Tuesday, May 20, 2008

Þriðjudagskvöld.

Ekkert í sjónvarpinu og engin bók að lesa. Best að pikka smá í bloggið. Diddi hringdi í dag til að vita hvað væri með þessa systur sína. Ég spurði hvort hann hefði átt von á að ég væri búin að grafa mig niður í holu, svona eftir hressilegheitin í mér undanfarið, hm,hm. En nú er þetta allt að lagast. Við erum búin að ákveða að vera hér í sumar, og Margrét líka. Arnhildur segist ekki þurfa sérstaklega á barnfóstru að halda. þetta er að verða svo fullorðið. Við stefnum á að skreppa til Köben ef við fáum inni hjá Eiríki í hótel-húsinu hans! Sjáum svo til með restina. Það kom upp að Doreen verður ekki svo mikið hjá ömmu sinni, og eins ætla þau ekki í ferðalag þannig að þær Margrét gætu tekið lestina eitthvert út í buskann. Mér finnst sorglegt að hitta ekki Arnhildi fyrr en undir jólin, en það verður þá bara þeim mun betra að hittast. Það er þungu fargi af mér létt að vera búin að fá þetta á hreint. Og alltaf auðveldast að taka leiðina, sem er léttust, ekki satt. Hefði getað gert rækilegan skurk í að leita að vinnu, en-- Út af hverju ætti ég þá að kvarta ef slíkt gengi upp?
Æðislegt að Maddý skuli skrifa. Ekki væri slæmt að vera á tónleikum hjá henni og hinu liðinu, en það verður bara seinna. Eða í næsta lífi þegar ég fer til Ítalíu, Prag, Spánar, Stokkhólms og allt það!
Bestu kveðjur til Ninnu, til hamingju með gærdaginn, og hjartanlegar heillaóskir líka til foreldra og systra.
Margrét er í Helmstedt. Fór með helmingnum af árganginum í gærmorgun, og kemur á morgun um hádegið. Það er þemavika í skólanum, og á fö. er svo kynning á verkefnunum. Svo er Margrét í skólanum allan laugardaginn, --aftur þetta verkefni út af stutta stúdentsprófinu, og stærðfræði og þýska tekin fyrir.
Veðrið er hið besta. Rigndi mikið fyrir helgina og á laugardaginn. Við Margrét mættum á flóamarkað klukkan hálf eitt á laugardaginn, og vorum til næstum 5. Sérstök lífsreynsla að vera að selja á svona samkomu. Flestir vilja nú fá hlutina gefna. Við seldum fyrir 90 evrur, gjaldið fyrir plássið var 4.50. Svo við erum komnar með eitthvað í ferðasjóðinn, sem við erum að safna í.
Svo er ég að laga til á háaloftinu, og sortera enn og aftur. Og að taka geymsluna uppi í gegn. Það kemur að því að þetta verður allt í besta lagi. Vonast til að koma sem mestu upp á háaloftið svo að dót úr herbergjunum geti farið inn í geymslu. Og svo er ýmsu hent.
Um helgina tókst mér að klára að stinga upp illgresið utan við girðinguna, og allt er þá þrennt er. Enda ekki verk til að klára á einum degi. Svo mokaði Klaus úr lífræna kassanum, og sigtaði. Ég tók ruslahornið síðan vel í gegn.
Í morgun var ég í síðasta skifti í sjúkraþjálfuninni, -alls 12 skifti. Fór svo til Weilands, að láta skoða hnútana á skjaldkirtlinum í sónar. þeir virðast ekki hafa stækkað, heldur frekar minnkað. Það var tekið blóðsýni, og vonandi er allt í lagi með þetta. Þarf að fara í svona skoðun af og til.
Var ég nokkuð búin að segja að ég sé ekki með beinþynningu? En hann var ekki alveg nógu ánægður með mjöðmina á mér. Á að vera rosa dugleg að borða kalkríkan mat, og endalaust hollustufæði, og vera sem mest úti til að fá vítamín úr sólinni.
Á morgun fer ég svo loksins til augnlæknis og svo er að sjá hvað verður með þessi nýju gleraugu mín. Á fimmtudaginn svo til Weilands út af blóðprufunni, og þá er ég nú alveg búin að fá nóg af læknum í bili.
Er svo að plana ferð til Munchen með pabba og mömmu um miðjan júní. Dýrt að fara á föstudögum, og etv. förum við á laugardagsmorgni. Talaði við Gunter vin pabba, sem vill að við tökum lest klukkan 6.40 hér í Meinersen. Ekki íslenskur ferðatími, hí,hí. Margrét og Klaus ætla að vera heima á meðan.
Hvað er að frétta af Affí og vinnunni við nýju íbúðina?
Jæja. Klukkan orðin rúmlega 9, og maður getur farið að skríða í bælið. Vona að þið séuð öll hress og kát. Góða skemmtun við Eurovision. það eru fjöldamörg ár síðan ég hef hoft á það. Ekkert gaman að horfa nema með einhverjum, sem fílar þetta.
Já, og svo er það --- 2 glös af hvítvíni og 77.3 kg---------------

4 comments:

Anonymous said...

gaman að lesa bloggið þitt:)
fékkstu póstinn sem ég skrifaði um helgina ?

Kv. Hildur.

Thordisa said...

hér er allt á fullu í próflestri og heimilið hálfgert í rúst því dót Ástu er um allt og það á eftir að flokka og koma því í kassa sem á að geyma og henda hinu. Herbergi Guðnýjar er æði síðan við tókum allt dótið hennar í burtu. Er að böglast við að klára umsóknina í HR kem mér ekki alveg í það enda lítið um dauðan tíma. Koss og knús hlakka til að sjá þig sem fyrst

Anonymous said...

Kostar okkur frónbúa formúgu að komast af skerinu en þú ert með leiðir til allra átta, svo drífðu þig í ferðalag í sumar!!! Talandi mörg tungumál svo það ætti ekki að hamla þér, og ef Klaus vill ekki fara getið þið Margrét farið 2 saman...
Ættir að láta senda þér lýsi eða lýsisperlur að heiman, nauðsynlegt með kalkinu!!
Öfunda þig ekkert smá af góða veðrinu, hér erum við voða glöð með 16°c :(
Láki var að lenda frá USA þar sem hann var í veiðibúðaferð með Dóra flug, ætlaði að fara beint í að leggja sig.
Broskveðjur úr "góða" veðrinu í Kópavogi

Anonymous said...

Ef þið eruð að koma til Muenchen um miðjan júní þá væri nú gaman ef þið hefðuð tíma til að kíkja í kaffi eða mat! Það væri jafnvel hægt að heyra í Hirti Þráins og athuga hvort hann hefði líka tíma!
Hugsaðu málið og láttu mig vita!
Bestu kveðjur, Aldís