Þá er dóttirin hin yngri komin heim eftir dvöl í Helmstedt. Hún var mjög ánægð með ferðina. Þemað var siðfræði. Þau unnu ýmis verkefni í sambandi við það. Um óskir og væntingar, hvað skiftir mig mestu, um mat á sjálfum sér og öðrum, og hitt og þetta. Mest spennandi var að vera með bundið fyrir augun, í langri halirófu, og leiddi kennarinn þau upp og niður stiga, út og inn. Verra var að ganga niður stiga en upp! Margrét var með 5 stelpum í herbergi, og var heppin með hópinn. Við hliðina voru 4 úr bekknum, sem voru með stráka inni til hálf þrjú um nóttina, en "góðu" stelpurnar voru komnar upp í rúm klukkan 11, og duttu út af. Margrét kannaðist við sig þegar þau óku að klaustrinu, þar sem þau bjuggu, og fékk svo kort af bænum. Labbaði með Mariu að leiði ömmu sinnar. Það finnst henni tilheyra þegar hún er í borginni hennar. Maturinn alveg í lagi, og allt liðið hresst. Svo er bara að mæta í annan tíma á morgun, og frí klukkan 12, og á fö. þarf hún bara að vera í skólanum frá 3-5, kynning fyrir foreldra.
Svo var píanótími áðan klukkan 6. Ósköp er þetta góð vika.
Takk fyrir skrifin. Takk Aldís mín fyrir að vilja hitta okkur í júní. Það er spurning um stopp fram eftir degi á mánudaginn. Vinur pabba var að tala um að við gætum farið á mánudagsmorguninn, en við getum stoppað í bænum (ekki með mikinn farangur) og hitt ykkur Hjört--ef vinnan leyfir. Við ath. það þegar búið er að plana þetta af þýskri nákvæmni.
Já, Þorgerður mín. Það er stutt til næstu landa, en einhvern veginn virðumst við vera blönk, og lifa um efni fram. það er eina ástæðan fyrir því að við ferðumst ekki. En það er auðvitað satt að miðað við ykkur er þetta ekki dýrt. Og ég bara verð að fara að lifa eins og þýsk húsmóðir, með bókhald í lagi, og bara vissan pening í mat, föt og svo framvegis. Þetta er allt í rugli hjá okkur, og ætti að vera hægt að gera betur. Vantar Affí til að skammta hundraðkallana eins og forðum. :) :) :) Það er sko margt hægt að læra af Affí!
Hildur--veit ekki hvort það sé komið bréf. Þarf að spyrja Klaus. Er alveg út úr e-mail eftir að gamla tölvan var tekin af. Gaman að þú meldir þig. Takk!
Þórdís--fer ekki að koma mynd af herberginu hennar Guðnýjar á bloggið? Gangi þér vel að vinna umsóknina, og vona að þú komist inn.
Var að frétta að Þuríður Anna komist til Ítalíu sem skiftinemi. Til lukku með það. Margrét er alvarlega að spá í að fara sem skiftinemi til----DANMERKUR---. SMILE! Hún er nefnilega að spá í að það sé ömögulegt að kunna ekki dönsku, og þar sem hún er sérlega praktísk að upplagi, er þetta möguleiki til þess. Ég er alsaklaus--hef ekki sagt henni að fara þangað (bara bent henni á það undanfarin 15 ár að Skandínavía sé besti staður í heimi, hí,hí)
Fór til augnlæknis. Hún fékk sko annað út en kallinn í Gifhorn, og nú þarf ég sem fyrst til hans til að láta laga gleraugun. Líklega fer ég til BS á morgun því úrið mitt er löngu komið úr viðgerð. Og Margrét komin með BS- þrá. Líklega tekst nú ekki að kaupa afmælisgjöf handa Ástu í þessari ferð frekar en vanalega, --engar óskir! Það er greinlegt að unglingar heima eru sáttir og saddir.
Hvernig er þetta með hana eldri dóttur mína? Engin skemmtileg skot á mömmu gömlu! :)
Jæja. Sofið rótt. Saknaðarkveðjur úr hlýjunni í íslensku hlýjuna!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Ásta er búin að finna helling í H&M bæklingnum hún er bara búin að vera á kafi í prófum og ekki haft tíma til að hugsa um neitt. En það er að klárast ætla að vera í bandi við þig og láta þig vita. Búin að gera umsóknina nú þarf ég að skila henni inn og það besta.
HæHæ... ég var sennilega komin með vinnu handa þér en búin að láta vita að þú ætlir ekki að koma í sumar :S
Bið að heilsa Margréti og Klaus
Ísland er komið inn í aðalkeppnina í Evróvisjón...loksins eftir öll þessi ár!!Það finnst mér nú vera svaka merkilegt, við litlu þjóðirnar þurfum að berjast um sæti í þessari keppni-ekki allir sem komast alltaf inn eins og Deutschland...reyndar þarf Þýskaland að borga helling fyrir hverja keppni þar sem við litlu þjóðirnar erum svo blankar, þannig að þetta er bara allt hið besta mál. Held að það verði all svakaleg partý um allt Ísland annað kvöld. Margrét, ég treysti á þig að horfa á keppnina og kjósa Ísland...he he! ykkar Arnhildur
P.S. Hvernig mömmu tókst að koma því inn í undirmeðvitund systur minnar að fara til Danaveldis er spurning!!Ég held því samt fram að hún hafi staðið yfir rúmi Margrétar þegar hún svaf og hvíslað Danmörk,Danmörk,best í heimi...!!
hahaha...
Post a Comment