Kominn 9.4. og enn koma snjókorn úr lofti. Þau eru að breytast í rigningu, sem á að vera viðloðandi næstu daga. Það vantar rigningu fyrir plönturnar og gott að fá hana þó alltaf sé nú leiðinlegt vera inni út af bleytu.
Við erum þakklát fyrir yndislega helgi. Það var sól í 3 daga, og miklu hlýrra þó enn sé dúnúlpuveður þegar sólin fer bak við skýin.
Ég eyddi mest allrar helginni í garðinum. Í þessari viku sækja kallarnir greinar, og við Klaus bundum saman slatta og settum fram á stétt. Svo hreinsaði ég beðin. Rakaði saman laufi og klippti visnu stilkana, sem fengu að vera yfir veturinn til að veita plöntunum sljól. Það var svo æðislegt að komast út í garðvinnu. Og yndislegt að drekka kaffið sitt úti.
Börnin komin út snemma um morguninn og krítuðu alls konar "bílastæði" ein sog öll hin börnin, sem hér hafa vaxið úr grasi. Það var sem sé fjör og gaman.
Við gömlu renndum til Gifhorn á sunnudaginn. Svona rétt til að prófa nýja bílinn, sem er með alls konar nýjungar, sem við kunnum ekki alveg á. Löbbuðum í kring um vatnið við myllusafnið og komum við í kaffihúsi, og keyptum tvær kökusneiðar. Vorum svo óheppin að missa af sjónvarpsliðinu frá okkar gamla góða NDR og erum voða sár að hafa ekki komist í sjónvarpið. Kannski m.a.s. í ellilífeyris-þáttinn mínn hahaha.
Páskarnir voru rólegir hér. Ekki páskalegir. Ég kom ekki einu sinni í verk að setja plasteggin á trén enda var ýmist snjókoma eða hvassviðri. Svo kassarnir stóðu hér ónotaðir. Þetta er skrýtið vor.
Hér var það suðusúkkulaði og kaffi í stað páskaeggja. Og var dæmalaust gott.
Keypti mér stígvél í páskagjöf--eða þannig-. Annars voru hér engar páskagjafir eins og siður er hér í landi.
Ég er búin að fara í einn tíma af þremur á námskeiði númer tvö. Er að sauma púða og geri n.k. stjörnu. Gekk ekki vel með að skilja þær kennarana mína ( þær eru 2 vinkonur, sem eru með þetta ) og skar allt of margar langar ræmur, en get notað þær í fleiri púða. Hef svo ekki saumað neitt síðan þá, og bara verið í stússi hér heima, garðvinnu, farið í vinnuna.
Í gær ákvað ég að skela mér til Hannover þar sem veðurspáin var slæm. Fann loks rúmföt handa Ástu í stúdentsgjöf- haha. Smá sein í þessu, en betra seint en aldrei. Og er ekki búin að finna neitt handa AD enn. Labbaði um á Lister Meile, og naut þess að sólin kom fram af og til. Var nú í dúnúlpunni en gat haft hana opna mesta allan tímann. Já svona er nú vorið hér.
Fór á kaffihús, sem leit ekki spes vel út, en var það eina, sem ég fann í bili , sem var með snyrtingar. Hélt nú að ekki væri leyfilegt að reka svona nema með salernisaðstöðu. En kaffið var fínt og limeostakaka með stökkum kexbotni var fín.
Var að leita að efnum, en fann ekkert. Nema bara flottu Tildaefnin, sem kosta 23 evrur meterinn. Eða 18 mjórri efni. Og þau fást um allt og ekki liggur á að kaupa þau.
Fann engin flott efni í tösku undir sníða-mottuna mína, sem ég drusla um í plastpoka og það er óþægilegt. En--þetta kemur allt.
Skrapp í síðustu viku til Frau Kühle í morgunmat og hjálpaði henni að bera bækur niður af loftinu. Hún er loks byrjuð að raða bókum í bókaskápinn. Gengur hægt en gengur.
