Hver veit nema að einhver nenni að lesa þetta blogg okkar? Enginn búinn að kommenta á það síðasta ... Veltum okkur úr sorg yfir því :( En við höldum bara áfram að blogga og vonum að einhver kommenti :)
Í gær var aftur mjög gott veður. Við skruppum á bil til Lierbyen og tókum strætó þaðan til Asker. Það er mjög sætur lítill bær og leiðin þangað liggur líka í gegn um mörg sæt hverfi. Við löbbuðum um innbæinn og mamma fann svo bara meira að segja kjól hjá Noa Noa sem var á útsölu þannig að hún endaði bara með því að kaupa hann! Jibbi á það! Svo átti Margrét að finna sér stígvél og fann svo meira að segja eitt par en það var ekki til í hennar stærð :( Göngugatan í Asker er mjög sæt og Margréti fannst hún vera svoltið dönsk. Svo er innkaupamiðstöðin í Asker hinsvegar frekar ljót og leiðinleg. Samt nokkrar skemmtilegar búðir þar sem við röltum um í. Enduðum svo með að setjast á kaffihús. Fengum okkur báðar súkkulaði crossaint og svo kaffi eða kakó. Mjög gott. Síðan var 7eleven ís í eftirmat. Þessi geðveiki góði! :)
Svo versluðum við í Lierbyen. Vorum svo frekar feignar að bílinn stóð ennþá í stæðinu sínu. Margrét var ekki hundrað prósent viss um að hafa læst honum og svo vissum við líka ekki alveg hvort að það mætti leggja honum þar :) Keptum okkur hvetebollar sem við fengum okkur svo þegar við komum heim og elduðum svo núðubaksturinn um 8 leitið. Mjög góður matur!
Svo er fjölskyldan komin heim aftur. Við tókum smá til í morgun og ryksuguðum eftir okkur ... aðalega kettina samt.
Stefnt er á að baka köku og fara í göngutúr í dag.
Hafið það öll gott og hlökkum til að fá komment !!!
Margrét og Áslaug
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Til hamingju með daginn Áslaug! Vona að þið séuð búnar að hafa það gott í haustfríi.
Bestu kveðjur, Svanhildur
Elsku Áslaug
Til hamingju með daginn, hafið það gott mæðgur saman í Noregi. Ég skrifa þér fljótlega á gamla netfangið þitt.
Bestu kveðjur. Hildur frænka.
Ég las bæði bloggin :) það er pínu snjór hérna og kallltt. Gott að Margrét er búin að fá föðurland og hlý föt :D Dögg sem verður ekki lengur kölluð KDV eða KGB, heldur KDADD...hehehe..er í vetrarfríi og bara hress. Saknaðar og ástarkveðjur ykkar Arnhildur (sem er ekki í USA, Afríku né Noregi ;)
greinilega góðir mæðgnadagar hjá ykkur í Noregi, sem er ljómandi gott :) Njótið þeirra áfram. Þið eruð ekki að missa af neinu sérstöku hérna í þjóðverjalandi, life as usually ;) Bestu kveðjur, Aldís Björns
kvittikvitt - Þorgerður
Post a Comment