Veðrið er hundleiðinlegt. Ekki hundi út sigandi. Ekki veður til að fara í göngutúra. Svo þá er að gera það besta úr þessu. Kveikja á kertum, hlusta á tónlist og hafa það notalegt. Í gær setti ég diskinn með kór aldraða í spilarann og sat á sófanum, meðan Klaus lá með höfuðið í kjöltu minni og hraut meðan ég hlustaði og söng lögin. Þetta var afskaplega afslappandi og róleg stund.
Klaus er með mikinn hósta og vott af bronkitis. En hann fór samt í vinnuna í dag. Ég var ekki sammála því, en ekki hægt að banna fullorðnum manni.
Var að dunda við taka skattholið í gegn. Fara í gegn um kassamiða og hitt og þetta. Svo erum við hjónakorn búin að taka til í herbergi Margrétar. Klaus hefur verið þar með drasl, en nú var honum hent út--hehe-, og ég verð með hennar skrifboð og get nú farið að reyna að koma mér í sauma.
Svo er ég búin að taka geymsluna uppi í gegn. Það er svo mikil regla þar að annað eins hefur ekki sést! Spurning hversu lengi þetta helst svona :)
Og loks er búið að þvo allt eftir sumarbústaðadvölina. Ekki gengið hratt í þessari rigningu. Svo það er alltaf nóg að dunda við.
Eins tók ég skápinn minn í skólanum í nefið. það var löng törn. Er búin að safna helling af drasli og maður gleymir svo helmingnum. Lét krakkana fá eldspýtnastokka á fö. og spurði þau hvernig þau gætu búið til litil húsgögn úr þessu. Það fannst þeim spennandi. Og einn sagði að hann hefði ekki vitað að það væru til svona litlir stokkar. Flestir með kveikjara í dag eða löngu eldspýturnar um áramótin. Setti svo herlegheitin í glerskápinn svo allir gætu dáðst að þessu. Þau voru ekki smá stolt. Eins erum við búin að vera með alls konar korn og hrísgrjón. Þau hafa sett lím á pappadiska og sett korn yfir. Fínustu listaverk þó ég viti ekki hvað mömmurnar segja þegar sumir koma með 4-5 diska, hehe. Svo mikill var áhuginn.
Næsta helgi er svo löng fríhelgi. Frí vegna einkunna. Fæ frí á mán og þr. Búin að segja Klaus að hann mætti vel taka sér frí og kannski við gætum þá athugað um nýtt gólfteppi og sófa.
Og svo bara að gera eitthvað saman. Kannski ég bjóði honum á kaffihús :)
Ég er enn í jóga og líkar rosa vel. Gaman að sjá myndir af Arnaldi Kára á síðu Svanhildar þar sem hann er í jógstellingum. Flott að leikskólinn skuli kynna þeim þetta. Kannski einhverjir fari svo í jóga þegar þau eldast.
Og enn hjá sálfræðingnum í Gifhorn. Fer í fyrramálið. Og svo í kórnum á fimmtudagskvöldum. það er ekki auðvelt að vera í altinu og kunna ekki nótur. Það eru ansi margar, sem eru falskar og syngja sópraninn eða eitthvað út í loftið. Meðan ég er ekki búin að læra þetta utanað er ég oft óörugg út af því að sumar syngja allt annað en ég held! Svo það er mikil áskorun að taka þátt í þessum kór, hahaha.
Er á kattavaktinni í tíma og ótíma. Frau Kühle er að tæma hús mömmu sinnar. Verður t.d. frá fim. til mánudags næstu helgi. Það er ekkert smá verk að tæma eitt hús og hún er ekki sú yngsta eins og hér er sagt. En hún fær góða hjálp um helgina.
Dreif í því að hringja í kunningja, sem ég hef ekki séð lengi. Maður getur nú verið lengi í símanum eins og aðrir af ættinni!
