Þá er þessi keppni afstaðin. Auðvitað hringdi ég og kaus Ísland. En þar sem Þýskaland er troðfullt af Tyrkjum, Grikkjum og ég veit ekki hvað, fóru flest atkvæðin til þeirra landa. Mér finnst ekki rétt að hafa svona fyrirkomulag. Fámennar þjóðir geta ekki komist að. Okkar sætu söngvarar stóðu sig vel. Voru bæði lagviss og komu vel fram. Ekki get ég sagt það sama um alla. Veit ekki hver hefur valið þetta lag fyrir No Angels, en þær eru þekktar sem fínasta grúppa hér, og Margrét spilaði þær mikið á tímabili. Fötin voru hrillileg, og ljóskan var bara fölsk. Æ,æ.
Ég nennti nú ekki að horfa á alla keppnina, þar sem fínn krimmi var á sama tíma. En upplifði stigagjöfina, og við spáðum í hvort þessi frá-var það Svíþjóð?-hafi verið á dópi! Hver kom fram fyrir Ísland?
Diddi takk fyrir hringingarnar á meðan á keppninni stóð. Alltaf gott að heyra í þér. Það var bara smá stress á mér. Við grilluðum, en Klaus tók kol, sem voru frá í fyrra, og þetta ætlaði aldrei að ganga. Bökuðu kartöflurnar orðnar kaldar, og salatið að slappast, en þegar ég loks skifti mér af þessu, og náði í nýju kolin og sagði mínum manni að bæta þeim útá, kom loks glóð. :)
Og svo æddi ég til að gefa kettinum, en þá var Frau Kuhle komin heim. Hún er alltaf bara eina nótt, en eftir öll fríin var ég rugluð í þessu. Missti af fyrstu mínútunum af krimmanum, en það var nú ok.
Það var ekki kveikt á sjónvarpinu fyrr en klukkan 8 um kvöldið! Held að það sé met hér á heimili!!!!!!
Margrét var í skólanum, og er nú búin að ná sínum valfögum. Veðrið var frábært á laugardaginn, en allt í lagi veður í gær. Rigningarlegur í dag. Klaus setti saman hillu á háaloftinu með aðstoð minni. Nú get ég loks sett smádraslið í hana. Og fullt af gömlum bókum. Bakaði svo eplaköku madömunnar, uppskrift frá Maddý. Hún var æði, og Margrét fegin að fá köku þegar hún kom heim eftir stærðfræðitörnina. Ég bar svo út blaðið frá kirkjunni.
Í gær tók ég geymsluna uppi í nefið. Vefirnir um allt! Veit að þið trúið ekki hvað er mikið um kongulær hér. Er næstum búin með geymsluna, sem var rosalegt verk. Margrét á eftir að fara í gegn um drasl, sem hún á.
--Nú er sko komin hellidemba. (9.19)------
Mér heyrist að sumarið sé komið vel í gang heima. Unglingarnir komnir í vinnu. Pabbi hefur miklar áhyggjur af því að allir hlaupi i spik af því að Ásta sé farin að vinna í bakaríi :) Það ætti þá að takast að koma til mín vel sætu vínarbrauði með þeim gömlu þann 6.6.!!!!!
Margrét kom ekki í verk að setja inn myndir í gær. Við förum í dag til tannréttingarmannsins til að láta lakka tennurnar svo þær skemmist síður. En hún hefur tíma fljótlega.
Og svona fyrir börnin--það er komið hreiður undir þakið hérna hjá okkur. Voða fínt hreiður og fuglinn situr á. Veit ekki enn hvaða tegund þetta er.
Er svoooo syfjuð. Við sváfum til tíu í gær! Og auðvitað gat ég þá ekki náð að sofna í gærkvöldi.
Best að fara að bera drasl upp á háaloft, og halda sér í gangi svo maður sofni ekki.
Hildur mín--takk fyrir bréfið.
Diddi- hvenær farið þið svo út?
Haldiði ekki að Kristín frænka hafi verið búin að leggja drög að vinnu fyrir mig í kaffistofunni í blóðbankanum. Kirstín--við athugum það mál alvarlega næsta ár! Og takk.
Og takk fyrir kommentin.
Hvaða hvaða skot eru þetta á mig og hann Klaus minn :) :) :)
Maddý- það er æðislegt að heyra frá þér, og alveg sama hvort einhverjir glotti að skrifum um giftingu Danaprins--ég var voða ánægð að lesa þetta. Vissi nefnilega ekki fyrr en í morgun þegar ég las blaðið að hann væri aftur giftur. En hvað var konan með á hausnum?
Svo var ég að skoða myndirnar frá skírninni. Þið verðið að fara inn á síðuna. Fullt af fínum myndum. Og endilega að skrifa í gestabókina. Það er ekkert gaman að fá ekki kveðjur, og aumingja Svanhildur þarf alltaf að lesa hvern pistilinn af öðrum frá mér.
Náði ekki öllum myndunum. það gerist af og til, en næ þeim vonandi næst.
Æ, líklega best að fá sér einn cappucino, draslið getur beðið.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Salatið farið að slappast - hahaha...
Get nú oftast brosað yfir pistlunum þínum, takk fyrir þá!
Hildur Valdís og Helga Margrét lasnar heima, og Hildur sem átti að byrja að vinna hjá Kópavogsbæ í dag! Kláraði 1. bekk í Kvennó með stæl og verður í pizzuvinnunni með hinni í sumar.
Við förum norður í fermingu um næstu helgi, ætla rétt að vona að veðrið verði jafn gott þá og það er núna.
Tókum garðinn vel í gegn í sólinni í gær, er skökk og stirð í dag...
Held áfram að fylgjast með hér!
Heyrist þið hafa átt fínustu helgi.
Já ég missti nú næstum af giftingu í minni eigin fjölskyldu þar sem ég var svo upptekin af öðru brúðkaupi Jóakims, sem grét bara og grét!! Hann ætlar greinilega að reyna formúlu stóra bróðurs í þetta skiptið...sama útlit, sama nafn, annað land!! Ha ha ha.
Það er nú engin kvöl og pína að lesa kveðjurnar frá þér, nei bara skemmtilegt að fá þær :)
Hafið það voða gott.
Bestu kveðjur úr sveitinni, Svanhildur, Ástþór Örn og Arnaldur Kári
Post a Comment