Þá er kominn föstudagur og skólinn hættur í bili. Var úti með liðið í hádeginu í glampandi sól, en töluverðum kulda. Hann má alveg vera kaldur en sólin er ómissandi. Mikið líður manni betur þegar hún skín.
Nú er ég búin með geymsluna. Hún er sko orðin flott og vonandi tekst mér að halda þessu i röð og reglu áfram.
Á bara eftir að festa upp hengi fyrir kústa og síkt.
Svo er búið að henda slatta af drasli. For út í gær með gamla strauborðið mitt, gamla bökunarforma, bauka og vöfflujárnið gamla. Það kom bíll, sem tók svona hluti.
Tók neðri hæðina í gegn í gær. Setti svo kerti í nýpússaða kertastjaka og dundaði við svona hluti.
Þetta var heilmikil törn. Og næsta verkefni er eldhúsið.
Síðasti tíminn í bakskólanum var svo á mánudaginn. Fékk mitt skýrteini svo ég geti fengið endurgreitt frá tryggingunum. Fæ einn kúrs á ári að mestu endurgreiddan.
Mætti í annan tímann í saumunum og nú gekk betur að sauma litlu bútana en í fyrra skiftið. Er búin með framhliðina á Mugrug--bollamottu. Hún er reynar stærri en þær eru oftast og ég á eftir að koma mér upp minni stærð og eigin aðferð. Þetta er rosa gaman.
Bílinn komst ekki í gegn um skoðunina. Svo nú er verið að leita að nýjum notuðum bíl. Ekki sjens að kaupa aftur svona stóran, og við erum að leita að VW Golf Extra. Hann er eitthvað stærri. Búin að sjá nokkra á netinu og þurfum að fara að skoða á sölunum. Ekkert verður því úr Dresden ferð að sinni. Eins gott að við pöntuðum ekki gistingu. Klaus búinn að vera á mínum litla rauð síðan ég fór með bláa á verkstæðið og ég komst ekki einu sinni í krabbameinsskoðun fyrir viku því þrátt fyrir viðgerðina daginn áður í sambandi við orkuleysið, missti hann aftur allan kraft á fö. Akkurat þegar ég var að leggja af stað . Svo ég fékk tímanum breytt og fer rétt fyrir páska og það sama að segja um skoðun hjá heimilislækninum mínum.
Á sunnudaginn vorum við hjá Ritter í afmæliskaffi. Það snjóaði alllan daginn og var renningur. Ég smá stressuð á heilsársdekkjunum, en hann Klaus minn er nú góður bílstjóri og gat ekið litla rauð snilldarlega í hálkunni. Við runnum oft til við ljósin í bænum á bakaleiðinni. Og það var gott að komamst út úr bænum þar sem meira var frosið.
Það var ágætt að hitta fólk og spjalla.
Hér er enn snjó yfir og frost á næturnar og fór ma.s. í 13 sig her í viknunni einn morguninn. Setti grienar yfir blessuð blómin, sem voru farin að stinga upp hausnum. Kro´skussar og tulipamar og páskaliljur--.
Vonast er til að hann hlýni eitthvað eftir helgina.
Margrét þrælhress. Hafði samband við Ássý, og heimsótti hana, og við Þórdisi og fór þangað í kvöldmat. Þessa helgi ætlar hún að hitta Möllu. Og var nýlega hjá Kristínu.Var á tískusýningunni hjá Munda. Búin að hafa samband við Svanhildi og vonandi hefur Svanhildur tíma á næstunni. Það er svo oft mikið að gera hjá fólki heima.Sem er nú aldeilis gott. Nú eru Kristín og Þorgerður farnar norður. Öfunda þær náttúrlega.
Svo var daman í partýi. Að syngja á kynningardögum HÍ. --og --og--.
Svona á þetta að vera hjá stúdentum. :).
Arnhildur ekki eins hress. Gafst upp á náminu, og fór í gær upp á deild og verður þar um tíma. Það er erfitt með KD, sem er unglingur með meiru. Svona er það, og mest um vert að Arnhildur sæki sér aðstoð þegar á bjátar. Svo ég verð líklega ekki á ferðinni í maílok til Akureyrar, en í staðinn sennilega með Klaus í Prag.
Pabba langar mikið að koma. Margrét ætlar að koma í júníbyrjun. Eftir lok þessarar kórferðar um landið.
Þau enda á Akureyri. Kannsi þau gömlu komi bara með Margréti, en það á eftir að kanna það betur.
Ég er náttúrlega voða "fúl" út í Didda, sem ætlaði að koma í þessu ársfríi sínu--hehe--en er ekki búin að gefa upp vonina um að hann komi einhvern tíman.
Svo ég veit ekkert hvnær ég kem þá heim næst----.
Margrét reiknar með að vera næsta vetur á Íslandi. Hún ætlar að sækja um Garðana. Verður um tíma í júlí í Norge að passa krakkana. Og efa ekki að hún hlakki til þess.
Klaus fer sem sagt til Prag í vinnuferð og hann takk upp á að ég kæmi með og við gerðum okkur frí úr þessu. Maður bara á ekki orð. Ekki oft, sem hann stingur upp á svona. Þetta er i kring um Hvítasunnuna.
Ramona er hætt með kærastanum. En tekur þessu með ró. Er að leita að vinnu og það gengur illa. En einhvern tíman hlýtur að koma að þessu.Við erum boðin til Susanne eftir rúma viku í brunsh á sunnudeginum. Þau fara svo í burtu yfir páskadagana.
Ætla til Hannover seinni part næstu viku.. Eða í þar næstu viku. Fer eftir því hvort ég kemst eða er bíllaus eða get fengið skutl.
Klaus er í fríi í 3 daga og við verðum á ferðinni að skoða bíla.
Já, sumt fór öðruvísí en ég ætlaði. Hef ekki komist til að kaupa hitt og þetta , sem setja átti í næsta pakka til Íslands. En það verður þá ekki páskapakki heldur sumargjöf :)
Sat áðan úti í úlpunni og drakk kaffið mitt. Kannski ég skreppi aftur út og láti sólin skína betur á mig.
Hjartans kveðjur frá hressu geymslukonunni--hahaha.
Hafið það gott og munið að njóta hvers dags. Og þakka fyrir hann að kvöldi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Nóg að gera hjá þér! Hér er nú helst í fréttum að aumingja Ástþór Örn fótbraut sig í vikunni, settur í gifs og má ekki stíga né tilla í fótinn...þetta er stuð.
Líst vel á ferð til Prag, algjör töfraborg!
Góða helgi, Svanhildur
Var að frétta þetta með Ástþór!
Þvílík óheppni. Æ, hvað ég vorkenni honum. Kannski þið hafið tíma til að skæpa við mig um helgina og ég geit séð kappann.
Bataóskir og kærar kveðjur frá Áddu gömlu frænku.
úff ekki gott að Ástþór Örn sé fótbrotinn.... Vona að þið Klaus finnið bíl sem fyrst. Hér eru fótboltamót nánast hverja helgi, afmæli, er að hjálpa yfirmanni mínum með fermingar veislu og og og hehe. Alltaf nóg að gera :) kv. Malla
hlakka til að sjá hvernig nýji billinn verður! :)
Margrét
Knús til ykkar :) og líka knús til elsku Ástþórs Arnar, vissi ekki af fótbrotinu :S
kveðja
Kristín E. á næturvakt :)
og minni á textabrotið frá Megasi, Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.... ótrúlegt að þessi maður hafi komið þessari frábæru setningu frá sér til okkar hinna :)
Post a Comment