Monday, November 5, 2012

Enn skrifa ég--.

Það er ýmist í ökla eða eyra--er ekki sagt svo? Annað hvort skrifa ég ekki í nokkra mánuði eða skrifa oft á viku. Nenni ekki að gera eitthvað í húsinu þó að ég þurfi endilega að taka baðið í gegn. Og sest bara niður með kaffibollann og pikka smá.
Helgin var fullbókuð. Var að klára að taka stofuna í gegn fyrir helgina , en átti samt eftir að ryksuga og þvo gólfin og þrífa baðið niðri, og gerði það á sunnudagsmorguninn. Bakaði heimilisfrið, gömlu góðu kryddkökuna með rúsínum-Astraköku eða brúnköku- og svo nýjan botn , sem ekki varð eins góður og vonir stóðu til. Stundum fara hlutirnir svona hehe.
Kerstin S.M. vinkona mín úr foreldrafélaginu tók mig með til Hannover upp úr 9 á laugardaginn. Við tókum  Danileu K.L. upp í leiðinni, ( líka úr þessari stjórn) og tókum lestina í Dedenhuasen. Byrjuðum ferðina með kaffipásu á Bahnhof á Worldcoffee. Og svo var arkað á Stoffmarkt. Þar eru seld efni af öllum gerðum og ýmislegt, sem fylgir því. Fann ekert sértstakt, sem mig vantaði, og það er líka erfitt að vera með 2 ,sem eru að skoða allt aðra hluti. Roslegur fjöldi, og þröngt þarna. Best að fara næst alein. Eða með dætrunum eins og í september.
Þær keypti helling af efnum. Og allt var sett í hjólatöskuna mína. Hún hefur sko verið notuð vel undanfarin ár, og ekki furða þó að gat sé komið á eitt hornið.
Við fórum svo í nokkrar búðir. Aftur var ég leiðsögumaðurinn, sem rataði um allt. Í TK MAXX keypti ég svo gjafir og þær fundu  ýmislegt.
Kaffihlé í teriunni í Karstadt, og við komum svo heim fyrir 5 með troðna töskuna og nokkra poka. Frekar búin eftir daginn. Settist bara framn við sjónvarpið og horfði á tvo krimma.

Og svo var það sunnudagurinn. Bjó til súkkulaði"mús", sem er ekki með eggjum. Setti á tertuna, og hitaði meðlæti. Wehmann slátrarinn mætti svo með tvenns konar rétti, og við borðuðum á okkur gat af svínalundum og kalkún í  karrý.  Borgaði 80 evrur fyrir allt saman, sem er ekki nein ósköp. Allavega dýrara að fara út að borða. Við áttum að fá gjöf í tilefni af silfurbrúðkaupinu í ágúst, en Ramona gleymdi því heima. Svo ég fer á fö. að hitta hana í Hannover til að ná í þetta. Og fer að versla í leiðinni. Loks ein og get ráðið minni ferð-hehe.
Fer á miðvikudaginn eftir vinnu  til BS að hitta Hogendorn, Heikpraktiker, og á laugardaginn taka Susanne og Gregor mig með á vetrarmarkað í gamalli höll, sem nýbúið er að gera upp. Þar var Susanne í fyrra og þetta er rosa sætt,- jólastemming, kertaljós,  fullt af flottu dóti til sölu.
Og á miðvikudagsmorguninn kemur Frau Kühle, sem er eins og fullbókuð flugvél þessa dagana og við fáum okkur kaffi og heimilsifrið.

Bara besta veður úti og stila eins og er. Bíð eftir að Margért hafi samband og sé þá vonandi búin að ná í pakkann, sem ég sendi til hennar.

Vona að ekki fari allt í svell og glerung eftir snjóinn. Myndirnar á Facebook eru frábærar. Sérstaklega gaman að sjá gömlu góðu skaflana á Skútustöðum.
Vona að þíð eigið góða viku. Bestu kveðjur frá latri húsmóður  :)    .

4 comments:

Anonymous said...

Löt húsmóðir ekki það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las þessa færslu! Alltaf gaman að lesa þannig að ég fagna því þegar þú ert dugleg að setja inn nýtt á síðuna þína.

Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur sem reynir að vera dugleg að skrifa, áður en ég leyfi mér að fara í leikfimi í hádeginu, til að skutla svo píanóstrák í tónlistarskólann...og og...það er alltaf eitthvað!

Anonymous said...

Væri til í að skoða þessa höll með þér ;) kv. Malla

Anonymous said...

Dugleg að blogga :)
Margrét

Kristín E. said...

Sammála Svanhildi, datt alls ekki í hug "löt húsmóðir" þegar ég las þetta.... greinilega nóg að gera og mikið fjör. Þetta hljómar allt afskaplega vel :o)Ég gleymdi alveg að halda áfram að kíkja á bloggin þín en nú er ég á 12 tíma dagvakt og þá hef ég tíma í lestur :) Hafðu það gott elsku frænka, hlakka svo til að hitta ykkur í næsta mánuði :D