Affí systir orðin þreytt á þessari systur sinni, sem ætlaði að blogga daglega. Verð að standa mig betur. En auðvitað er hún aðalástæðan fyrir því að ég er orðin VOÐA stressuð og á kafi í skápunum því hún er jú búin að boða komu sína í júlí. Það eru að koma jól samkvæmt pabba svo þið sjáið það að ég hef ekki mikinn tíma. Það verður að skipuleggja þetta vel. Það, sem verður aftur orðið óhreint í júlí ,verður að bíða. En skápana get ég tekið í gegn. Hm, hvað var ég að þrífa bakarofninn, gufugleypinn og vaskinn í dag. Það veður að gera það aftur í júlí! Líklega verð ég að fá mér stórt blað, og gera alsherjar skipulagningu, taka hverja viku fyrir sig. Veit að Affí skilur þetta ekki því hún tekur ALLT húsið í nefið á einum degi.
En ég er líka eldri og frekar gömul orðin.
En svona í alvöru. Var að strauja í mest allan gærmorgun, og mætti svo í vinnuna nýþvegin í stuttum skokk, vetrarleðurstígvélunum mínum,og máluð. (var sko að fá mér nýjan maskara).
Eftir hádegið tók við mikill bakstur, sem stóð fram yfir kvöldmat -með hléi þegar sápan okkar var sýnd.
Bakaði holar "kúkkís", sem eru úr heilhveiti, klíð, hafragrjónum, kókos og súkkulaði. Margrét sagði að þær væru hollar á bragðið! Svo dönsku strandkökurnar, (í muffinsformum með sultu) og loks gersnúða. Var ég ekki að taka um að leggja af.??? (takk fyrir að kenna mér á ? Kristín).
Og svo horfði ég á lélega gamanmynd, og var háttuð hálf ellefu.
Í dag að þvo þvottinn. Þegar ég kom heim eftir vinnu, lá hann á jörðunni, og þvottastatífið var orðið að nútímalistaverki. Þetta er þá þriðji staurinn, sem fer í ruslasöfnunina.
Svo var allt eitthvað í stússi. Fór að versla, og ók ekki aftan á fólk, né ruddist fram fyrir það. Þurfti heldur ekki að biðja neinn að taka kerruna úr -afsakið-best að sleppa því. Sendi nokkrum mitt blíðasta bros. Talaði síðan við Didda í síma. Horfði á sápuna okkar og drakk m.a.s. tvo bolla af cappucino, þó að ég ætli að fara að fara að leggja af. Ryksugaði, þvoði haugadrullugt gólfið, og bar út safnaðarblaðið fyrir kirkjuna.
Hringdi uppá hjá nýju nágrönnunum í húsi Söndru,( til að vita hvort þau væru í söfnuðinum og ættu að fá blað) þau sögðu mér að þúa þau, og buða mér inn. Sýndu mér allt húsið, og Margrét var farin að leita að mér þar sem bíllinn var aftur komin heim á hlað. Eins og ég geti ekki líka gert það, sem mamma getur!
Margrét talaði lengi við systur sína í gær. Mína fullkomnu dásamlegu eldri dóttur, sem á ekki að vera öðruvísi en hún er, og tími til kominn að hún skilji það.
Í dag kom svar frá Möwenpick um að Margrét fái tvær vikur í starfsþjálfun í sept. Hún er alsæl. Á að vinna í "Saftbar" og Einkauf" Eigum eftir að mæta til að skrifa undir, og fá nánari fréttir.
Þessi vika er yndisleg. Einn bekkur í skíðaferð, og fullt af kennslu fellur niður. Margrét fékk frí í fyrsta tíma í gær og dag, og mætir í þriðja tíma á morgun. Klaus fer til Berlin á morgun, og fer ekki af stað fyrr en klukkan 8. Luxuslif.
Vona að allt gangi vel hjá Signýju, bestu kveðjur til hennar.
Spáð frosti í nótt. Setti svartan ruslapoka yfir hortensiuna mína og eyðilagði örugglega fleiri knúppa en frostið hefði gert! Það er svona með mistökin.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Gott að heyra frá þér aftur eftir langa bið...Alveg öruggt að þessi bloggskrif fjölskyldunnar hefur mögnuð áhrif á þig, farin að mála þig og hvað eina, svona á þetta að vera. Ég held þá ótrauð áfram að setja gáfuleg og uppbyggileg skrif mín á netið fyrst það hefur þessi góðu áhrif!!Kv affí
Til lukku með Möwenpickstarfið Margrét :o) og gott að sjá að ? komi að góðum notum :D
Hefðir þurft að smella skvísumynd af þér í leiðinni!!
Já það hefði verið flott að fá mynd af skvísunni á leið í vinnu ;) Kv. Malla
Takk fyrir símtalið í gær var gaman að heyra loksins frá þér símleiðis hef ekki verið svo dugleg við það undanfarið. Ætlið þið ekki að kíkja á Lanzarote í sumar hehe
Post a Comment