Saturday, April 27, 2013

27.4. eða kosningadagurinn og afmæli Svanhildar mágkonu.

Ekki hefur verið skrifað mikið undanfarið. það er sko mikið að gera hjá mér og ég er ekki bara að taka til í húsinu  :).  Nei hitt og þetta hefur verið í gangi. Og það er nú aldeilis ágætt.
Ég vann einn fyrri part í skólanum við forfallakennslu. 4 tímar. Á enn eftir að vinna 10 tíma, sem ég fékk frí eða á að vinna því ég er með smá meiri vinnuskyldu en bara klst á daga. Og svo fæ ég vinnu við stuðningskennslu. Allavega 4 tíma á viku og evt fleiri. Og það á kaupi.
Það verður skrítið að fá kaup fyrir eitthvað, sem ég hef gert oft og lengi. Sá um stelpu einn veturinn, sem tók miklum framförum bara út af því að hún fékk stuðning.
En þessu fylgir pappírsvinna eins og búast má við hér í landinu, þar sem þeir "fundu upp skriffinnskuna".
Þarf að breyta sjúkratryggingunni-, fylla út umsókir vegna vinnunnar, sækja um sakavottorð og koma því til nýju vinnuveitendanna. Og á eftir að fá eitthvað, sem heitir "Freistellungsantrag"-sem merkir að vinnuveitandinn minn-skólinn--leyfi mér að fá meiri og aðra vinnu  :)
Hvað ég svo borgi í skatt er ekki klárt og flókið--en mér er sama --byrja og svo sjáum við til.

Frau Kühle vinnur á móti mér. Við megum ráða hvernig við skiftum þessu á milli okkar. En nú fer hún á mánudaginn í "Hautklinik" í Hannover og verður þar etv í nokkrar vikur. Hún er svo rosalega slæm af soriasis að læknarnir hafa ekki séð annað eins. Hún sefur ekki á nóttunni fyrir sársauka og sviða. Henni verður troðið inn þrátt fyrir að eiginlega sé ekki pláss.
Veit ekki hvort ég má þá vinna með hennar börn og fá meira kaup einn mánuðinn   :).

Nú. Svo eru saumanámskeiðin tvö búin. Það var rosa verk að sauma stjörnu munstur og búa til púða með því. Ég vann ekki nógu vel---. Og það var of lítið af saumfari hér og þar, en þetta er bara allt í lagi svona í fyrstu tilraun.
Svo er ég aftur mætt í kórinn og æfingar þar vikulega.

Hef farið til BS og Gifhorn í nokkur skifti. Hitti vinkonu mína stundum í þannig ferðum, og er stundum ein. Verslað og dundað við að skoða og bara verið að njóta þess að það sé loks komið vor. Afmelda bílinn, sem tók sko nærri klukkustund. Fara í klippingu--já reyndar tókst það  hehe. Og svo framvegis.
Fara með 5 poka af dúnsængum og koddum í Rauða krossinn fyrir Frau Kühle----.

Já það kom vor og við fengum allt í einu um 24 stig. Það var sólbaðsfært, en maður er nú ekki að fara í bikiníið og sjokkara þorpsbúana. En stuttbuxur og bolur voru það. Vinna í garðinum er endalaus. . Bún að stinga upp kanta meðfram hluta af beðunum. Annars vex grasið yfir þá og erfitt er að slá. Plantaði stjúpum. Túlípanar og hyasintur og páskaliljur eru komnar og eru þvílíkt að gleða mig. Veit að ég myndi sakna þýska vorsois verulega ef ég flytti til gamla landsins míns. Það er frábært að vera hér á vorin.

Svo seldi ég bílinn okkar. Það var pólverji að taka húsgögn hjá nágrönnunum og flytja þau til Pólands, sem sá bílinn. Ætlaði að borga 1000 evrur, en endaði á 800 hundruð--og ég sló til. Gat ekki náð í Klaus minn, og hann hefði nú viljað bíða lengur og fá betra verð--en konan hans er svo óþolinmóð.
Kallinn kemur eftir viku og tekur líka gömlu sumardekkin, sem eru á háaloftinu--mikið verð ég fegin þegar bílinn og dekkin eru farin!!!

