Thursday, March 28, 2013

Enn snjóar.

Þá eruð þið  heima komin í páskafrí og mér skilst að ekki sé amalegt  að skreppa í fjallið á Akureyri. Það er líklega margt um manninn þar þessa dagana. Og ég vona að þið njótið öll páskanna hvort sem þið sitjið heima og njótið þess að vera í fríi eða séuð á fullu á skíðum.
Hér snjóaði kröftuglega í morgun og enn eru snjókorn að falla. Okkur er farið að leiðast þetta og værum alveg sátt við að fá vorið og hlýjuna. En það er ekki í sjónmáli.
Ekkert heldur að frétta af bílnum. Á ekki von á að hann verði til í dag svo það dregst þá til þriðjudags á fá hann--eða lengur.
Komst samt að heiman í gær. Skrapp með Frau Kühle og vinkonu eldri sonarins, Christine, í Ikea. Það er komin upp eldhúsinnrétting hjá Kühle öðru megin og vantaði bara smá hluti. Stöng, króka, eina skáphurð og slíkt. Við vorum lengi að skoða enda 3 konur á ferðinni. Ætlaði að kaupa efni, en það var rosa lítið úrval.
Keypti 3 pappablómapotta með fræjum og ætla að rækta kryddjurtir í gluggakistunni. Og svo keypti ég 2 púða. Veitir ekki af þegar ég fer að sauma púða eftir páska.
Við settumst inn á teríuna og Frau Kühle splæsti á okkur kökum. Christine splæsti ís. Hann er bara góður. Hef aldrei fyrr prófað Ikeaísinn.

Annars var ég bara að prjóna og gera við og dútla við hittog þetta í gær. Var dugleg í fyrradag og tók neðri hæðina í gegn. Var hjá lækni á þr.morguninn og það var tekið blóð og lifrin athuguð. Er með típíska vatnsbólu í lifrinni, sem hefur ekki stækkað sem betur fer. Og það er allt í besta með blóðið.
Var í krabbameinsskoðun á mándaginn. Hann bara hlóg og sagðist ekkert finna, en kannski hann gæti fundið eitthvað að næst. Haha. Alltaf svo hress hann Müller minn. Sem sé allt í besta. Ég er komin niður í 30 í stað 40 í róandi lyfinu og er hress með það. Svo vonandi kemst ég niður í 20 seinna á árinu.

Hitti svo Kerstin vinkonu eftir læknisferðina. Mæltum okkur mót á kaffihúsi. Hún skutlaði mér svo heim, en Frau Kühle tók mig með í bæinn í hádeginu. Já, ekki spes gaman að  vera án bíls.
Við Kerstin röltum um og kíktum í búðir. Enduðum á að fara í  verslun, sem var að  breyta og stækka. Svona Hagkaup. Flott búð og uppáhaldstertan mín frá Svíþjóð fæst þar. Marensterta. Sem verður borðuð um páskana.
Kíktum inn í bútasaumsbúðina og Kerstin ætlar á námskeið þar um miðjan apríl og vill fá mig með. Sé til. Það er eitt kvöld--held ég- og kennt verður að sauma dúk.

Í dag er bara venjulegur dagur hér, og allt opið. Klaus sem sé að vinna. Hann á síðan langa helgi framundan, blessaður, og veitir ekki af. Ég hef svo þriðjudaginn og hver veit nema ég komist þá til Hannover, en--.
Svo hefst skólinn og maður er bundinn fram til eitt. Sem er svo sem ekkert drama.
Það eru meiri fréttirnar frá Sigurði og Svanhildi. Eftir meiðslin hjá Ástþóri rak Arnaldur sig í skilti, og fékk rosa skurð á ennið. Til allrar lukku þurfti ekki að sauma það. Og svo var Svanhildur komin í 10 manna hóp, sem var valinn úr 400 manna hópi,-sótti um sumarvinnu, en fékk ekki. Var að lesa grein á facebook um að fjölskuldumeðlimir yfirmannna hafi fengið starfið! Ömurlegt. Hvað er í gangi heima?.
Held þeir ættu þá ekkert að vekja vonir manna og bara setja sína ættingja inn án umsókna ef þetta fer svona fram hvort sem er.

Jæja. Marlies á móti pússar glugga og þvær gluggatjöld og lætur sem vorið sé á næsta leyti. Ég ætla að klára sokkana og finna mér eitthvað gera. En ekki ætla ég að þvo glugga í snjókomunni.
Hafið það gott og ég vona að næst komi góðar fréttir frá Svanhildi. Sendi  henni og köllunum hennar baráttukveðjur og vona að nú fari að birta upp þar á bæ. Og til ykkar allra, nær og fjær,  mínar bestu óskir um gleðilega páska.  FROHE OSTERN.





4 comments:

Anonymous said...

Vildum sko alveg hafa þig hérna hjá okkur mamma! Vona að þú fáir bílinn þinn tilbaka sem fyrst :)
Knús frá Margréti

Anonymous said...

Gleðilega páska!

Bestu kveðjur, Svanhildur og co.

Anonymous said...

ástarkveðjur Arnhildur :)

Anonymous said...

Er loksins að lesa páskabloggið þitt, er á næturvakt :)
Veit að bíllinn er kominn, og hlakka til að sjá myndir af grænu blómapottunum með litlu skærunum á hliðinni, hljómar spennandi :)
kv
Kristín E.