Óska ykkur til hamingju með sigurinn þið hressu íslendingar! Því það er sigur að komast að, við fáu, fátæku smáu. Það verður líklega fjör heima annað kvöld.
Helgin byrjar líka vel hér. Með fríi í skólanum hjá Margréti í morgun. Hún þurfti bara að vera frá 3-5. Það var kynning á þemavikunni, og troðfullt af fólki. Spjallaði smá við skólastjórann, og hún sagði mér að gera eitthvað í því sem fyrst ef Margrét ætlaði að vera heima í janúar. Þarf að kanna þetta sem fyrst. Eins talaði ég við konuna, sem stjórnaði verkefnunum í Helmstedt. Mjög indæl kona. Ef maður ætti nú svona vinkonu hérna liti tilverna öðruvísi út. Kannski gerast kraftaverk :)
Ljúft að finna komment frá Arnhildi minni. Og svo hringdi hún og sagði að pakkinn með afmælisgjöfunum til hennar og Alexanders væri kominn. Hann var voða ánægður, mikið er ég fegin. Og mín dóttir með erfiða smekkinn getur notað allt, sem ég sendi, hí,hí. :)
Mikið er það gott. Ekki veitir af að styðja við bakið á þeim í kreppunni heima. Arnhildur er ekki komin með vinnu--en gat glatt mömmu gömlu með fréttinni um að hún væri að sækja um vinnu í Adam og Evu, --tja svona bleikt og blátt--verslunarsvið :) Klaus fannst það mjög jákvætt, og vonast eftir að hún kaupi eitthvað flott fyrir okkur þar!!!!! (eins gott að enginn lesi þetta, sem ekki þekkir til, --gæti tekið þessu sem alvöru :))
En aðalfréttin er að við Margrét fórum til BS í gær, og ég--þrátt fyrir sparnaðinn, og góðu áformin--fór á rándýra hárgreiðslustofu, Mods Hair, og splæsti á mig lit og klippingu. ( 101 evra) Ekki nefndi nú neinn í vinnunni að ég væri fín, en það er ekki til siðs hér í landi að vera að hrósa öðrum of mikið. Og börnin sögðu--oj, þú lítur allt öðruvísi út. Ömurlegt! En við hér á Vorfeldweg eru voða ánægð með nýja svipinn, og vonandi komast myndir inn á bloggið á morgun.
Margrét fer í skólann klukkan 9 í fyrramálið, sæki hana svo 11.30, og hún fer aftur klukkan 12.30.
Er að passa köttinn svo þetta passar vel. Hann fær jú þrisvar á dag sinn mat, og ekkert múður.
Jás, og svo er búið að hætta við ferðina til Munchen. Það kom boðskort í gær frá Susanne mágkonu. Þau halda upp á "25 ár og 25 daga" giftingarafmæli akkurat þessa helgi. Get ekki vel skrópað í því, en pabbi treystir sér ekki einn, og svo fannst honum þetta allt vera of dýrt, og eginlega var hann feginn að losna við að fara. Gunther kemur nú í ágúst til þeirra til Akureyrar.
Skemmtið ykkur nú vel yfir keppninni. Góða helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ég held að allir hefðu gott af smá sendingu úr Adam og Evu, ekki síst þið ;) Kannski lætur hún verða af þessu dóttir þín og sendir þér vænan pakka :)
hahahaha...
sammála systur minni!
Þú horfir auðvitað á Eurovision og kýst Ísland!! Meira að segja Ássý og Láki öskruðu hér með okkur þegar við komumst áfram.
Ætla að hafa heimatilbúna pizzu í kvöld og hafa það huggulegt.
Helga veik, með hita, hósta og höfuðverk - í fyrsta sinn í vetur sem hún veikist, og ekki seinna vænna...
Biðjum öll að heilsa í bæinn!
Allir hressir kér í 14 til 16 gráðu hita og sólarlaust.Bíðum spennt eftir kvöldinu,ætlum að hafa fondue (Sérstakl.f,Sigga eða þannig)Fyrst kjöt og grænmeti,svo súkkulaðif.á eftir-sama hvernig keppninn fer.Ég var að horfa á Jóakim danapr.ganga í það heilaga í annað sinn.Horfði vel á alla fallegu kjólana get samt örugglega ekki lýst þeim eins og Ássy -ef hún hefur horft.En prinsinn grét þegar hún gekk ínn kirkjugólfið.Mér finnst hún nú óþarflega lík konu Friðriks en þær heita báðar Mary.Affí og Didda finnst þessi pistill örugglega mjög gáfulegur eða þannig.Best að fara að undirbúa kvöldið,bera eldhúsborðið niður og skera niður kjöt.Mundu að kjósa í kvöld.Magga móða.
Ég horfði sko á alla kjólana líka - og mínar dætur með mér!
Þetta er mjög frumlegt hjá þeim bræðrum, Mary og Marie...
Post a Comment