Skrapp með henni til Uetze á laugardagsmorguninn, þar sem var verið að selja greinar með góðum rótum. Þær eru á góðu verði.. Christíne vinkona Ulli, sem er sonur Frau Kühle, býr þarna og vildi endilega fá okkur með. Það var biðröð framan við svæðið, sem var girt af með böndum. Sumir búnir að bíða í 30 mín til að vera öruggir að ná í ákveðnar plöntur.. En--svo var opnað klukkan 9--og hvað gera Þjóðverjar---skella sér bara yfir böndin og grípa í hvelli það, sem þeir ætluðu að ná í!!!! Þeir eru bara ótrúlegir þegar um sparnað og tilboð er að ræða. Nískupúkar réttara sagt.
Klaus er í vinnuferð í dag og var líka á miðvikudaginn í síðustu viku. Þá var loks allt komið í gegn út af bílnum. Svo ég fékk að sækja hann--trallalalala. Maja við hliðina ók mér til Gifhorn. Saumanámskeiðið var stuttu seinna og ég með allt mitt drasl. Sagði við konuna í afgreiðslunni að líklega væri ekki oft að menn mættu með saumavél að sækja nýjan bíl hahaha.
Bílinn er algjör draumur. Þægileg sæti. Lágvær og mjúkur. Alls konar dútl í honum, sem við kunnum sem sé ekki enn á. Það er hægt að nota útvarpið til að hlusta á þegar hringt í í gemsana --en okkar eru víst ekki nógu nýtískulegir til að það takist. Hægt að hita sætin, skúffa undir sætunum, innbyggður "garmur" svo eitthvað sé nefnt. Já við erum voða ánægð með hann.
Nú er bara eftir að setja hinn á netið og reyna að losna við hann.
Í gærmorgun fór ég í stafagöngu með konu, sem ég þekki úr skólanum. Hún spurði hvort ég væri til í að koma með sér á mánudögum og ég var heldur betur til í það.
Svo er að byrja aftur bakskóli og eftir að ath hvort ég kemst í það.
Ekki frétt mikið að dætrunum en engar fréttir góðar fréttir. Nei, auðvitað frétti ég af þeim og fæ kveðjur.
Í dag flýgur Lennart vinur Margrétar heim og þá verður rólegra-en samt ekki fyrr en eftir konsertinn hjá Háskólakórnum. Já, nóg að gera hjá öllum.
Þá slæ ég bara botninn í þetta og bið ykkur vel að lifa.
Ykkar Áslaug Arnar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hér á að snjóa á fimmtudag en vonandi verður það síðasta hretið !! Vona að vorið fari að láta sjá sig hjá þér og okkur - ég er meira að segja búin að kaupa mér pæjusólgleraugu með styrk :) Kv. Malla
Það hef ég alltaf ætlað að gera Malla! þarf að heyra í þér með það :) Ískalt hér í morgun en fallegt veður. Nóg að gera eins og venjulega, Helga á leið í skólabúðir að Laugum í Sælingsdal í næstu viku, verður í 5 daga. Gilli að klára lotu 3 í skólanum, er í seinna prófinu í dag. Hildur fer svo að byrja í sínum prófum, sést lítið heima. Dagur að fara að syngja einsöng með kórnum sínum aftur í lok apríl og er á forritunarnámskeiði í skólanum sem hann er ánægður á, svona fyrir utan boltann og dansinn.. Ég í kórverkefni, nútímalegt með hvísli og hrópum, búsáhaldaslagverki ofl. skemmtilegt! Dreif mig loksins í leikfimi og er lurkum lamin eftir það :) náðum ekki skype-fundi um helgina, verð heima í dag og þú getur látið mig vita ef þú sérð mig online á fb ef þú ert til í spjall! Til lukku með nýja bílinn, við prófum hann kannski hjá þér eitthvert sumarið :)
knús frá litlu dótturinni :)
Knús, var ekki búin að taka eftir nýjasta blogginu :)
kv
Kristín E.
Post a Comment