Sunnudagur klukkan fimm. Er miklu betri í bakinu. Hef tekið því rólega í dag. Bara verið að taka til í skúffum og skápum. Allt unnið ofan við mitti til að þurfa ekki að beygja sig. Margrét og Klaus sjá um tiltekt í eldhúsinu. Margrét bakaði Harry Potter brownies, allt tilbúið í pakka. Kvöldmaturinn í gær voru nautarúllur úr frysti. Og rúndstykkin voru bæði í morgunmat og hádegismat.
Þetta versnar enn með komu Affíar. Nú ætlar hún að koma tvisvar! Ég veit ekki hvar þetta endar. En líklega veit hún að ég er himinsæl með það og vona að hún komi sem oftast og verði sem lengst. Allt í besta með 11.júlí. Svo var ég að stinga upp á því við Kristínu að nota frímiðana í flug til Berlinar, og koma til mín. Hún er eittthvað að hugsa málið. Hér er voða þröngt,en meðan allir eru hressir og til í að hliðra til, er allt hægt. Hér í nágrenninu er þessi fíni garður, sem er auðvitað ekki eins glæsilegur og Heide Park, en miklu betri á annan hátt. Þar eru fín tæki fyrir krakka. Þó það séu ekki rosalega mörg tæki. Og mikið af trjám vex þarna, sem veita hlífð gegn sólinni. Bara korters akstur, sem er það besta. Ásta, Aldís, Kristín Dögg, Margrét og Arnhildur eru búnar að skemmta sér vel þarna. Þið eruð auðvitað öll alltaf velkomin.-------
Það eina er að koma ekki allir í einu. Mér skilst að pabbi og mamma komi í lok maí. Líklega í mánuð. Svo Affí 11.júlí, og aftur 14.-18. júlí. Þá myndum við Margrét líklega fara 18. eða 19. til Lanzarote, ef við fáum flug og herbergi. Spurning hvort það yrði í viku, eða eina og hálfa ef hægt er.
Svovill Margrét fara til Íslands, sem er alveg óvíst. Allt jú spurning um peninga. En ég verð sennilega hér í ágúst, og kannski frá 25., 26. júlí. (eftir því hversu lengi við verðum í fríinu)
Þetta smellpassar Affí mín. Og við viljum fá sem flesta.
Klaus liggur í baði. Hér var hringt á bjöllunni á meðan. Nýju nágrannarnir, sem fluttu í hús Söndru, komu til að segja halló. Eru að heilsa uppá alla í nágrenninu. Þau settust niður í smá stund, og spjölluðu.
Ekki hefur verið mikið um sólskin í dag. En ágætt veður.
Og svo er það með skíta-staðalinn. Við Margrét vorum að horfa á þátt með henni Tine okkar, sem tekur hús í gegn. Hún tók fyrir hús, sem var gjörsamlega fullt af rusli. Stundum hefur verið sýnt hvað fólk, svokallað messí, safnar. Þetta fólk getur bókstaflega ekki hent neinu. Þetta er viðurkenndur sjúkdómur. En í þessu tilfelli var líka ruslinu safnað. Þetta var ótrúlegt. Malla--við hefðum gubbað! Affí hefði ekki einu sinni getað þrifið þetta fyrr en eftir að meindýraeyðarinn hefði tekið upp eitrið sitt. Poki eftir poka með matarleyfum, opnum dósum, fatnaði, fernum,-- baðkerið fullt, stólarnir horfnir undir rusl. Mér finnst við vera til fyrirmyndar!
Draslið okkar er þó allavega hreint.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Gott að nágrannarnir nýju virðast vera félagsverur og hafa frumkvæði að hitta þá sem fyrir eru. Jákvætt og vonandi verða þau góðir kunningjar ykkar. Og svo þetta með ruslið. Segir það ekki mikla sögu ef meira að segja ruslið er hreint??? Er þá raunveruleg ástæða til að eyða svona miklum tíma í að eltast við það? Bara svona spyr. En líst vel á ef þið mæðgur stefnið á Kanarí til Þórdísar.
Kv. Diddi
ojojoj ég get ekki horft á svona allt í drasli þætti... eina sem þeir gera er að sýna mér að draslið hjá mér sé ekki það versta hehehe það er verra hjá öðrum :D
Isss.. ruslið hennar áslaugar er örugglega grútskítugt því það er eins með skítamaurana hennar eins og pensilínið, ef það er tekið of oft myndast ónæmi ( held það sé rétta orðið-kristin?Þorgerður?) Guð! Hvaða pestabæli er ég eiginlega að fara í??....og áslaug mín, við færum í allra síðasta lagi frá þér snemma morgunin 18,og getum auðveldlega farið seinnipart 17 ef það hentar sólarferðaplönum þínum, ekki hika við að fara kona!
Kv affí
Bæ the vei, bloggið mitt er niðri, veit ekki hvað er bilað en elli minn ætlar að reyna að finna tíma í að skoða það ( og tölvuna hans pabba, og tölvuna hans Jóns í HA og tölvuna hans.......) Þangað til er bara að kommentera hjá öðrum
Kv affí
Mikið er gaman að kíkja hérna inn hjá þér og lesa um hvað þið eruð að brasa. Hér í Bæjaralandi er vorið held ég líka að koma; svoltið kalt í morgun, en fagurblár himinn og sól. Gærdeginum eyddum við út í garði, fyrst að klippa og snyrta en svo með kaffibolla og kökusneið -þetta er óneitanlega eitt af því jákvæða við að búa hérna í Þýskalandinu...Erum annars á leið til Hannover um páskana (20-25.mars) og það væri gaman ef við gætum hist yfir kaffibolla Áslaug. Hefurðu tíma heldurðu?
Bestu kveðjur úr Mering, Aldís
Æ hvað mér finnst allaf yndislegt að þú raðir mér í flokk með þér og Affí í þrifnaðarmálum, ég fyllist stolti (en veit ekki hvort ég stendur undir því..reyni þó). Ég þreif hér í gær hátt og lágt enda virkaði ekki hægri fóturinn í morgun,hann gaf sig alltaf þegar ég steig í hann. Eftir teygjur og spörk þá fór hann að virka og ég hjólaði með strákana í skólann ;) Spurning um að chilla aðeins í þrifum í bili, tihi. Kv. Malla
Einhvern veginn sé ég Möllu alveg fyrir mér hjólandi með drengina ÞÓ hægri löppinn hefði ekki virkað...Gaman að sjá komment frá Aldísi, bestu kveðjur til þín Aldís ef þú lest þetta.Bloggið mitt enn bilað, síðan komin inn en ekki hægt að skrifa neitt snuff snuff. Kv affí
Post a Comment