Laugardagsmorgunn, og ég er sko búin að hjóla í 50 mín. Geri aðrir betur. Maður er sko klár þegar út í það er farið! Vaknaði klukkan 7, og eftir klósettferð og pilluátið (þarf að taka pillu hálftíma áður en ég má borða, ömurlegt) var ég glaðvöknuð. Dreif mig í hjólastakkinn, setti á mig grifflurnar frá Arnhildi minni, og festi böndin utan um buxnaskálmarnar. Og svo var hjólað til Ahnsen til að gefa kettinum hennar Frau Kuhle. Það tekur nú bara tíu mín, og ég fór því á blessaða brúna yfir lestarteinunum, og gerði eins og Diddi sagði. Hjólaði tvisvar yfir hana, og kom móð og másandi heim um hálf níu. WWatchers morgunmatur, sem samanstendur af hreinni jógúrt, 3 msk kornamusli og einu röspuðu epli. Ég er sko komin niður fyrir 79------.
Og það þrátt fyrir væna tertusneið hjá Möwenpick í gær. Jarðarberjatertuna góðu, með rjóma!
Okkur Margréti var sko hugsað til bæði Arnhildar (sem við hugsum nú alltaf til) og Þórdísar, sem báðar eru miklir aðdáendur slíkra tertna.
En first things first.
Klaus sendi loks bréf frá USA í gær. Ferðin hafði heldur betur gengið hægt. Hann beið í 7 klukkustundir í Paris, og var alls 24 tíma á leiðinni til Tampa, Florida. Fékk ekki töskuna fyrr en morguninn eftir. Þurfti svo að bíða eftir leygubíl í klukkustund, og kom 3 korterum of seint á ráðstefnuna. En allt í lagi, og var víst bara fín ráðstefna. Hann var heldur betur þreyttur eftir ferðina, og ekki búinn að skoða sig um. En hann hefur daginn í dag, og eitthvað á morgun, held ég. Er væntanlegur eftir hádegið á mánudaginn.
Við Margrét höfum það fínt. Eftir mikla garðvinnu á fimmtudaginn, sett niður ein 20 sumarblóm, og slegið grasið (það var allt verk Margrétar), illgresisverkun og tilflutningar á plöntum, var slappað af yfir sjónvarpinu. Horfði á Bruce almighty, sem er í uppáhaldi hjá dóttur minni, og líklega hjá báðum dætrum . Og fö. var bjartur og fagur. Við í sumarfötin, í sandala og lögðum af stað með nesti og nýja skó til BS. En þá skellti hann á okkur skýjum, og tveimur skúrum. Við létum það ekki á okkur fá. Skoðuðum hengirúm fyrir garðinn, sem Margrét hefur mikinn áhuga á. En var mér of þungt til að drösla í bílastæðið. --Já, ég fór sko á þeim stóra, GAT lagt honum í þessu þröngu stæði, og fór einu sinni yfir á HINA akgreinina fram úr strætó. Veit sko ekki hvað þið viljið hafa það betra!!!!!
Margrét fékk sér sundbuxur og bikiní til að vera í í skólasundinu. Svo fann ég tösku hjá H&M frá Marimekko, sem hún féll fyrir og splæsti á sig.(15 evrur), og ég gaf henni slæðu frá Marimekko, (20 evrur) Ég var að leita að sumarskóm, en fann enga. Margt í bænum, enda taka menn sér frí þegar svona stendur á. Komum svo við hjá kisu, og fylltum dallinn. Tókum tvö DVD á leygunni með, og horfðum á eina í gærkvöldi.
Sólin skín, og spáin er góð. Mér skilst að ekki sé hægt að segja það sama um veðrið á Norðurlandi. Voða er það sorglegt hvað vorið er að verða slæmt, en veturnir mildir. Við vonum að það fari að batna heima. Gaman að Þórdís sé fyrir norðan. Tilbreyting fyrir mömmu og pabba, og Kristín Dögg líklega fegin að fá Guðnýju.
Takk fyrir myndirnar Diddi og uppskriftina af kjúklingasúpunni. Þórdís-ég er alltaf í beyglum með að senda bréf á þessu nýju prógrammi, en kannski Margrét miskunni sig yfir mig með uppskrifta-mail. Það er aldeilis með veikindin heima. Veslings Dagur með barkabólgukastið (var það ekki örugglega barkabólga?) Vona bara að þið farið nú öll að frískast. Mér skilst að Ástþór Örn hlakki til að hitta Didda frænda og alla strákana hans. Og nú hlýtur að fara að koma að því að það rætist.
Þá er daman komin úr sturtu. Stefnum á Gifhorn að ná í blómamold, matvæli, og kíkja á blómamarkaðinn í göngugötunni. Vildi nú vera komin heim í selskapinn, en læt sólina bæta mér upp ættingjaleysið. Við megum ekki gleyma að ekkert er sjálfgefið, og að það er guðsgjöf að eiga góða fjölskyldu, sem stendur með manni, þó að vissulega sé oft ekki alltaf tóm sæla eða allir á sömu skoðun. Njótið þess að vera saman. Það veit enginn hversu lengi, og ekkert er betra en að ala börnin upp í sterku fjölskyldusambandi. Hér í Þýskalandi sé ég svo sannarlega nógu oft hvernig það er þegar ekki er samband milli systkina og foreldra. Ekki einu sinni hægt að mæta að jarðarför út af ósamkomulagi, hvað þá að umgangast hvern annan daglega. Það er t.d. orðið þannig hjá Gregor og bróður hans. Og ekki mátti nú þessi litla fjölskylda við því. Mér finnst svona einangrun vera af því illa, en kannski er það af því að ég elska ykkur öll svo mikið. Mér finnst mín fjölskylda kolrugluð, skelfileg, frábær og stórkostleg og vildi ekki býtta henni fyrir nokkuð í heiminum. Er bara svona undarleg!!!!!!!!!!!!!! Góða helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Dugleg að hjóla !! Ég mæti í ræktina 3-4 í viku og finnst það rosalega gaman. Já fjölskyldan er kolrugluð en skemmtileg, ,það er ekki nokkur vafi :) Kv. Malla
Ekkert smá dugleg að hjóla á laugardagsmorgni :o) Ég hins vegar stóð upp á endann í ca 12 tíma í gær, fyrst í afmælisundirbúningi, svo í afmælisveislu og að endingu í frágangi eftir veisluna :o) verulega þreyttir foreldrar fóru að sofa í gærkvöldi en líka 2 hæstánægð börn sem er aðalatriðið :D
Vorið er fínt hér á suðurlandinu, sól og fínerí í gær þó það sé hvasst í dag og smá rigningarúði við og við, til að vökva fyrir okkur...
Hætt að blaðra, blogga vonandi á morgun
kv
Kristín E.
komin heim helgin var frábær og gaman að hitta alla. Sá þó lítið af Affí sem var á fullu að fara yfir ritgerðir og annað
Góð helgi hjá okkur líka, Dagur að jafna sig smám saman. Helga Margrét lenti í 3. sæti bæði í standard og latin dönsum á Íslandsmeistaramótinu í samkvæmisdönsum, voða lukkuleg með það. Afmæli tvíburanna og annað afmæli í dag. Hildur Valdís er í prófi 2 af 5 í dag, gott þegar það verður búið.
Allt í fína að töluvert ruglaða fjölskyldu meðan hún er svona skemmtileg!!
Post a Comment