpraktiker fyrir helgi. Komst ekki í bæinn á undan því ég fékk far með einni úr skólanum, sem bauð mér í kaffi. Og það er nú mikilvægara að vera í sambandi við fólk en að þvælast í bænum. Hún býr rétt hjá Frau Hogendorn, svo ég var hjá henni þar til ég átti að mæta.
Tók svo strætó til Watenbüttel eins og í gamla daga, og Klaus tók mig með heim.
Á laugardaginn er handavinnumarkaður í BS. Fer með Kerstin vinkonu minni. Kíkti á efni í gær í Karstadt.
Svanhildur segir að efni séu dýr og ekki mikið úrval. Sá að einlit efni , bómull, kosta frá 7-12 evrur. Flottu efnin frá Tilda kosta um 22-23 evrur. Og svo er hægt að finna flott efni á 15-18 evrur.
Ef einhver vill þá er ég meira en til í að finna efni og kaupa fyrir ykkur. Get byrjað með að sýna ykkur efnin mín á skæpinu og leita svo að líkum efnum ef þið sjáið eitthvað flott.
Hef áhyggjur af henni Svanhildi minni. Þetta vesen með fótinn er búið að standa óþolandi lengi og vera erfitt . Og svo er hún kannski kviðslitin í þokkabót. Hugurinn oft hjá henni. Og auðvitað þessum rúsínu frændum mínum. Margrét ætlaði að heimsækja þau um helgina, en þá voru þau akkurat upptekin. Hún er bara búin að koma einu sinni eftir jól (held ég) til þeirra en til allra lukku hefur hún hitt liðið hjá Kötu og Ástþóri. Já. það er allt í einu komin háskólaskvísa, sem er á fullu að ná því upp, sem íslenskir unglingar hafa gert á menntaskólaárunum. Svo ekki er nema von að Margrét sé eins og fullbókuð flugvél þegar maður tekur líka með í reikninginn að hún vinnur stundum 3 daga í viku. Að ekki sé talað um kórahelgi og svo heimsókn frá Norge--og --og --og :)
En þetta er gott og blessað og eðlilegt. Henni líður rosalega vel hjá Kötu, sem er henni eins og besta móðir.
Allt er á besta veg. Búin að taka tvö próf heima við tölvuna og fékk yfir 9 í báðum.
Jæja. Þetta er að verða langloka og best að slá botninn í þetta að sinni. Reyni ekki að segja ltilu dótturinni að ég hafi skrifað nýtt blogg-- hún kemst ekki yfir að lesa þau. Öðruvísi mér áður brá-haha. Þakka ykkur þessum tryggu lesendum fyrir að vera hjá mér í huganum við að lesa mínar hugsanir.
Ég er rík að eiga ykkur öll að. Sama hvort við heyrumst oft eða sjaldan.
-- Ég held að hann ætli að birta smá til í dag--- Kannski við sjáum til sólar næstu daga.
Hafið það gott. Ykkar Áslaug .
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Vonandi að vorið sé á næsta leyti hjá ykkur.
Já, eitthvað hefur fóturinn tekið sinn tíma en sjúkraþjálfun gengur ágætlega. Og ekki reyndist þetta kviðslit en eitthvað verið að skoða málin. Vonandi að þetta komist allt í lag með hækkandi sól.
Vona að allt komi vel út hjá Klaus og bakið fari ekki að plaga þig...þú ferð varlega í vorverkin í garðinum!
Bestu kveðjur, Svanhildur
Já allt lyftist upp við birtu og sól, magnað alveg hreint. Hér er orðið nánast bjart þegar ég hjóla í vinnuna 8:45, veturinn hér í Rvík er búinn að vera snjóléttur og góður almennt. Sendi kveðjur til ykkar, Össi var að fara að stað í stráka-bústaðarferð (gáfulegt bíst ég við!!). Kv. Malla
Gott að heyra frá þér. Nú skilur Margrét kannski af hverju Hildur heyrði svona lítið í henni fyrir jól :) Frábært að það sé nóg að gera hjá henni og hún ánægð heyrist mér. Akureyrarferðin fín, hefði viljað komast meira á skíði reyndar, hlýindi og sól en bálhvasst í fjallinu. Vinna í kvöld, kóræfingar um helgina. Svo koma pabbi og mamma í næstu viku, bústaðarferð í tilefni 70 ára afmælis pabba. Hlakka til!
Góða helgi, fann ilminn af blómuum og sá fyrir mér stofuna ykkar þegar ég las bloggið... Væri meira en til í að koma til ykkar aftur í sumar!
Á leið í sveitina á eftir með pabba og mömmu. Hér er fínasta veður en á að hvessa er líður á daginn. Annars er allt í sóma og ég hlakka til næstu daga hér á Norðurlandi. Svo skilst mér á Maddí að þau verði ekki langt fyrir austan okkur í bústað svo það er ekki langt að fara ef mann langar í veislu :)
Farðu vel með þig og Klaus.
Bk Diddi
Greinilega nóg að gera hjá þér :) vildi alveg vera þarna með þér. Hér var vorlegt í febrúar en nú er komið frost og smá snjór.... og kalt rok :S en það styttist í vorið. Það verður voða gaman í bústað um helgina með öllu Steinahlíðarklaninu.
kær kveðja
Kristín E.
Post a Comment