Friday, May 9, 2008

Handavinna og messa.

Detta nú ekki af mér dauðar lýs!!! Haldiði ekki að þær móðursystur mínar hafi skrifað í bloggið. Mikið var þetta nú skemmtilegt. Vildi svo sannarlega vera komin í rigninguna, með saumana og mæta í messu með þeim. Efa það ekki að það verði skemmtilegt. En sem fyrr segir verð ég að láta mér nægja sólina í stað selskapar. Það styttist samt óðum í komu presshjónanna og þá verður nú fjör. Margrét farin að hlakka mikið til. En Klaus mest! Í alvöru--hann hefur ekkert á móti að þau komi, og pabbi þarf ekki að óttast að hann sé að trufla hann. Enda væri þá sko alveg í lagi að trufla hann og hrista svolítið upp í honum :) ( sný ég brosköllunum rétt?)
Og elsku bissi systir Affí tók sér smá tíma við tölvuna líka. Gaktu nú ekki fram af þér. Þú þarft að endast í mörg ár enn:):):) Gangi ykkur nú öllum vel við ykkar störf og hafið það sem best í fríinu, og njótið vors með og án rigningar.
Hér er hið besta veður. Spáð 26 stigum í dag. Komið í 19 þegar þetta er skrifað. Þurftum ekki á fætur fyrr en 7 í morgun. Ég fer svo beint úr vinnunni til Gifhorn til læknis í skoðun út af beinþynningu. Og þegar ég kem heim fer ég til Frau Kuhle til að taka til í garðinum hennar.
Fór í nudd klukkan 6.35 í gærmorgun, og lifði af að fara svo snemma af stað.
Hef svo verið að--já, þið trúið þvi ekki- þrífa útidyrahurðina, eldhúsgluggann, felgurnar á bílnum mínum, herbergin uppi og baðið, ryksuga niðri, og skrúbba vaskinn í eldhúsinu. Er þetta ekki fjörugt líf!!!! Fór í hálftíma hjóltúr í gær. Margrét skokkaði í 20 mín í fyrradag. Klaus sefur á sófanum þegar hann kemur heim, ekki alveg komin í lag eftir svefntímann í USA.
Búin að fá pláss fyrir mig og hana Maju við hliðina á flóamarkaði þann 17.maí. Spennt að vita hvort ég losni við eitthvað. Kann nú ekkert á svona.
Vona að þau gömlu hafi það gott í höfuðborginni. Verið dugleg að hringja í þau og skipa þeim að koma í heimsókn. Þau eru svo lengi að koma sér af stað.-
Dásamlegt að eiga 4 daga í fríi framundan. Rabbarbarinn bíður eftir að ég taki hann upp. Flottur í ár. Já, hlutirnir eru aðeins öðruvísi hér en heima. Best að koma sér í sturtu.
0 sígarettur, 0 áfengi, og ----78.2 kg.!

4 comments:

Thordisa said...

Ertu búin að fá pláss fyrir þig á flóamarkaði ætlarðu að selja af þér kg hehehe... hér er rigning í dag og hundfúlt en í gær var sól og blíða. Væri til í að eiga helgina með þér. Þú hlýtur að brenna ógrynni af kaloríum á öllum þessum þrifum :-)

Anonymous said...

Já þrifin brenna vel af kaloríum, en eru kannski ekki alveg skemmtilegasta leiðin til þess.... Var að skúra eldhúsið, hér braut KÖ frekja morgunverðarskálina sína því ég var ekki nógu fljót að gefa honum meira (var að bursta tennur!!). Hvaðan skildi barnið hafa allt þetta skap, tihi. Kv. Malla

Anonymous said...

Bara að minna á mig, ég les bloggið líka!Arnhildur

Anonymous said...

Já einmitt, rabbarbari í maí! Það var einmitt eitt af því sem setti heimsmyndina úr skorðum þegar ég flutti hingað út ;-)
Sólskinskveðjur úr suðurhlutanum, Aldís.

ps Afmæliskveðjur til Arnhildar, rosalega fínar myndir....