Tuesday, May 27, 2008

Syfjuð!

Klukkan að verða átta. Dimmur himinn, en ekki rigning (ennþá). Samt allt í besta lagi, og spáð 20 stigum í hádeginu. Vona að þið hafið líka gott veður. Allt gekk vel hjá Margréti í gær. Fékk nýjan vír á tennurnar, og lakkað var yfir. Ég fór á meðan til gleraugnakallsins, og fæ ný gler í nýju umgjörðina. Þarf ekki að borga neitt, enda ekki mér að kenna að mælt hafi verið vitlaust. Fæ gleraugun loks 6.6. Þann dag komu pabbi og mamma og við rennum þá líklega daginn eftir til Gifhorn. Verst að pabbi er svo óviljugur að fara nokkuð :)
Komum tímanlega heim í sápuna okkar, og nutum þess að horfa á nýjustu vandamálin og vondu og góðu systurnar. Ekki eins og hjá okkur, við erum allar bara góðar systur! Einn leikarinn er frá BS., og við erum voða hrifnar af honum. Ekki laust við að Margrét sé oft með sama smekk og mamman, en vonandi ekki alltaf:), og ekki fleiri orð um það.
Nú er verið að skipuleggja næsta vetur í skólanum hennar. Sennilega verða þær breytingar að hún mæti til skiftis í fyrsta og annan tímann, (það er út af því að ekki eru nógu margir strætóar!), og þá daga, sem hún er með marga tíma, verði þau með 45 mín. hlé í hádeginu. Mér finnst það fínt, en hún er ekki alveg sammála þessu. Vill komast sem fyrst heim. En mér finnst ágætt ef hún gæti komist heim í hádeginu, og aðeins hlaðið batteríin. Og yndisleg tilhugsun að geta sofið til 7 nokkra morgna.
Við vorum öll syfjuð áðan. Vantar líka sólina til að hressa mann við.
Nú er verið að byrja á nýju húsi hérna rétt hjá okkur. Bak við hús Caroline og Marco, sem byggðu síðast. (Þau eru milli okkar og Doreenar) Það verður þá líklega eitthvað hávaðasamt næstu vikurnar.
Kláraði háaloftið í gær. Allt skipulagt og flokkað. En eftir að ganga frá glugganum og efst uppi. Það verður nú ekki á næstunni. Hann Klaus minn er t.d. ekki byrjaður á skattaskýrslunni, sem á að skila í lok maí. Og þar sem hann á að halda fyrirlestur daginn, sem pabbi og mamma koma, verður hann upptekinn við það fram að þeim tíma. Hann er nú ekki skipulagður, blessaður.
Og geymslan er glampandi fín. Þá er eftir að skella sér í geymsluna niðri, og svo að taka vinnuherbergið og svefnherbergið i gegn.
Herdís vinkona hringdi í gær. Hún er á leið til Berlínar, og spurði hvort ég vissi um einhvern sem ætti íbúð þar. Mér datt nú bara Nonni i hug, og að hann þekkti kannski eitthvað til. Líklega hefur hún því haft samband við Didda, og þau rætt saman. Það var brotist inn í meðferðastofnunina, Ekron, og tölvum rænt. Herdís því ekki með nokkur símanúmer eða e-mail. Hvað er að verða með þessa Reykjavík? Þórdís sagði mér frá slagsmálum, sem maður vinkonu hennar lenti í.
Hvaða Steinholt er Maddý að tala um.-
Já, það er margt, sem Íslendingar í útlöndum sakna. Ég hef aldrei lagt í að fá harðfisk. Hélt að hann yndi anga um alla flugstöð:)
Já, og þetta með danaprinsinn. Forsíðumyndin í slúðurblöðunum í dag er náttúrlega -þessar fögru mágkonur, og drama í höllinni, út af afbrýðissemi. Erfitt að vera frægur. Vonandi að Friðrik verði hamingjusamur þeð þessari.
Til hamingju með afmælið Líney mín. Og til lukku með þennan gleðigjafa Lilla mín! Er Líney nokkuð hætt við að verða læknir til að getað læknað ömmu? Hún er nú alveg frábær krakki.
Á svo ekki Víðir líka afmæli-- hugsa til ykkar Arnhildur mín. Eru þau Sólveig fyrir norðan?

Gott að Kirstín hefur komist í H&M. Öfunda hana ekki smá að geta flogið út um heiminn á vegum vinnunar. Margrét bara gerir þetta í minn stað.
Við erum reyndar ekki sammála um allt. Hún er t.d ekki hrifin af svona kommúnu-byggingum, þar sem margir byggja saman og gera upp gömul hús. Hús eiga að vera flott og falleg að utan. En mér finnst mest um varið að vera í sambýli. Ef Klaus minn væri ekki, og Margrét fullorðin, gæti ég vel hugsað mér að gerast mamma í SOS þorpi, eða eitthvað svoleiðs. En---ég hef nóg verkefni--3 herbergi eftir.

3 comments:

Anonymous said...

jibbííí... búin að læra hvernig ég kemst inn á tölvu Ella, mín er enn í hakki en VÖ er að vinna í að laga hana. Hér er sól og sumar, og því miður allt að fyllast af geitungum svo lítið setið úti á fína pallinum sem við hjónin vorum að ljúka við að olíubera og hann eins og nýr! Er að koma heimilinu í lag eftir annasaman vetur. Búin að slá og hreinsa beð, þrífa bílinn og laga til í skúrnum ( sem er kominn á hvolt aftur he he), hreinsa beðin hjá mömmu og farin að stunda ræktina aftur. Aldís á fullu í listigarðinum og VÖ á bensínstöðinni. Elli nýtir frítímann á mótorhjólinu. Já gott að hafa alla heima svona til tilbreytingar. Kv affí

Anonymous said...

Þessi lestur Arnfríðar frænku gerir mig bara dasaða - hehe...

Hvaða Steinholt er mamma að tala um??

Streptococci kominn í heimsókn á mitt heimili einu sinni enn, vantar kannski Áddu frænku til að þrífa þetta í burtu, og Affí með henni...

Thordisa said...

Eruð þið systur mínar til í að koma í minn garð næst og skipuleggja hann. Mættuð svo koma og hjálpa mér að mála og þrífa eftir það hehe.. saumó í kvöld og kaffihús með Ingigerði og Vigdísi á eftir alltaf nóg að gera. Ingó á fullu alla vikuna úff komið bara og verið með mér