Wednesday, May 14, 2008

Allt gult af blómaryki.

Miðvikudagsmorgunn, og sólin skín glatt. Fór út í morgun og þreif gluggana á stóra bláa svo Klaus gæti séð út um þá á leið í vinnuna. Frjókornin eru örugglega að gera nokkra ofnæmisgemsa brjálaða. Aumingja þeir. Fyrsti vinnudagur og skóladagur eftir letihelgi í 4 daga. Við ætluðum í bíltúr á sunnudaginn, en þar sem Margrét var ekki nógu vel fyrirkölluð, var því sleppt. Vorum bara hér heima "í leti". Við Margrét fórum yfir dót, sem við ætlum að reyna að selja á flóamarkaðinum. Kannski leikskólinn kaupi Fischer Price eldhúsið hennar, en það kemur í ljós fyrir helgi. Fæ "veggfóðursborð" hjá Renötu til að setja draslið á. Nokkuð sem ég hafði aldrei augum litið áður en ég kom hingað. Já, við Aldís Björns höfum oft rekið upp stór augu. T.d. út af rabbarbaranum í maí, eins og hún skrifar í bloggið. Takk fyrir uppskriftina Diddi, verst að mitt fólk vill ekki marsípan. En kannski maður fái heimsókn þegar þau gömlu eru komin.
Gaman að sjá myndirnar úr Mývatnssveit. Ekki kominn mikill vorsvipur, en það er samt eitt, sem íslenska vorið hefur fram yfir það þýska. Það er alveg einstök tilfinning að upplifa góða veðrið á vorin heima. Það er hlýja, sem fer inn í mann, og fyllir mann af tilhlökkun og gleði. Það er af því að tilveran skiftir svo algjörlega um svið heima. Þessi gífurlegi munur er ekki til staðar hér. Veturinn er ekki svona harður, eða dimmur. Allt í einu er svo komið hásumar hérna. Varla sést til sólar í nokkrar vikur, svo skín hún af krafti og viku seinna er allt skrælnað, og maður stendur með slönguna og vökvar og tínir í burtu visin laufblöðin. Allt er fullt af lúsum í ár. Hef aldrei áður séð svona á jasmintrjánum mínum, sorglegt.
Er einhver saknaðarblær á þessum skrifum?
Æ. ég hef verið að hugsa svo mikið heim. Sakna hennar Arnhildar minnar, og vildi geta séð meira af henni Kristínu minni. Við erum í hálfgerðum beyglum með sumarið. Við stefnum á að fara heim um jólin, og kannski gæti Margrét farið í einhvern bekk hjá henni Helgu "minni" hans Bensa, og verið heima á 16 ára afmælinu. Það er hennar stærsta ósk.
Og við eigum nú ekki svo mikla glás af peningum að við getum farið í frí tvisvar á ári. Hér hefur allt hækkað mikið, og það er bara ekki hægt að eyða svo miklu hvern mánuð að taka þurfti af varasjóðnum. Veit að það er ekki íslenskur hugsanaháttur, en ég er ekki fyrir að lifa á raðgreiðslum. Vorum að spá í ferð til Svíþjóðar, en hún fellur niður. Spáðum í að láta Kristínu koma, en henni leiðast svo að vera ein, og þar að auki er hún svo léleg að vera úti í flugunum, og ekki er það gott fyrir barn, sem þarf að fá sól í kroppinn. Og svo vill Margrét gera eitthvað með einhverjum. Veit ekki hvort það væri ekki besta lausnin að senda hana eina heim, og hún gæti verið með Kristínu, í trausti þess að þið væruð dugleg að taka þær með í Garð, að Álftavatni og sjá um prógramm. (svo ekki lendi áArnhildi að vera með þær alltaf).
Skal hins vegar alveg viðurkenna að ég held að ég muni deyja úr leiðindum og einmannaleik með Klaus einum hér í 4 vikur, og er því að komast í þunglyndisskap.--- Er ekki hægt að fá vinnu fyrir mig í 4 vikur????????
Ég gæti borið út blöð, þrifið i heimahúsum, farið með leiðinlega þýska túrista í ferðir----!
Dettur ykkur eitthvað í hug? Ég veit að ég væri þá voða leiðinleg við klaus, sem yrði þá einn hér, en ég get bara ekki alltaf hugsað um alla aðra. Stundum finnst mér ég vera að springa. Ég bara verð að geta hitt fólk af og til, og hlegið og spjallað.
Æ. þetta er nú --"ég á svo bágt" kaflinn!-- Best að snúa sér að gleðilegri hlutum.:)
Við grilluðum tvisvar um helgina. Tók upp rauðvínsflösku, og Klaus m.a.s. drakk eitt glas. Hann sló grasið á fö. meðan ég var í tvo tíma hjá Frau Kuhle við að reyta illgresi í garðinum hennar. Svo tók ég gangstéttina við okkar garð í gegn, og eins byrjaði ég að stinga upp risafíflana við girðinguna hjá akrinum. Svo var tekið "stórt" rusl í gær. Við fórum út með skáp, sem er búinn að vera á háaloftinu í 3 ár, en svo kom í ljós að bakið og hliðarnar, sem áttu að vera hjá Susanne, voru löngu komin í ruslið. Losnaði við málningarfötur, gömlu kaffikönnuna, og svona sitt af hverju.
Margrét lærði úti undir sólhlíf. Sonja litla kom og fékk að fara í róluna, og Margrét lék við hana um tíma. Það var rosa hresst partý hjá þeim við hliðina á fö. Greinilegt að pólverjar eru líkir okkur. Mikið hlegið og talað hátt. Maja afsakaði sig i bak og fyrir , en ég sagði henni að þetta væri eðlilegt, og við værum nú ekki að kvarta. Hún er því á þeirri skoðun að við séum bestu nágrannar í heimi!
Kominn tími til að fara í vinnuna. Leggið heilann í bleyti og finnið vinnu svo ég geti komið án þess að stofna bankareikningnum í hættu.:) :) :)

