Friday, March 14, 2008

Ekki rætast allir draumar.

Föstudagsmorgunn. Vorum í gær að kanna með flug og gistingu. Það lítur ekki sérlega vel út, og við ætlum bara að sleppa þessu. Við erum allt of seinar í þessu. Þjóðverjar búnir að plana þetta í haust eða veit ekki hvenær. Það eru svo að segja engin sæti eftir í fluginu. Kæmumst frá Hannover, en ekki til baka þangað. Þyrfti að millilenda í Las Palmas, svo til Dusseldorf, og þá eftir að redda sér þaðan. Spáðum i að láta M. kannski fljúga heim til Íslands,beint frá L., en það væri ekki hægt nema með millilendingu í Bercelona. M.a.s. Þórdís, sem kallar nú ekki allt ömmu sína, lýst ekki á að senda ungling einan þangað. Ferð og flug fyrir okkur án útúrdúra til Íslands væri 2000 evrur, rúmlega (án ferðarinnar frá Dusseldorf). Það eru því meira en 100 þúsund á mann, og það fyrir 10 daga. Miðað við að Þórdís borgar 65 þús á mann og er í heilar 3 vikur er þetta ansi dýrt. Vil ekki ákveða svona í stress kasti, þarf að taka síðustu sætin í dag ef við ætlum að fara, og ætla bara að sleppa þessu. Við plönum þetta bara betur næst og kannski það borgi sig í alvöru að taka billegt flug heim, (300 með Express,) og fljúga svo í stórum fameliuhópi út í sólina.
Æ. þetta bara gekk ekki upp.
En við gerum bara eitthvað annað sem er skemmtilegt. Ætla núna að horfa á sápuna, og skrifa svo meira. Hafið það gott. Takk fyrir öll kommentin.

4 comments:

Anonymous said...

Æ það hefði nú verið gaman hjá ykkur að komast, en núna ertu búin að kanna málin og verður því klár í slaginn næst.

Missti af þér á msn, jú við vorum sko löngu vöknuð. Ég er að reyna að hella í mig sítrónutei til að röddin í mér verði ekki alveg svona út af kortinu eins og hún er núna í morgunsárið, ég pikkaði upp smá hálsbólgu frá honum Ástþóri Erni en er hitalaus og vonandi næ ég þessu bara úr mér með smá rólegheitum, tei og hunangi.

Góða helgi og hafið það gott.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Thordisa said...

humm ekki alveg til í að gefast upp ætla að skoða þetta aðeins nánar verð í bandi kv þórdís

Anonymous said...

Það kemur sumar eftir þetta sumar, og þá verður þú búin að taka þýsku skipulagninguna á þetta, ég er viss um það :) Kv. Malla

Anonymous said...

Fúlt, þegar hún systir mín ákveður að brjóta upp skipulagið að það skildi ekki ganga upp. En það er bara í þetta skiptið og það koma önnur skipti. Við eigum líka eftir að fara til Prag, systir sæl og örugglega margt fleira. Já það koma fleiri sumur. Sól og hæg norðanátt við Álftavatn og 10°c frost. Er á leiðina í pottinn og svo veit enginn hvað verður næst. Förum norður á morgun.
Kveðjur Diddi