Skæpum oft við Margréti. Hún var hjá Söru vinkonu sinni um helgina og gisti þar. Það snjóar og snjóar í Norge. Fallegra að sjá snjóinn en slydduna og bleytuna hér. En ég er nú fegin að það sé ekki frost.
Margrét sótti sem sé um háskólann í Edinborg. Skandinavien Studdies. Hvað úr því verður kemur svo í ljós í mars til maí. Það er spennandi að sjá hvert hún fer. Planið er að hún verði í ágúst í Norge. Við förum í júlí og tökum sem mest af dótinu til baka. Og hún fljúgi svo ein til okkar. En þetta getur líka breyst og við sjáum til hvað úr þessu verður.
Hún kíkti á æfingu hjá kór í Drammen. En það eru bara örfáir í kórnum og allir eldri en hún. Svo hún leitar líklega áfram. Söru langar líka í kór. Þær hljóta að finna eitthvað.
Jæja. Þá er víst að koma að vinnutíma. Verð ein með fyrstu bekkinga þar sem hin er lasin í dag. En það er ekkert mál. Ætla að fara í spila-keppnina , sem Malla kenndi mér.
Vona að allir eigi góða viku. Bestu kveðjur og baráttukveðjur til Arnhildar, sem er að glíma við stærðfræðina!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Kósý helgi hjá ykkur. Haltu áfram að syngja, það er allra meina bót!
Það er aftur farið að snjóa hjá okkur. Næs :)
lovjú !!!!
Margrét
Ég á næturvakt og 2 ný blogg hjá þér :D Dugleg ertu. Þetta hafa verið góð jól í Danmörku, ég væri alveg til í að prófa að vera í sumarbústað yfir jól eða áramót... áramótin hjá okkur þetta árið voru náttfataáramót, við slepptum sparifötum og fórum í staðinn öll í náttföt fyrir kvöldmatinn, voða huggulegt.
Hafðu það gott og bið að heilsa Klaus, vona að hann fari að hressast.
Helgin verið notaleg hjá ykkur og aldeilis kraftur í þér! Vona að klás sé betri af kvefinu. Arnaldur Kári búinn að vera heima síðustu daga með hitavellu og kvef - nokkuð hress samt sem betur fer! Hér í snjónum er einmitt líka kertaljósastemning...best væri nú bara að geta kveikt upp í arni :)
Bestu kveðjur, Svanhildur
Ekki veit ég hvað dætur þínar halda um kökuást þína,eins og þú nefndir í síðasta bloggi. En í framhaldi af þeirri umræðu finnst mér að þú hefðir frekar átt að baka góðar kökur en laga svona til. Þá hefði Klaus kannski fengist til að vera heima í stað þess að þreyta sig í vinnunni.
Annars er allt bara þokkalegt og gaman að lesa bloggið þitt.
Bk Diddi
Hér er komin asahláka og nú bíður maður bara spenntur að sjá hvort klakinn fer allur eða hvort það frysti enn og aftur svo allt verður glæra. Alla vega 6 stiga hiti hér í dag en á að kólna í nótt en ekki mikið og líklega aftur ´hláka í vikunni. Við Elli höfum ekki farið í einn einasta göngutúr eftir áramót, annað hvort verið með pestir eða ekki hægt að ganga fyrir hálku hehe. Í staðinn höfum við bæði farið í ræktina sem er alltaf jafn hressandi. Annars allt gott að frétta. Aldís eldaði hér þessa líka rosalegu fiski/humarsúpu og humarrétt með tilheyrandi sósum og brauði. P og m komu í mat og við átum á okkur gat. Ella langaði svo í góða fiskisúpu svo það var bara drifið í því, ég var bara í fríi- þangað til kom að frágangi og uppvaski hehe. Vona að Klaus sé að ná sér af kvefinu, bestu kveðjur í kotið. Knús þín sys affí
Great information
Post a Comment