Kominn bolludagur og ekki laust við að maður sé smá öfundsjúkur út i alla, sem fá bollur heima. Til lítils að baka hér ofan i okkur tvö---hehe. Nei, reyndar hef ég aldrei komist upp á að gera almennilegar bolludagsbollur, en kann að gera vatnsdeigsbollur. Það kenndi Pettý mér, og klikkar aldrei. En uppskriftin er svo stór að við myndum borða gat á okkur. Það er ótrúlegt hvað viðp tvö þurfum lítið og hvað hægt gengur á suma hluti hér eftir að við urðum tvö eftir í kotinu.
Kannski við höldum bara bolludag í sumar þegar Margrét kemur að heimsækja gömlu foreldrana.
Úti er glampandi sól og frostið var í tæpum 7 stigum í morgun. Var lengi að skafa rúðurnar og þreytt í handleggjunum á eftir. Maður er ekki vanur neinu lengur.
Við Klaus ókum til Gifhorn á laugardaginn--og undur og stórmerki--hann keypti tvö pör af skóm!!! Ekki oft sem hægt er að fá hann til að kaupa eitthvað á sig. Eccoskór með góðum sóla í stuttar gönguferðir og snatt. Og þynnri svartir skór í vinnuferðir. Héldum upp á þetta með kaffihúsaferð. Alltaf gaman að setjast inn á kaffihús, og hef ekki farið á kaffihús frá því um jólin á Bláu könnuna. Saknaði nú reyndar liðsins sem var með mér þar.
Svo kíkti ég inn um glugga á nýrri verslun, sem opnar á fimmtudaginn. Selur allt til bútasaums. Á stól var breytt út teppi, sem er bara eitt það fallegasta, sem ég hef séð. Akkurat mínir litir. Ætla að skreppa á opnunina og kannski kemur vinkona mín, Kerstin, með. Hún var i smá uppskurði, og er í veikindafríi og akkurat hjá lækni í Gifhorn á fim.
Er að reyna að finna út hvað ég get saumað-- er ekki svo klár að ég treysti mér í alla hluti, hehe. Gat saumað tösku, og er komin upp á lag með að sauma utan um tissuepakka--afsakið-Þjóðverjasnýti :).
Er að spá í bollamottur næst.
Diana, sem vinnur í gæslunni, verður skorin upp í bakinu og kemur varla aftur á þessari önn. Svo við erum mest tvær að brasa. Ekki spennandi. En þetta gengur og af og til fáum við aukamanneskju þegar sem flestir krakkar eru. Skólastjórinn er á sjúkrahúsi og það er friðsælt á kennarastofunni á meðan. :)
Frau Kühle er komin með "soriases"- hef ekki hugmynd hvernig það er skrifað. Hún þarf í ljósameðferð í 6 vikur, þrisvar i viku. Og þarf til BS. Svo er hætta á að verkir, sem hún hefur verið með í bakinu, stafi af þessu. Þessi útbrot geta valdið gigt--skil það ekki, en hún fer til læknis í dag og þá fáum við að vita hvort hún sé slæm í baki út af þessu.
Og svo liggur Ramona frænka Margrétar á sjúkrahúsi. Hún á til að detta út og enginn veit af hverju. Nú er hún búin að vera á sjúkrahúsi í meira en viku og verið er að rannsaka hjartað og eins gigt--getur líka haft áhrif á vöðva, sem láta eftirog valda þessu yfirliði. Það sem til er----. Spennt að frétta af henni og vona bara að þeir komist að því hvað veldur þessu. Er nokkuð komið í ljós hvað sé að FAF? Hann er nú líka búinn að detta niður tvisvar.
Miðstöðin er að gera okkur vitlaus. Hún var til friðs í nokkra daga, en er aftur farin að hrystast og skaka.
Það eru þvílík læti þegar hún fer af stað--eins og verið sé að berja í hana. Og alltaf verst þegar frost er. Svo það verður sjálfsagt ekki hægt að komast hjá því að fá nýja.
Bílinn minn komin af verkstæðinu, en hann var rennandi blautur eftir jólafriið. Það lak víst inn um þaklúguna og var risa pollur aftan við bílstjórasætið. Setti hann á verkstæðið til að láta þurka hann og gera við, en þeir skiluðu honum ekki alveg þurrum, sem ég er ekki hress með. Og þar sem oft er rigning eða frost gengur ill að að fá hann þurran. En ég lét hann standa opinn og snúa í sólina eitt skiftið og svo er maður með dagblöð á blettinum. Og einhvern tíman hlýtur þetta frost að hætta. Ekki samt á næstunni samkvæmt spánni.
Arnhildur mín var að fá út úr fyrsta prófinu og fékk 8 í íslenskunni. Sko mína. Þetta getur hún og ég efa ekki að hún reddi þessu í ár og klári þetta. Kristín Dögg var að skrifa að hún væri búin að eignast litla systur--vona að hún sé verulega hamingjusöm með það og verði litlu systur góð stóra sytir.
Og Margrét mín kom heim í gær eftir æðislega helgi með Háskólakórnum. Lítið sofið og hún datt út af er heim kom, og við ætlum að skæpa í dag eftir að hún er búin að ná upp svefni haha.
Hún er alsæl í þessum kór, og loks komin í félagsskap, sem hentar henni.
Mamma smá öfunssjúk--bara smá-- vildi líka vera i kór, sem er skemmtilegur félagsskapur. En hér er fólk bara ekki svo skemmtilegt-- skrítnir þessir Þjóðverjar hehehe. Eða ég geri of miklar kröfur.
Helgin fór annars í tiltekt og hitt og þetta innanhúss. Búin að taka skattholið i gegn, kommóðuna í mínu herbergi, minn fataskáp og stóra skápinn tók ég fyrir helgina.Aftur búin að henda slatta af gömlu dóti.
Straujaði loks afganginn af skyrtunum, sem voru búnar að pirra mig lengi. Þá er hlé frá því um tíma :).
Við elduðum kartöflulummur og ég þarf í sturtu. Anga eins og steikt kartafla.
Jæja. Best að hætta að sinni og bið ykkur öll vel að lifa.
Vona að ég fái bara góðar fréttir að heiman á næstunni. Njótið dagsins og borðið ekki yfir ykkur af bollum :). Eða þannig.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Ég er búin að borða helling af bollum, fiskibollum og rjómabollum en ég er líka búin að fara á fótboltaæfingu- svo þá hlýtur þetta að vera í lagi :) Ég myndi spjalla aðeins við þessa á verkstæðinu og láta þá þurrka bílinn betur!! Taktu Möllu á þá. Kv. ME
Borðaði yfir mig af bollum, bakaði á föstudag, af því að ég var að vinna allan laugardaginn... og svo varð auðvitað að baka aðeins meira á sunnudag :þ
Ætla að halda áfram að vinna, svo glöð að finna nýtt blogg fyrst ég er á næturvakt :)
Knús til ykkar
kv
Kristín E.
Já þær voru góðar bollurnar, en ég borgaði fyrir þær með langri wc-ferð um miðja nótt í staðinn, svo þú getur þakkað fyrir að hafa losnað við það - svona smá pollýanna :) haha!
Ekekrt mál að baka uppskriftina hennar Lillu, allt í skál og málið dautt. Þú prófar að ári... Þó þær verði auðvitað aldrei eins góðar og í Norró sko!
Post a Comment