Mánudagsmorgunn, klukkan orðin 8, en ætti að vera 7. Klukkunni var breytt í gær, og nú eru aftur tveir tímar á milli okkar. Ergilegt. Við kviðum fyrir breytingunni, og háttuðum snemma bæði á fö. og laug. og áttum því létt með að sofna í gær. Ég var vöknuð kl 7 á laugardaginn og 8 í gær. Ætli íslendingunum finnist það ekki horror?
Við erum bara hress eftir páskafríið, sem er jú heldur betur lengra en það er heima. Svo vann ég bara einn dag, því ég þurfti til sérfræðings á fö.morgun. Hann komst að því að ég væri líka með slitgigt í bakinu!!! Heppin sú gamla. Nú fer ég í ein 6 skifti í sjúkraþjálfun og á að læra æfingar, sem ég á að gera daglega. Verður nú gaman að koma því inn í rútínuna, hmm hmm.
Þurfti að bíða í næstum tvo tíma, en gat farið í bæinn, sem er alveg rétt hjá stofunni. Fékk mér meira að segja kaffi, og keypti mér stutterma hettubol hjá H&M. Svo fór ég í verslun, sem ég fer sjaldan í og fann danskar vörur, mér til mikillar gleði. (Rauðkál, asíur, lifrarkæfu.) Margrét var í leikfimi, og kom pirruð heim. Hennar hópur á að gera einhverjar æfingar, sem þær eiga að velja sjálfar og ekki gátu þær komið sér saman um hvað. Típískt stelpur.
Hún var mest hjá Doreen á laugardaginn. Var máluð í framan og klæddi sig í kjóla og svo voru teknar myndir, fjör. Við gömlu fórum upp á loftið, og spösluðum í allar rifurnar í kuldagjóstrinum. Svo fór veðrið skánandi, og í gær var æðislegt úti. Ekki á það samt að standa lengi.--
Eftir dágóða tiltekt í eldhúsinu í gærmorgun, var stefnan tekin út í garð. Dundaði mér við að útbúa stétt framan við grindina með lífræna úrganginum. Setti kantsteina við hliðina á henni og útbjó tvö beð. Eitt utan um rabbarbarann, og í hitt koma kryddjurtir í vor. Allir voru úti og krakkarnir á fullu. Sonja litla kynntist loks Lukas, sem er bara ári yngri, og þau tvö voru á sparkbílum og hjólum allan daginn. Spjallaði smá við Maju, nýju nágrannakonuna. Hún vill endilega geyma fyrir okkur vetrardekkin, og hefur voða miklar áhyggjur af því að þau séu ekki enn búin að laga til í skúrnum svo þau komist inn! Reglulega indæl. Held við séum bara heppin.
Við hjón fórum í klukkutíma gönguferð á laug., og í gær færði ég Frau Kuhle þrekhjólið okkar, sem er búið að standa undir stiganum í hálft ár. Hún á endilega að hreyfa sig meira. Hún á sko ekki til krónu til að kaupa sér hjól. Sonur hennar, sem býr í Köln, er gjörsamlega auralaus. Barnaði konu, sem er alveg vitlaust í hann, og hélt að hún gæti haldið honum með barni. Hversu vitlausar geta sumar konur verið? Fullyrti að hún væri á pillunni. Svo nú þarf hann að borga með barninu, með konunni í 3 ár, og svo með syninum, sem hann á með fyrri konunni. Hann er því að koma til mömmu sinnar, tekur sumarfriið í april, og lifir á henni því hann á ekki fyrir matnum ofan í sig. Það fyrir utan borgar hún líka leyguna á íbúðini! Þvílíkur gaur.----- Frau Kuhle er heilsulítil, en vinnur fulla vinnu og auk þess flesta eftirmiðdaga sem sérkennari fyrir erfið börn. Ætti hún ekki þessi vesælu börn sín, gæti hún unnið hálfa vinnu, en einhver verður að halda uppi liðinu, eða---. Eru börnin kannski nógu gömul til að sjá um sig sjálf, öll eldri en þrítug? Maddý sá eini sinni konu í bollanum mínum, sem var á kafi í djúpum skít--það er án efa hún Frau Kuhle. Min besta vinkona hér. Þessi sonur var í heimavistarskóla til að hann fengi sem besta menntun, -það er sko ekki ókeypis, byrjaði á tveimur fögum í háskóla, gafst upp, og endaði sem starfsmaður hjá tryggingarstofnun, með lélegt kaup. Það er ekki eins og honum hafi ekki verið hjálpað. Öðru nær.
Svo maður sér oft hversu litlar áhyggjur maður hefur sjálfur.
Nóg komið i bili. Best að hella sér í tiltektina. Tók svefnherbergið í nefið á fimmtudaginn. Dýnurnar úr, rúmið frá veggnum, kongulóarvefirnir upp á sitt besta, úff, og farið með rykkústinn þrisvar ofan á skápana, og svo framvegis. Já, áfram með smjörið!!!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Sæl. Allt á skriði hjá þér eins og venjulega. Hér er allt gott. FAF lenti þó í því að það leið yfir hann í skólanum, sennilega af því hann var að horfa á myndband m.a. með fóstureyðingum. Var með hann í rannsóknum í morgun og allt eðlilegt. Þannig við erum ekkert stressuð yfir þessu. Ertu búin að skoða þetta með skype-forritið systir. Enginn sem ég kannast við hefur heyrt að notkun þess auki líkur á vírusum.
Kv. Diddi
Fínar myndir af ykkur :o) ég er voða glöð að þurfa ekki að breyta tímanum hér hehe ruglandi að þurfa að færa þetta til tvisvar á ári :þ
Ég var hjá lækni áðan að greinast með vefjagigt, ekki skemmtileg greining en hins vegar gott að vita af hverju ég er alltaf svona léleg í skrokknum!!!
Bið að heilsa Klaus og Margréti
kv
Kristín E.
Post a Comment