Wednesday, March 12, 2008

Stormur

Miðvikudagur, og úti er hið versta veður. Hundaland eins og pabbi segir. Æ, nei. Hann meinar víst Ísland. Það fer ekkert illa um okkur Margréti í storminum. Við njótum þess að fara á fætur í seinni kantinum, lesa á kvöldin, og taka lífinu með ró. Samt erum við framtaksmiklar, enda ekki við öðru að búast. Margrét er búin að baka sína fyrstu ostaköku. (Er reyndar úr skyri. )Við vorum ekki vel góðar í þessu, því vinkona hennar, hún Maria, sem gaf henni uppskrift, lét ekki fylgja með leiðbeiningar. En kakan er hin besta, og við njótum þess að borða hana með teinu yfir sápunni góðu. Í dag var akkurat svona líka fínn þáttur, og við erum voða hamingjusamar með framvindu mála!
Í dag var bökuð skúffukaka, og ég eldaði fínan fiskrétt. Verst að fiskurinn hér er alltaf frekar þurr. Margrét reyndi að setja myndir inn á bloggið, en það tókst ekki. Reynum seinna.
Í gær var farið upp á háaloftið. Ekki þýðir mikið að ætla að klára að mála og setja gifsplötur ef ekki er hægt að ganga um. Margrét fór í gegn um leikfangakassa. Og í gegn um gamlar myndir og bréf. Það er komið dót og fatnaður í tvo kassa, sem ég ætla að reyna að selja á flóamarkaði í maí. Svo henti ég helling af blöðum, og líka dönsku kennslubókunum frá háskólatíð minni. Og hvað á maður að gera við dönsku lukkutröllin, sem eru orðin hárlítil, og fötin götótt? Eða við hana Heiðu, fínu dúkkuna, sem er illa farin. Það hefur enginn taugar til þessara hluta nema ég ein. Og maður verður víst að losna við eitthvað til að drukkna ekki í dótinu. Veit að Affí er ekki sammála mér. Hún, sem hendir engu, eða þannig!
Ég er búin að bjóða systur Klaus og eiginmanninum í mat á páskadaginn. Daniela kemur líka. Er að spá í að baka mína fyrstu frönsku súkkulaðitertu. (hlýt að geta það.) Svo ætla ég að baka þessa fínu eplaköku frá Maddý. Veit einhver hvort maður notar smjör eins og stendur í uppskriftinni, eða smjörlíki?
Við ætluðum í bæinn í dag, en hættum snarlega við. Vonandi verður betra veður á morgun. þá förum við á Möwenpick til að skrifa undir vegna starfsþjálfunar í haust. Og til að kanna þetta með flug til Lanzarote. Mér finnst skrítið að plana ferð án Arnhildar, en ég hef ekki svo óendanlega mikið af peningum. Svo er það ýmislegt, sem ég borga fyrir hana á öðrum sviðum. Takist mér að komast til sólarstrandar í sumar er leiðin greið fyrir næstu ferðum. Þá kann ég að leita að svona flugi og hóteli, og við stefnum bara á aðra ferð 2009. Þá ég og allir mínir fjölmörgu afkomendur, tengdasonurinn og Alexander. Er það ekki málið?!
Verst að mamma verður alveg óð að fá að fljúga með.
Þau gömlu eru eitthvað að spá í flugið. Vona að pabbi kaupi ekki fystu ferð, sem honum bíðst, heldur kanni verð og tilboð.
Og hún Ásta búin að ná í skottið á henni Margréti. 15 ára skvísur. Styttist í að Friðrik nái þeim svo. Fegin að frétta að Signý sé búin að eiga. Til hamingju stolta móðursystir --mín kæra mágkona!!! Er svo ekki listamaðurinn kominn heim?
Var að frétta að Ástþór væri búinn að vera svo lasinn. Vona að hann fari að ná sér. Sendi honum bestu kveðjur. Pip pip dúdelídú bless Margrét og Ádda

5 comments:

Anonymous said...

MÆ GOD!! Ekki lent á Spáni og bara byrjuð að plana ferð 2009!!Hvaða gastegundir eru eiginlega á háaloftinu hjá þér?? Um að gera að henda gömlu ótnytu drasli, dánarbúIN okkar Ella orðin víðfræg í fjölskyldunni! Góðar minningar lifa þó draslið hverfi. Kv affí

Anonymous said...

Alltaf betra að nota smjör en smjörlíki í bakstur ;) Minningar eru yndislegar og mig langar til að pikka inn smá texta úr gamalli dagbók síðan 4.jan '88. "Fór heim en ekki á gönguskíði því það var ógeðslega kalt og líka af því að Ádda var komin í heimsókn og þá eru alltaf svo góðar kökur. Það voru líka orða sönnun,það voru æðislega góðar kökur, ein brún kaka með rjóma og niðursoðnum ávöxtum." Já þessi dagbók er skemmtileg lestning, full af minniningum. KV. Malla

Anonymous said...

Tek undir með Möllu húsmóður; engin kaka nema smjörið sé með... Í gærkvöldi horfði ég meir að segja á bíómynd þar sem sagt var að leyndardóm hamingjunnar væri að finna í smjörinu -og sem íslensk kúabóndadóttir hlýt ég að taka undir það... Í smjöri, rjóma og ostum...
Kveðjur úr Bæjaralandi, Aldís Skúti

Thordisa said...

Bíð spennt eftir að heyra frá ferðaskrifstofu leiðangri. Þetta verður bara frábært og ég vona að þið getið komið í svona 10 daga.

Anonymous said...

Smjör, smjör og smjör - heilbrigð náttúruafurð en ekki einhverja hertar transfitusýrur úr smjörlíki. Nú er allt bakað upp úr smjöri hér á bæ þegar hið fornkveðna gildir, þ.d. "pabbi ertu að baka? Máttirðu það?" Sigyn ekkert sérlega glöð með systurdótturina, nennir ekki nema einu sinni á dag í Hafnarfjörðinn. Jú Gummi kominn heim, þreyttur og horaður (horaðri) en ánægður með margt frá þessum tíma. Og svo er framundan Álftavatn á morgun og svo norður í nokkra daga. Verðum líklega við Álftavatnið páskadagana.
Kveðjur Diddi