Miðvikudagsmorgunn, og þetta verður nú fínn dagur því hún Arnhildur mín skrifaði í bloggið! Mikið er gott að fá lífsmark frá henni. Konan komin á sýklalyf, og vonandi fer þessum veikindum að linna. Hún vill fá að vita af hverju ég hafi stytt "about me", hvort mig vanti pláss!! En það er bara þannig að mér finnst ég svo aum og ómerkileg að ekki sé hægt að hafa langan pistil um mig! (sniff, sniff) :) Nei, ég hef sko nóg pláss til að skrifa. Sakna bara að heyra ekki neitt frá Affí, sem er örugglega á kafi í vinnu. Eins gott að ég get bráðum stjanað við hana.
Hér er sama blíðan. Spáð frábæru veðri um helgina, allt að 27 stiga hita. Keypti fyrsta kjötið til að grilla í gær. Og bjórinn með sítrónugosinu auðvitað kominn í ísskápinn. Var að eitra fyrir illgresinu við gangstéttina í gær. Það er stranglega bannað, en ég braut nú lögin þar sem ég kemst ekki yfir alla þessa vinnu. Svo er búið að sáldra eitri fyrir maurana um allt. En eitraði ekki sængina hans Klaus eins og Diddi hélt. :) Tók skúrinn í gegn, en nennti ekki í þvottinn. Við Margrét hjóluðum til Ohof í gær. 20 mín ferð. Meðan hún var að spila hjólaði ég um, og alls var ég í rúmlega hálfan annan tíma að hjóla. Var komin með verki í hnéð, og fann vel fyrir fingrunum. Þessi gigt. Svo féll ég fyrir brauði og salatafgöngum, og stóð mig ekki í þessu.
Þar af leiðandi er staðan 0 sígarettur, 0 áfengi og því miður 78.6.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
300 gr. eru nú bara ? um hvort maður gerði nr.1 eða nr.2 fyrir/eftir vigtunina!! Áfram svona...
Var líka búin að spá í þetta sama og Arnhildur, þ.e. af hverju þú styttir upplýsingarnar um þig, fannst hitt svo ljómandi fínt!
Ekki byrja of skarpt þá gefstu upp líka bara labba rösklega og hreyfar hendur með það er fín hreyfing. Gera svo magaæfingar heima á hverjum degi og hætta að éta kökur og sætindi það svínvirkar hehe
Þetta er allt á réttri leið hjá þér með vigtina, mundu að góðir hlutir gerast hægt ;) Kv. Malla
Mikið vona ég að veðurspáin hangi eftir hjá ykkur, aldielis gott að fá svolítinn hita í kroppinn og komast í alvöru sumarskap. Heyrist þið alveg klár með grillið, kalt öl, sumarblómin...já og alla aðdáendur þeirra/boðflennur!
Hafið það gott.
Bestu kveðjur,
Svanhildur
Sitjum hér gömlu móðurs.í Láka tölvu, úti er kalt og rigning.Við ætlum nú samt að fara í sveitina á morgun við étum þá bara alla helgina-ekkert megrunarkjaftæði hjá okkur.Við erum nú svo fínar og sætar að það getur nú ekki batnað.Við tökum bara góða skapið og saumana með og svo er nóg til af komfekti í Garði,best að klára það fyrir sumarið áður en "Glúntrasystur" koma.Og svo messar Örnólfur örugglega og við mætum að sjálfsögðu þar.
Iss ég er handviss um að glúntrasystur ná að þefa upp fullt af góðgæti í sumar í Garði, þó ekkert verði konfektið ;) Brúnkaka, hjónabandssæla, saumar, drullubú hver þarf meira en það?? Kveðja Malla
sorrí sorrí sorrí hvað ég hef lítið skrifað, er að vinna fram á kvöld að keppast við að ljúka öllu fyrir laugardaginn, en þá ætla ég að reyna að fara til Rvíkur og hjálpa VÖ að ganga frá dóti og flytja. Ef ég næ ekki að klára allt verð ég að seinka suðurferð, en síðan er bara SUMARFRÍÍÍÍÍ
KV affí
Já við glúntrusystur þefum nú ýmislegt uppi þó ekki verði konfektið!! Á mynd af mér með vínarbrauðið hennar Lillu í boxi...
Guð hvað ég hlakka til að komast í sveitina!!
Post a Comment