Wednesday, May 28, 2008

Þrusuveður.

Hitinn hækkar jafnt og þétt. Líklega verið volgt hjá Aldísi Björns í gær, ein 32 stig var sagt í fréttum. Hér er sami vindurinn og alltaf. Hef verið að strauja og ganga frá, elda hádegismatinn, vinna í skólanum, og að lesa bloggið. Mikið er það æðislegt að sjá Affí aftur á blogginu. Og eins og vanalega eru ekki slegin vindhöggin þar á bæ. Væri ekki verra að vera mætt til Þórdísar með Affí til að skipuleggja garðinn hennar. Held við systur ættum bara að drífa í því. Hún litla systir mín er svo mikið úti á lífinu að hún nær ekki að stússast í slíku :) Margrét að lesa undir próf á morgun. Hún vann til verðlauna í þessari enskukeppni, sem hún fór í í janúar. Fer með Klaus til bæjar nálægt otrasafninu til að taka á móti þeim. Hann barasta bauðst til að taka sér frí. Ég kemst illa á fö. því þá eru allir krakkarnir hjá mér. Verið að grafa grunnin á fullu. Spennt að frétta hverjir flytji þarna inn. Hafið það gott. Vona að veðrið sé með besta móti hjá ykkur líka.
(Mamma þú mátt líka taka með þér mysusost-takk.)

4 comments:

Thordisa said...

ég er sko bara ekkert bara úti á lífinu það er sko bara nóg að gera hjá mér er að mála, taka til, henda dóti og hitta fólk :-)En mig langar mikið að koma til þín með mömmu og pabba hnugg hnugg

Anonymous said...

Frábært að heyra af þessum árangri í enskukeppninni! Þetta er nú líka svo klár stelpa :)

Vona að próf gangi vel.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Til lukku með þennan flotta árangur, Margrét frænka ;)

Anonymous said...

Ég var að koma heim úr vinnunni, úr nýju vinnunni í Adam og Evu í Sunnuhlíð! Og þetta er nú bara skemmtileg vinna, ég verð að segja að ég er reynslunni ríkari bara eftir 2 daga þarna! Dóttir mín er reyndar ekki mjög hrifin af þessu. Og svo bara ÁFRAM MARGRÉT!! knús knús Arnhildur