Monday, May 26, 2008

Óskalistinn fyrir pabba.

Pabbi hringdi til að fá að vita hvað þau gætu fært okkur. Hér koma óskirnar.
Númer eitt er : fullt af sætu vínarbrauði með miklum glassúr! 2: mörg, mörg Hjemmet ( það tekst ekki því þau fara alltaf til Bildu og Möggu Lár ) 3: Yndisauka blandan, sem Sigyn var með. (getið þið reddað henni Diddi og Sigyn?) 3: Cocoa puffs og Honeynuts cheerious, 5: sósulitur, 6:súkkulaðikex (ekki smákökur, heldur kex), 7: engiferkex, 8: ef hægt er SKYR. (setja það í stóru ferðatöskurnar.)
Mamma--þú þarft ekki að koma með bláu ferðatöskuna með. Þið gætuð nú EINU sinni sett eitthvað upp á þetta fína háaloft, sem þið eruð með, og hafið hvorugt stungið nefinu upp til að skoða!!!!! Jonni setur örugglega upp dót fyrir ykkur ef það er svo voðalegt mál. Það er nefnilega ömurlegt að þið getið ekki geymt dót fyrir mann út af plássleysi, en svo eruð þið með þetta fína plás, Og hananú.
Ef einhver á fjallagrös væri það líka frábært. En aðalatriðið er bara að fá ykkur heil á húfi og hress. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur.

4 comments:

Anonymous said...

Ha,ha,ha -það er alltaf meira en lítið fróðlegt að heyra hvað það er sem Íslendingum í útlöndum vantar að heiman! Á óskalistanum mínum stendur alltaf: Nóa kropp, kaffisúkkulaði, lýsistöflur, harðfiskur (sem við Sunna reynum svo að borða í leyni niðri í kjallara þegar enginn annar er heima!), púðursykur og vanilludropar ;)
Bestu kveðjur frá Mering, Aldís -sem ekki nennti að horfa á söngvakeppnina!

Thordisa said...

Nei keppnin var nú svona la la en ég horfði nú samt á hana held ég hafi ekki gert það í fyrra. Ég skal senda þér eitthvað gamla mín en ég vona að þú ætlir ekki að éta allt vínarbrauðið ein hehe ekki gott fyrir línurnar sem ég þarf að passa eftir að Ásta fór að vinna í bakaríinu..

Anonymous said...

Ohhhh.. Ássý var að koma með vínarbrauð hingað áðan, vildi geta sent þér það!

Anonymous said...

Ég hef nú ekki fengið vínarbrauð í dag en það er sko allt í lagi því mér finnst það ekki gott.Sami góði hitinn í dag um 20gráður en smá gola-stundum næstum hvasst.Ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér í vinnunni því mín er komin í frí.Ég held að þorg.aðst.sk.þori ekki að finna verkefni handa mér því ég sé svo þreytt eftir veturinn,en það er alls ekki rétt.Á reyndar að fara í kennslu í fyrstu tímana í fyrramáli og svo að sitja yfir í prófum.En þetta fer allt að taka enda.Helgin var voða skemmtileg með Kristínu og fjölsk.og svo flaug Kristín til Stokkholms snemma í morgun,sendi sms um að hún hefði komist í HM (hommar og mömmur)og fengið smá kast.Best að fara að sofa Bestu kveðjur úr "Steinholti"