Monday, March 17, 2008

Rok og kuldi

Mánudagur, klukkan að verða 4. Úti er hið versta veður. Við erum voða leið eftir að hafa fengið þetta fína veður á laugardaginn. Maður bara hélt að vorið væri mætt til að dvelja. En það er víst enn bara marsmánuður. Í gær rigndi mest allan daginn. Vorum því að dútla við innistörfin. Tiltektina á háaloftinu, og sitt hvað á tölvu. Margrét las eitthvað fyrir skólann, og Klaus var að ath. með Dell tölvu, sem þau feðgin ætla að kaupa. Ég henti enn drasli af loftinu, og ruttaði til svo hægt væri að ganga um. Byrjuðum svo í morgun. En ekki mikill kraftur í rafmagnsskrúfjárninu, og það fór fjótt í hleðslu. (náttúrlega er slíkt ekki hlaðið deginum áður, hí,hí) En við urðum líka að gera hlé því það kom maður og setti nýjan tank við miðstöðina. Eitthvað, sem stillir vatnið milli ofna og heita vatnsins. (270 evrur þar. )Maja, nýja nágrannakonan við hliðina, (eða heitir það ekki "á hliðinni" í okkar famelíu!) var úti í garði, og við náðum að spjalla smá. Hún var etthvað í vandræðum með miðstöðna. Klaus fór til hennar, og var grunsamlega lengi einn með henni á háloftinu þar! Vissum þá ekki að kallinn myndi koma. Maja spurði eftir símanúmerinu hjá miðstöðvarfyrirtækinu, og ég spurði svo kallinn hvort hann gæti ekki litið til hennar, sem hann og gerði. Hún er mjög indæl. Bauðst t.d. til að geyma dekkin okkar í bílskúrnum þegar hún væri búin að taka til í honum. Það er í fyrsta sinn, sem nokkur býður okkur slíkt. En við geymum þau sjálfsagt áfram hjá vekstæðinu, sem skiftir um fyrir okkur. Samt fallega boðið.
Það er ekki beint besta veðrið til að vinna uppi á loftinu. Ískalt og af og til beljar regn á gluggann. Margrét og Maria létu veðrið ekki hindra sig í að fara til Hannover að þvælast. Pabbi Mariu ók þeim á lestarstöðina, og ég sæki þær svo á eftir.
Frau Kühle kemur heim á eftir. Ég er búin að gefa kettinum í 4 sólarhringa. Hann fær þrisvar á dag, og er alltaf búinn með allt þegar ég kem. Í morgun vaknaði ég upp úr hálf 7, og dreif mig að gefa honum, kom við í bakaríinu, og lagði mig svo aftur í bælið.
Fegin að heyra að Diddi og hans lið komst norður. Vona að skvísurnar komist líka án vandræða.
Og nú eru pabbi og mamma búin að bóka flug til okkar í júní. Koma 6.6., og fljúga heim 2,júlí ,minnir mig. Við hlökkum til að fá gesti, og það verður örugglega notalegt eins og alltaf.
Allt í einu skín sólin. Skyldi hún ætla að gleðja okkur?

6 comments:

Thordisa said...

Hér er bara búið að vera vorveður eftir ansi langan og leiðinlega vetur vona bara að þetta sé komið til að vera! Söknum ykkar hafið það sem best kv Þórdís

Anonymous said...

Frábært veður í fjallinu, engin Þýskalandsrigning og kuldi þar. Vorum komin uppeftir fyrir kl. 10 og vorum vel framyfir 3 í frábæru veðri og færi. Það eina sem ekki er frábært er úthaldið í löppunum á mér, en lærin orguðu ef ég fór í einni bunu úr Strýtu og alla leið niður. Var stundum að hugsa um það þegar lappirnar voru orðnar ansi stífar lengst niðri í brekku að öskra "timber" og láta mig detta. En þetta var gaman. Maddí og Þorgerðardætur+Þuríður voru þarna líka. Svo verður farið aftur á morgun.
Bestu kveðjur.
Diddi

Anonymous said...

Vorveður hér í dag og ég bara að vinna í 22 tíma :S en vinn svo ekki meira fyrr en eftir páska :D
Skilst reyndar að það eigi að fara að snjóa aftur á miðvikudag... enda bara mars.
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Ég er búin að vera hræðilega slöpp, fór til doktors í dag og er með FLENSUNA!!! Kemur í ljós hvernig fer með norðurferð hjá okkur.... ekki gaman get ég sagt þér..... Kv. Malla lasna

Anonymous said...

Allir hressir í Steinahlíðinni,Þorgerður og börn hér síðan á föstud.Þau fóru í fjallið í gær en við Dagur heima(hefur verið veikur)En ég í fríi í dag svo við fórum í dag(Þorg.heima með DE)hittum Didda og co og Didda tókst að koma mér í fjögurra sæta lyftuna Fjarkann og er ég lifandi! Er að vinna á morgun vistunin er opin og kemur Dagur til mín þegar þau fara í fjallið.Kristín og co ætla að koma á miðvd. Gilli á fimmtud.Malla er með flensu svo það verður bara að koma í ljós hvernig það verður.Það hefur ekki verið tekið til í dag þó ég hafi verið í fríi-hvernig ætli þetta endi.Kveðjur frá öllum.Magga móða.

Anonymous said...

Skil þetta ekki alveg með Möggu móðu, mér hefur fundist hún svo slank og flott en þarf svo allt í einu fjögur sæti í liftunni fyrir sig??? Sjálfsmyndin eitthvað beigluð þessa dagana, nema hún hafi komist í viskíið hans Einars og þetta sé hreinn egóismi; að taka upp fjögur sæti til að hafa það huggulegt...
Kv affí