5 comments:

Anonymous said...

Geturðu ekki bara verið leiðsögumaður hjá Jóni Árna og Gilla, eins og í gamladaga?
Aldís

Anonymous said...

Gæti kannski farið í blaðahlaup eins og Ingó? hvað segir Þórdís um það??

Anonymous said...

Hvort myndir þú vilja vera á Ak eða Rvík?? Verður að pæla í því áður en þú ferð af stað að leyta ;) Eflaust hægt að finna eitthvað í Rvík í 4 vikur, veit ekki með Ak.

Thordisa said...

Það er allavega næga vinnu að fá í Reykjavík og ef þig langar í leiðsögumanninn þá er pottþétt eitthvað. Með Kristínu og Margréti þá verður þú að muna að Margrét er að verða 16 ára ung kona en Kristín er bara 11 krakki og ég veit ekki hvort Margrét myndi nenna að vera með henni einni í allt sumar hún þarf að vera í kringum vinkonur en hún er auðvitað velkomin til okkar þegar við erum heima. En afhverju athugarðu ekki með vinnu hér í sumar?????

Anonymous said...

Magga móða hefur lítið um þetta mál að segja,veit ekki um vinnu á Íslandi en ég veit að bros og jákvæðni hafa mikið að segja.ER ekki Arnhildur að leita að vinnu? Hvernig gengur það.Ég held að ekki sé um margt að ræða hér.Ekki að marka mig sem ætla bara að flatmaga í allt sumar,en ég er nú á svo háum launum eða þannig!! ER nú að mestu búin að greiða Noregsferðina þó verðlagið væri skelfilegt.En nú koma foreldrar þínir brátt og þá verður nú nóg að gera að fylgja prestinum á fornsölur eða til gullsmiða.Auðvitað væri gaman að sjá þig en það líður nú tíminn fram að jólum sumarfríið búið áður en maður veit af og svo jól og þau búin.