Friday, May 16, 2008

Föstudagur.

Takk fyrir kommentin. Það er auðvitað best að gera það, sem Maddý segir. Vera jákvæð og hress, og bíða eftir jólunum. Ég veit að ég þarf að sætta mig við tilveruna hérna, en stundum bara gengur það ekki upp. Það getur vel verið að það hefði ekki gengið betur heima, en ég held samt ekki. Af þeirri ástæðu að heima hefði ég aldrei verið svona mikið ein. Maður verður bilaður af því að vera einn og hafa allt of mikinn tíma til að hugsa og hugsa. En jákvæðu hliðarnar eru auðvitað líka til. Og ég þarf að einblína á þær. --Aldís skrifar af hverju ég fari ekki til Jóns Árna! Það hefur því ekki talast út um okkar erfiðleika, hí,hí. Ég vildi láta stoppa og láta túristana sjá sem mest og geta tekið myndir, en bílstjórarnir vildu drífa ferðina af. --Þórdís segir að Margrét eigi að vera með vinkonum sínum. Um hvað vinkonur ert þú að tala? Hún á tvær í bekknum, sem eru að gera sína hluti i sumar. Önnur fer örugglega með kirkjunni eitthvert, og hin á líka aðrar vinkonur. Þar fyrir utan eru þau mjög fátæk, og ekki hægt að fara með henni í t.d. innkaupaferð. Væri grimmilegt.- Mér datt í hug að M. og KD. gætu verið í Reykjavík, ekki bara M. ein með KD í Ránargötu. En Ásta hafði ekki mikinn áhuga á að vera með henni í fyrra. En hver veit nema það hafi breyttst. Og kannski þær gætu verið hjá Didda. Það væri allt annað en að vera hér ein með okkur gömlu. Sennilega get ég ekki fengið neitt að gera á Akureyri, sem ég vildi helst. Það sem ég þyrfti að gera er að finna almennilega vinnu hérna sem gæti orðið til þess að ég gæti unnið sjálstætt og grætt peninga. En HVAÐ.--Meira seinna. Uppástungur vel þegnar.

4 comments:

Anonymous said...

Kannski eitthvað í gegnum netið frá Íslandi þess vegna?? Legg höfuðið í bleiti...

Anonymous said...

Það er svo margt sem maður þarf að velta fyrir sér í þessu lífi. Sumt sem maður getur haft áhrif á, annað síður. En eins og Maddí sagði, þá er jákvæðni og gleði góð aðferð og einnig það að byggja ekki upp of miklar væntingar um að þetta ætti nú að vera svona og hins seginn - eins og það getur þó verið andsk. erfitt á köflum. Hvað varðar sumarið þá mega þær MogKD alveg vera hjá okkur einhvern tíma, eins og þær vilja og þú líka. Ef þú ert að spá í vinnu á Íslandi þá er margt til. Það er alltaf hægt að fá vinnu þar sem málakunnátta er nauðsynleg, en það er ekki endilega alltaf vellaunuð eða stórskemmtileg vinna, t.d. þrif og slíkt. Kannski er eitthvað laust hjá Ragga? Margt hefur gerst í ferðamálum og skipulag Öskjuferða og slíks er löngu breytt frá því sem var og ekki hætta á árekstrum vegna ólíkrar sýnar á hvernig á að gera hlutina. Mér finnst líka sennilegt að eitthvað sé hægt að fá að gera á Suðurlandi og Reykjavík þannig að næsta skref er að ákveða hvort - og þá hvað og hvenær og svo spá í hvernig. En þú þarft að vera klár á hvers vegna, systir sæl, annars nær þessi aðgerð kannski ekki tilgangi sínum.
Er til að liðsinna þér með það sem þú ákveður.
Bestu kveðjur Diddi

Anonymous said...

Var að koma úr kaffi í Þórunnarstr.en Jónína er fjögurra ára í dag.Vissum að það væri "kakknavon" svo við drifum okkur.Allir hressir.Daman mín fer í frí á föstudag og hefur verið í prófum á undan hinum en allt gengið vel.Ég veit reyndar ekki í hvaða verkefni ég verð sett eftir að hún fer.Tónleikar hjá Kór Ak.kirkju í gær og gekk mara bærilega.Lilla og Einar komu að hlusta.Enn æfingar hjá Emblunum en fer að ljúka.Svo ætlum við Stína að skella okkur í Mývó og syngja Carmina Burana með Möggu Bó. og co.þann 8.júní.Kristín og fjölsk.koma um helgina í brúðkaup Ingunnar systur Sigga sem verður í Svarfaðard.Ég hlakka rosa til að sjá þau.Skrifa fljótt aftur.

Thordisa said...

Þú misskildir mig ég meinti að Margrét ætti að vera með vinkonum sínum á Íslandi eins og Ástu t.d. ég meinti að nú hefur skilið svo mikið á milli hennar og Kristínar og ég get ekki ímyndað mér að hún nenni að dragnast með hana í allt sumar. Þær Ásta ná örugglega vel saman aftur alveg viss um það. En þær eru bara unglingar og vilja fá að vera með jafnöldrum sínum skiljú... :-)