Thursday, May 29, 2008

Jólagjöfin í ár!

Jæja. Þá vitum við hvað verður jólagjöfin í ár! Arnhildur farin að vinna í Adam og Evu! Hún verður líklega vel lærð eftir sumarið:) :) :) Góða skemmtun ástin mín. Fegin er ég að loks skyldi finnast vinna handa þér. Spáð 28 stiga hita í dag. Margrét fór í flottasta toppnum sínum í skólann. Hann er hvítur og með blúndublómi við barminn. Auðvitað frá H&M. Svo fór hún í hettupeysu og sumarjakka, og verður líklega með það allt í körfunni er heim kemur:)
Klaus mætti nýklipptur heim í gær. Margrét vill nú að hann raki af sér skeggið, en hann er of latur til að raka sig daglega. Það er víst ekki fyrr en í lok júní sem Margrét fær verðlaunin. Hún á oft ekki til orð yfir því hvað krakkarnir séu léleg i ensku. Þau kunna ekki að horfa á sjónvarp með ensku tali. Vantar alveg þjálfun í að hlusta og tala. Frétti í gær að eldri hjón flytji í nýja húsið, sem ku vera einingahús, úr pakkanum. Það verður þá ekki lengi að rísa. Er svoooo syfjuð, en ætla ekki að leggja mig. Fæ bara hausverk og dreymir illa. Það bíða mín mörg skemmtileg verkefni, --ryksuga, elda, strauja og margt fleira:) Það er sko að verða kominn tími til að mamma mæti. Það þarf að gera við saumsprettu á peysu Klaus, gat á buxum Margrétar, gluggatjöldin í skúrnum eru upplituð og ekki búið að sauma utan um tehettuna. Það verður sko alveg nóg að gera hjá henni!
Það verða allir að vinna fyrir matnum sínum hér. Affí og Elli geta t.d. búið til þessa stétt, sem Klaus er búinn að ætla að gera í ein 4-5 ár:) Eflaust finnast fleiri verkefni.
En svona í alvöru. Komið sem flest og verið sem lengst.
Elsku litla systir-- veit að þú ert voðalega dugleg. En það má alveg striða þér smá:)
Haldiði ekki að það sé kominn tími á cappucino?

3 comments:

Anonymous said...

Jú það er víst alveg örugglega búið að vera heitt hjá okkur hérna sunnanlands undanfarna daga, alltaf um og yfir þrjátíu stig. Verst að ég verð alveg ótrúlega pirruð og skapvond í svona veðri; )
Finnst miklu betra að fá að vera í norðanátt og rigningu heima á klakanum...
Bestu kveðjur frá Mering, Aldís.

Anonymous said...

Oj Aldís - hehe... er alveg til í að skipta við þig í svolitla stund!
Ekki gott reyndar að fara mikið yfir 30 gr.
Arnhildur - til hamingju með vinnuna, þú uppdeitar okkur svo um helstu nýjungar síðar ;)
Til hamingju með árangurinn í enskunni Margrét!

Thordisa said...

Skal skipta við þig á stundinni Aldís þú mátt fá alla þá norðanátt og rigningu sem þú vilt frá mér ef ég fæ sólina í staðin hehe... Áslaug sakna þín og langar í göngutúr úti í skógi með þér. Hlakka til að fá þig hingað heim hvenær sem það verður og sýna þér allt sem ég er að gera þessa dagana. Annars er ég bara að bíða eftir að heyra frá HR.