Og svo er ég auðvitað líka í vorhreingerningunni. Búin með hjónaherbergið og herbergi Margrétar, eða þannig- sem gert verður í bili. Klaus tók dýnurnar úr okkar rúmi, en þær eru jú of þungar fyrir mig--með mitt sig  hehe. Og þá er hægt að draga rúmgrindina fram og hreinsa kongulóarvefina bak við gaflinn. Ojbara.----.
Við ætlum helst að fá okkur nýtt rúm og færa okkur til í herbergi. Fara í herbergi Margrétar. En erum enn að vinna að skipulagningu--hehe. Vinnuherbergið verði áfram þar sem það er, og okkar hjónaherbergi verði svona gestaherbergi fyrir allra frænkurnar með sín dúllu 3 börn, eða ef bræður mínirog systur koma með sitt yndislega lið. Setjum bæði rúm Margrétar þar inn-já , hún á sko tvo. Og ekkert á Íslandi og vantar rúm næsta vetur. En--den tid, den sorg---:)  

Búið að vera gaman í gæslunni. En mikið að gera. Erum að láta þau lima mosaeiksteina á blómapotta.
Einn lítill kom hingað í morgun ásamt mömmu sinni og færði mér lítinn blómapott með blómum, sem hann var búinn að föndra handa mér. Ég bara komst við--svo sætt af honum. Fæ oft faðmlag frá honum og sumum öðrum. Þau eru svo miklar rúsínur og stundum svo óþolandi--hehe. Allt normal.

Og í dag á Svanhildur afmæli. Sigurður nýbúinn, Alex líka, og þannig bætum við öll við aldurinn okkar og ósköp líður tíminn hratt. Styttist í næstu afmæli-- og ég er ekki búin að koma gjöfum til stóru dótturinnar í póst--hmhm. Ferleg mamma. En þó--ein er komin til Margrétar og ef þið vitið um ferð norður þá endilega láta vita.
Margrét er með þriðju heimsóknina og það er nóg að gera þar á bæ. Hún er búin að vera eitthvað lasin og það var gott að Maria gat þá hugsað um hana. Kata og Ástþór koma víst á  þriðjudaginn og þá fær Margrét auka-mömmuna sína  . Það er ótrúlegt hvað þau eru henni góð.
Svo eru prófin byrjuð. Eitt búið og fín einkunn þar. Svo eru 2 í næstu viku. Og það styttist í 7.6. að hún komi til mömmu gömlu  ----.
Pabbi og mamma vilja gjarnan koma líka, en þau eru ekki nógu hress til heilsunnar. Pabbi eitthvað svo slappur. Mamma með áhyggjur af hjartaveseninu. En hver veit--kannski þau geti samt komið.
Og farið milli ganga í flugstöðvunum í hjólastólum. Það hlýtur að vera hægt.
Mér finnst líka að mamma ætti að fá svona spjald fyrir fatlaða eins og pabbi er með svo hún geti langt í þannig stæði. Hún er ekki neitt betri til gangs. Hvar er sótt um slíkt ???

Jæja.  Og svo er það aðalfréttinn hehe--   var sko að mála eldhúsvegginn minn bláan!!! Sko vel bláan. Það er bara einn veggur, sem er ekki fullur af hillum og skápum.  Okkar bíður hilla frá Ikea-- og að ákveða hvar hún verði sett--nákvæmlega--og hvað komi á veginn--. Ein hilla er ekki nóg.
Búin að fara í bað og er hin hressasta þó ég hafi verið með í hálsinum í morgun og frekar slöpp. Svo það marg borgar sig að vinna eins og vitlaus og þá verður maður frískur--hahaha.
Löngu kominn tími á kvöldmat og nú ætla ég að sjóða pasta og svo verður setið framan við sjónvarpið og horft á eitthvað, sem Klaus minn hefur tekið upp úr sjónvarpi Margrétar, Gott að hafa tvö og annað bara í upptökur.
Klaus er í fríi á mánudaginn og þriðjudaginn og við bæði 1.maí. Meiningin að útbúa "kvöldsólarstétt" við vesturveginn. Og hann á að hætta að rigna ef ég skildi spána rétt. Rigndi í gærkvöldi og af og til í dag, sem er dásamlegt fyrir gróðurinn.
Á morgun á Gregor afmæli og það er matur klukkan eitt þar.
Jæja--hætti þessu þá. Vona að það komi einhver kvitt. Ástarkveðjur til ykkar allra.






















5 comments:

Anonymous said...

Kvitt- kvitt. Gott að þú hefur nóg að gera, og gott að börnin fá að njóta þín í sérkennslu. Er VEL þreytt ef 15 tíma vinnu við kosningarnar!! Kv.Malla

Anonymous said...

Annað kvitt kvitt :) Knús frá litlu dótturinni <3

Anonymous said...

kvitti kvitt :)
Hér var ekki sól í dag og nokkrum sinnum kom smá snjókoma... sem bráðnaði samt strax, er farin að þrá almennilegt vor :)
Knús til ykkar
Kristín E.

Anonymous said...

Alltaf gaman að lesa - vona að vorið sé farið að gleðja ykkur og sólin skína á fallegan bláan eldhúsvegginn! Hér er vorsólin farin að benda okkur góðlátlega á að tími sé kominn að sópa út vetrarrykinu úr sálinni fyrst og fremst...kannski að maður taki eitthvað líka í gegn hér innan dyra!

Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Ádda... apríl er löngu liðinn :þ greinilega brjálað að gera hjá þér í sumar :)
kv
Kristín E.