Thursday, March 21, 2013

Vetur að vorilagi.

Komið vor samkvæmt dagatalinu þýska, en ekki bólar á raunverulegu vor. Hann snjóaði hér í gærkvöldi og það bara talsvert. Nú er snjórinn mikið til horfinn, en hann er aftur byrjaður að hríða þó það sé ekki eins mikil hríð og í gær. Og samkvæmt spánni lagast þetta ekki fyrr en um páskadagana.
En þá er víst bara að gera sér dagana góða innan dyra eða drífa sig út í milda veðrið.
Var svo heppin að vinkona mín, Renate  kórstjóri, hringdi og bað mig að koma með i göngutúr og ég tók því fegins hendi. Það var um 45 mín hressileg ganga. Þar áður var ég búin að gera æfingar í 2o mín. Fara í sturtu- sem telst ekki til tíðinda, en ég notaði bæði hreinsisápu og peeling á andlitið og bar á mig Bodylotionið frá Þórdísi. Og það geri ég allt of sjadan. Fer oft í sturtu rétt áður en ég fer í vinnuna eftir að hafa hamast hér heima í einhvejru og hef þá ekki tíma í svona dútl.
Sit hér með gulrót og er að bíða eftir að danskar bollur með marsípani hitni í ofnum--haha--ekki hafa of mikla hollustu í einu.

Klaus minn fór á fætur um hálf sex í morgun og er kominn til Frankfurt. Ég vaknaði 6, og tók nokkrar myndir af snjónum, fékk mér morgunmat, lagðist aftur upp í rúm með bók, og sofnaði og fór ekki á fætur fyrr en 10.
Stundum er bara gott að hafa Klaus í vinnu og ég hef hlutina eins og ég vil  :)

Ó-nú hríðar á fullu. Hvað skyldi verða úr þessu.----.

Við erum búin að festa kaup á bíl. Hann heitir Touran. Auðvitað frá VW enda verður maður að styrkja fjölskyldu og nágranna. Kostar 20.000, tveggja ára, ekinn 15000  tæplega.
Já og sjálfskiftur. Er grár á lit. Var í eigu VW bankans,  sem notaði hann sem Leasing bíl-- -leygu/sölu--hvað sem það heitir á íslensku.
Svo hann er vel með farinn enda þarf að borga hátt gjald ef þessir bílar eru ekki í góðu lagi þegar timabilinu lýkur. Vonandi fáum við hann fyrir páska. Það þar að laga smá dæld á framstuðaranum og svo verður hann þrifinn í topp. Klaus hefur verið að stússast í að fá út peningana, sem hann erfði eftir mömmu sína, hafa samband við tryggingar og fleira svona. Frekar fyndið að sá, sem sér um tryggingarnar okkar, er fyrrverandi nágranni úr Im Moor 2. Sonur húsvarðahjónanna. Hann Marko sæti  :)
Svo ég er frá og með í dag aftur bíllaus. En það er allt í besta.
Frau Kühle ætlar að redda mér í þessa tvo læknatíma eftir helgi og svo er jú til strætó.

Í gær var Klaus í sjúkraleikfimi í BS. Hann átti --náttúrlega á síðustu stundu-eftir að undirbúa eitthvað fyrir fyrirlestrana í Frankfurt svo við gátum ekki skroppið í bæinn og fengið okkur kaffi eða slíkt. En ég fékk náðarsamlegast að fara með og skrapp í höllina og gat keypt smá . Búin að redda afmælisgjöfum handa Arnhildi minni, og keypti mér plastpott -ljórgrænan--a la Kristín Einars-til að setja potta með kryddjurtum ofan í.. Fyrir 2 potta. Og svo er sko aðaltrixið að það hanga  skæri utan á pottinum, sem eru þreföld og æði til að saxa niður jurtirnar.--Mynd seinna  :)

Skrapp tl Frau Kühle í gær og fyrradag. Sonur hennar er þar, og er að setja upp nýja skápa í eldhúsið. Það er skraulegt að sjá hvenrig hann vinnur, blessaður og til allrar hamingju kom nágranninn og sagaði út götin fyrir vaskinn og eldavélina. En alltaf gaman að skreppa á bæi.

Þriðji tíminn og síðasti í saumunum var á þriðjudaginn. En við erum svo áhugasöm að hún Jowanka bauð okkur framhalds námskeið, 3 tíma eftir páska. Og þá ætla ég að læra að sauma stjörnur og gera púða með stjörnumunstri. Það er rosa hress kall með okkur. Hann býr hér í nágrenninu. Vill endilega að við séum ekki að fara á tveimur bílum og bauð mér í kaffi í Antikkaffihúsið á sunnudaginn til að fá adressuna mína og símanúmer-hahaha. Ætli þetta sé ekki kallinn úr bollanum mínum--hahaha. Maddý-hvað heldur þú ?
En engin hætta--ég verð áfram hjá honum Klaus mínum.   :)

Eiginlega ætlaði ég að hætta í kórnum---. En Renate sagði mér áðan að ein hefði saknað mín sárt-því það væri svo gott að hafa mig við hliðina á sér--þegar ég væri búin að læra lögin væri ég svo örugg. Hm-hm--ég sem hélt að ég væri svo léleg í þessu Alti. En það er mikils virði að vera í félagssskap og ég bara verð að drösla mér á æfingar því ég er fegin að kynnast fólki og sérstaklega þær i Altinu eru æðislegar.
Ég má ekki vera svona löt og værukær!

Skæpaði við Lillu í gær og það var nú gaman að venju. Svo var ég að frétta að Þórdís væri komin með nýja tölvu og nú getum við loks skæpað án vesens. Búin að skæpa við litlu dótturina oftar en einu sinni, og við þau gömlu, og svo er eftir að hringja í Svanhildi og fá að sjá þessa dásamlegu frændur mína  :). Ég er svo léleg að hafa samband að það er ekki fyndið. Er t.d. búin að ætla mér að hringja í Hildi vinkonu í Noregi síðan í okt---, -í Ássý og fleiri.
Jæja. Þá eru þessi stykki tilbúin, sem ég hélt að væru dönsk rundstykki með birkis til að smyrja, en reyndust vera sæt með marsipanfyllingu--Klaus til lítillar ánægju. Stundum koma svona vörur í Lidl eða aðrar búðir og þá fer nú gamla af stað til að ná í  : det er danskt, det er dejligt  haha.

Hjartans kveðjur úr rólegheitunum í Meinersen. Hríðin aftur farin að róast.  Og ég stefni á sófann og sjónvarpið. Hafið það sem best.


2 comments:

Anonymous said...

Gaman að lesa bloggið þitt þegar maður er búin að koma litlum frændum í háttinn :) Þau voru einmitt að tala um það að fara að heyra í þér fljótlega aftur!
Kveðja úr Hlíðarhjalla frá Margréti <3

Anonymous said...

gott að heyra að allt er í sóma hjá þér systir. Hér er norðurferð í undirbúningi, Berlínarferð Gumma og fleira hafa samt smá forgang í dag og morgun, en vonandi verður svo farið af stað. Hér var fínt veður í gær, sól og blíða en ekki mikill lofthiti. Samt nóg til þess að Sigyn fór út að sópa tröppur og stétt. Fórum á pissastað í gærkvöldi og höfðum Gumma með. Fín stund. Verðum í sambandi systir.
Diddi