Það er sannarlega jafn mikið rugl í veðrinu hér og heima. Sífelldar breytingar. Um helgina fengum við svolítið af sól og vorum himinsæl. Vindurinn var vel svalur, en það lét maður ekki á sig fá. Og svo kom sólin og hlýindi á mánudaginn og við nutum hvers augnabliks. Hitinn fór í um 15 stig í gær. En ekki stóð þessi dýrð lengi yfir, og í dag er dimmt. Um 7-8 stig og svalur vindur. Spáin m.a.s. að komi eigi snjór og allt að 10 stiga frost í næstu viku, ---.
En við tökum þessu með jafnaðargeði og sættum okkur við orðinn hlut.
Á laugardaginn skrapp ég til BS með Kerstin vinkonu. Lagði af stað 9.15.-Við fórum á flotta handavinnusýningu og þar var margt fallegt að sjá. Vildi svo óska að ég hefði getað keypt helling og bara sent ykkur duglegu hannirðakonunum. Það eina, sem ég keypti handa mér, var lítið búnt af fallegum efnum í brúnum og rauðum litum-rómantískt munstur. Og mér tókst að láta það liggja eftir á borðinu og kom heim efnislaus. Ergilegt og 12 evrur fóru þar fyrir lítið.
Kerstin hafði enga löngun til að fara heim þar sem hennar beið fullt af verkefnum. Og við þvældumst um í búðum og settumst inn á 2 kaffihús. Aldeilis bruðl og kæruleysi. Keypti mér 2 langerma boli, og pönnuspaða, nærföt handa kallinum og könnu frá Bodum til að flóa mjólk. Kerstin keypti og keypti og við vorum vel hlaðnar. Hún er líka komin með "hækju" enda nýuppskorin og má ekki heldur bera þungt. Svo við erum sko góðar saman.. Klukkan var um 8 er heim kom, -næstum 12 tíma að heiman--og manninum mínum fannst víst ekki voða gaman að vera einn svona lengi. Veslingurinn. Ég er nú oft ein hér til 7-jafnvel 8 á kvöldin, en ég er nú KONA !--hahaha.
T.d. kemur hann seint í kvöld. Alveg að bugast af vinnu blessaður.
Þurfti með bílinn, bláa, í skoðun í morgun. Og á leiðinni hélt ég að ég kæmi honum ekki alla leið. Hann var svo kraftlaus. Þetta hefur verið vandamál undanfarna mánuði. Svo þeir þurftu að byrja á að panta stykki og setja í hann svo hægt væri að mæla útblásturinn--ef ég skildi rétt--sem er víst núna í lagi. En kallinn frá skoðunarfyrirtækinu komst ekki yfir að skoða hann og það þarf aftur með bílinn á morgun.
Það var á við vítamínssprautu að fá sólina. Ég rauk í að taka geymsluna niðri í gegn. Og það sko almennilega. Tók gömlu Ikeahilluna út. Spaslaði í göt og málaði þann hluta geymslunnar, sem var aðgengilegur. Undir gólflistunum sér maður í steypu og rifur--illa frá gengið. Og þegar við losum um lista set ég straks í þá spasl. Mikill munur á því. Svo var ekið til Gifhorn og ég keypti hillur og festingar.
Var svo góð með mig að ég sveif á skýjum í stað þess að tékkja á hlutunum--keypti 100 cm löng bretti í hillur. Bað þá að stytta í 95, en maðurinn stytti í 90--. Svo það er nú smá bil, og Arnhildur spyr hvort ég geti ekki bara troðið Klaus í rifuna--haha. Nefndi nefnilega á facebook að ég gæti sett eitthvað í rifuna. Þetta er nú ekki svo slæmt því ég er að setja sem mest í plastkassa, sem eru reyndar fj-- dýrari. 8-14 evrur. En þeir detta nú ekki niður um litla rifur.
Er búin að setja bökunarforma í 2 kassa, plastdalla í einn, (ekki Tuppervörudót-hehe--á sko meira en bara það ), servéttur í einn (á enn svo mikið af jólaservéttum ), allt, sem tilheyrir hrærivélinni í einn kassa og svona mætti lengi telja. Vá hvað þetta verður glæsilegt þegar öll geymslan verður búin - jibbí !!! Já, er að springa af monti. Og ætla svo að bora götin og festa upp ein--en þarf fyrst að læra á borvélina.
Næstasíðasta kvöldið í bakskólanum var í þessari viku. Og svo bar ég út blöðin fyrir söfnuðinn. Vann mikið í skólanum. Já bara nóg að gera.
Fór að námskeið til Gifhorn að læra að sauma bútasaum og er ekki hress með litlu ferhyrningana. Það er alltaf svo mikill mismunur. En--ætla að setjast við þetta á sunnudaginn og þetta skal takast. Enda sagði Jimmi frændi að handavinna ætti ekki rétt á sér nema hún væri almennilega gerð.
Á laugardaginn erum við boðum í afmæliskaffi til Ritter.
Næsta vika er svo síðasta vikan fyrir páskafríið. Við stefnum á að fara til Dresden, en erum ekki búin að ath um hótel. Og svo er saumakvöld akkurat þriðjudaginn 19. Þetta eru bara 3 skifti og væri ergilegt að missa af einu.Vorum að spá í að vera sunnudag, mánudag, þriðjudag, en förum þá líklega á laugardeginum.
Ef Klaus kemst yfir að setjast niður og skoða hótel :).
Hann er allvega kominn með frí í 3 daga en ætlar að vinna 21. og 22.3.
Fékk langt bréf á netinu frá Aldís Dagmar. Gott hljóð í henni og ég vona að hún eigi eftir að una sér vel í Vogum.
Margrét á fullu eins og vanalega. Henni fannst gaman að upplifa íslenska stórhríð. Alltaf að bæta við í reynslusafnið. Og bara nokkuð gott hljóð í fólkinu í Norðrinu.
Jæja. Aftur komið nóg af minni speki í bili, og ég ætla að búa til te og fá mér hollt og gott brauð.
Klukkan orðin hálf sjö og ekki bólar á manninum mínum.
Saknaðarkveðjur til ykkar allra--og takk fyrir öll kvittin.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hæ,hæ. Hér er allt á fullu, verið að baka fyrir bústaðaferðina. Það verður fjör með 17 manns, eflaust mikið hlegið. Hlakka mikið til!!
Kveðja Malla
Sko ég lofaði þér það :)
Margrét <3
Dugleg ertu! Ekki kann ég á borvél...
Pabbi og mamma komust loksins suður um miðjan dag í gær, þau beint úr að borða með systrum hans og mökum, mikið gaman og helgið. Reikna með að það verði líka mikið hlegið um helgina. Verðum með 2 bústaði svo börnin geta skrallað í öðrum og pabbi slappað af í hinum :) Góða helgi!!
Aldeilis nóg að gera hjá þér! Spælandi með efnin en spennandi að heyra af námskeiðinu. Það er alveg rétt með handavinnuna, maður á að bera virðingu fyrir efninu og tímanum sem fer í...en allt innan skynsemismarka og sumu er jú allt í lagi að horfa fram hjá!!
Hér kom þetta vetrarskot í vikunni, snjórinn að mestu bráðnaður þannig að lítið þarf að moka heldur þrífa drullu - mold/öskurok sem barst að austan hjúpaði allt.
Vona að það fari að vora hjá ykkur.
Góða helgi og kveðjur, Svanhildur
Post a Comment