Wednesday, March 14, 2012

Hvar er sólin?

Jæja, þá er það komið í ljós að sólin er sest að í Norge. Hún mun líta til okkar á föstudaginn og hverfa svo aftur :) En þar sem Norðmenn fengu meira en nóg af rigningu í fyrravor get ég vel unnt þeim að fá hana. Allavega er Margrét ánægð að geta setið úti á svölunum. Þau gátu borðað hádegismatinn úti í gær. Það er sko glæsilegt. Og vonandi helst þessi góða tíð þar áfram.
Ég á eftir eina og hálfa viku í vinnu. Þá tekur við frí frá fö. 23. til 18.4. Við hjónakorn erum búin að bóka gistingu við vatnið Müritz í 5 nætur. Hótelið heitir "Hotel zwischen den Seen" ef einhver hefur áhuga á að gúgla það. Flott loftmynd af því, sem sýnir hversu skemmtilegt svæði þetta er.
Skrítið að vera að fara í frí með Klaus svona alveg ein. Engar dætur eða barnabarn með í förinni. Væri nú hressilegra frí með þeim. En við tökum þessu þá á rólegu nótunum og kannski ég finni mér skemmtilegar búðir þar sem ég get dundað mér við að skoða og dreyma. Og örugglega eru góð kaffihús þarna um allt :)
Svo fer handavinnan með, bækur, blöð, og hægt að komast á netið svo ég geti fylgst með ykkur heima.

Á mánadaginn skrapp ég til Gifhorn. Var að leita að dóti fyrir gæsluna. Verslaði í matinn og leitaði að plastboxum. Fann ekki þau, sem ég vildi, en keypti 2 önnur til að setja alls konar dót úr eldhússkápunum í. Tók nefnilega törn um helgina og tók allar barnakönnur og dót, sem næstum aldrei er notað úr skápunum. Og þetta fer bara upp á háaloftið og hægt að ná í --þegar Malla kemur með liðið sitt :) Setti aðra hluti í glerskápinn og nú kemst ég að öllu án þess að þurfa að ýta hlutunum frá. Ekki mikið eftir á hillunni yfir eldhúsborðina og ef ég finn minni hillur eða skáp, sem er ekki djúpur þá verður skift um--í hvelli :)

Og svo var spreyjað á mygluna í gluggunum á baðinu. Hér eru til alls konar sprey. Keypti dýrt sprey, sem virkar vel. En eins gott að hafa gluggana opna lengi, lengi því klórlyktin er ekki fljót að fara. Og svo uppgötvaði ég að límeyðingarpenni, sem ég keypti fyrir löngu og var búin að gleyma er frábær. Ég var með net út af flugunum, sem var fest á límkant í gluggarammanum. Svona eins og franskur rennilás. Límið fer ekki af og óhreinindi safnast í þetta- algjört ógeð. En nú næ ég þessu af. Jibbí. Erum komin með ramma, sem festa á utaná gluggann og taka má af eftir þörfum.
Já, spennandi líf--hehe.

Reyndar var bara spennandi eftir verslunarferðina á mánudaginn að fara til Conni, sem er Tuppersölukona. Ég er orðin sölukona í 6 vikur. Og get hætt eða haldið áfram. Fór með Conni og 2 öðrum á fund. Þar fékk ég fullan poka af gjöfum fyrir að vera orðin sölukona. Og má eiga það sama hvort ég hætti eða ekki. 4 dollur með töppum á hliðunum til að vera með grænmeti í--götin eru höfð opin eða lokuð eftir því hvaða tegund maður er með í boxinu. Og svo 3 flottar skálar með loki.
Margréti fannst þetta hljóma eins og lýsing af öfgatrúarsöfnuði þegar ég lýsti kvöldinu. Satt er það :) Það komu 2 upp á sviðið. Önnur var búin að kenna hinni að verða leiðbeinandi og hún var svo búin að selja fyrir rosa mikið. Og fékk nú bíl frá Tupperware. Fyrirtækið borgar allt nema bensínið. Þær fengu blómvönd--þetta var fæðing á nýju "barni" -- vendirnir voru bundnir saman með bandi og svo var klippt á "naflastrenginn"--slökkt á ljósunum og allir með ljósapinna og stjörnublys. --Já, reyndar smá spúki--hehehehe.
Ætli þetta sé svona heima líka? þekkið þið einhverja í þessum brasa?????
En-ég má kaupa einn hlut af hverri tegund í bæklingnum og fæ 40 % afslátt. Svo ef þið eruð með eins rosa stóra ósk, sem þið t+imið ekki að uppfylla, þá látið mig vita og ég get reddað ykkur þessu á góðu verði---bara að slá til!

Svo er ég búin að ryksuga bílinn, sem hefur ekki gerst í örugglega tvö ár. Eftir að þvo og pússa. Og svo bíð ég eftir að Kristin Dögg komi og bóni hann með mér--hehe.
Nóg að gera í gæslunni við að klippa niður band og binda fyrir krakkana. Þau kunna ekki að binda hnút í 1. og 2. bekk--er það heilbrigt--hvað segir Malla fóstra???? Erum að gera unga úr gulu garni fyrir páskana.( dúska) Og strákarnir eru bara spenntir. Skrapp svo í skólann í gær til að útbúa skapalón til að klippa út stór páskaegg. Þau eiga svo að líma efnisbúta á þetta. Spennt að sjá hvað kemur út úr því. Eins og vanalega eru hinar ekki að vinna utan starfstímans og ef enginn gerir neitt til að undirbúa hlutina þá ganga hlutirnir nú hægt. Og eins og fyrr segir---við erum að fara að fara í frí.

Margrét alsæl með helgina með kórnum, sem lesa má á blogginu. Ég skrópaði á minni síðustu æfingu út af konukvöldinu í Gifhorn en fer á morgun.
Var á kattavaktinni um helgina. Svoi fer ég í fyrramálið til Frau Kühle að færa frystikistuna með henni. Sonur hennar er svo slæmur í baki--sem kemur engum á óvart. Alltaf vesen með þessa syni. Hljótum að geta fært til tóma kistu. Eða við sækjum nágrannana :)

Styttist í vinnuna og á eftir að klæða mig í önnur föt. Hafið það sem best. Saknaðarkveðjur.

4 comments:

Anonymous said...

Þetta verður fínasta ferð þótt að þið séuð bara tvö. Ekkert svona bull :) Þetta er öruglega æðislegt svæði og þið hafið nú svo gaman að labba um. Njóttu þess að vera í fríi og ekki þurfa að taka til :)
Elska ykkur
Margrét

Anonymous said...

Þetta verður frábær ferð - það er ég viss um. Ég held að börn í 1 og 2 bekk hér heima séu almennt búin að læra að hnýta t.d. skóreimar, en eflaust ekki öll. kv. Malla

Anonymous said...

Loksins systir, staðsett svona miðsvæðis og ekkert reynt að nýta alla þessa frábæru staði allt í kring. Já þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og þið verðið vonandi dugleg að fara í gönguferðir og skoða allt um kring. Þarf að fara að finna út hvort svona sprey er til hérna. Gangi ykkur vel.
Diddi

Anonymous said...

Nú er farið að styttast í frí hjá ykkur og ferðalag, alveg frábært.
Já, ég er sammála Didda, myndi vilja vita hvort að svona sprey er til hér.

Vona að þessi síðasta vika fyrir frí gangi vel. Arnaldur Kári heima í dag, var með einhverja magakveisu í gær. Ástþór Örn að fara að spila í Salnum í kvöld, mjög spenntur!

Bestu kveðjur, Svanhildur