Thursday, March 6, 2008

Ætti maður bara að skella sér?

Fimmtudagskvöld, og undirrituð eitthvað lufsuleg í dag. Ekkert verið að mála sig, og farið í vinnuna í köflóttri skyrtu. (Tek mynd næst þegar ég verð dama.) Var með hausverk í morgun og kalt. En ekki ætla ég að fara að detta niður í eymd og volæði. Þetta er örugglega bara smá spennufall áður en fríið byrjar. Neita alveg að ég fari að fá flensu þó að allt í kring séu heilu fjölskyldurnar lasnar.
Ég er öll hin hressasta eftir að ég komst í þetta bloggsamband við ykkur. Það er tilhlökkunarefni að finna línu frá ykkur, og vita að við séum að pæla í sömu hlutunum. Og ekki spillir þegar hægt er að kíma yfir skrifunum. Svo og myndunum. Pabbi er verulega huggulegur á myndinni með blondínuhárkolluna!
Annars verð ég að lýsa yfir miklum vonbrigðum með Affí. Eftir að ég er búin að lýsa því á alþjóðavettvangi hvað það kosti mig mikla vinnu að fá hana í heimsókn nefnir hún ekki orði að AUÐVITAÐ muni hún taka húsið í gegn þegar hún komi! Ég átti nú von á því ef ekki bara meiru!
Svo það er best að fara að plana--ekki flana að venju--og skrifa upp röð verkefnanna. Og svo er ég alvarlega að hugsa um að fara til Kanarí til að ná mér eftir þessa törn, heilir 3 dagar með Affí sem gest.
Við Margrét vorum sko inni á síðunni, sem sýnir hótelið, sem Þórdís fer á. Við erum náttúrlega ekki millar á raðgreiðslum, og ég fékk smá sjokk að sjá verðið á herbergunum, sem eru á 80-120 evrur á dag,, án flugsins. (sennilega fyrir einn og tvo). Ekki það að ég hef akkurat ekkert vit á svona, og er jú ekki vön að gera svo mikið af því, sem mig langar til. Enda myndi ég ekki trúa því að neitt yrði úr þessu fyrr en það væri orðið að veruleika. Svo fast situr í mér hvað vonbrigðin voru mikil yfir að missa af ferðinni til Köben. En Þórdís ætlar að kanna þetta heima fyrir mig, og við sjáum til. Yrðum líklega ekki nema viku--ef ég skelli mér--hvað finnst ykkur? Er ég kannski alveg að tapa mér? Bara kæruleysið uppmálað! Og kallinn yrði skilinn eftir heima.
Það væri gaman ef Margrét og Ásta gætu orðið aftur nánari eins og áður var. Svo væri Sella örugglega fegin að fá mig til að spjalla við sig þegar turtildúfurnar fara út á kvöldin. Ég geri nú ekkert svoleiðis, maður gæti bara lent í áreitni--eins sexy og maður er nú, ekki satt.
Nei, nei. Maður færi nú með útsauminn með sér, og góðar bækur.
Alltaf gaman að láta sig dreyma.
Pabbi og mamma eru hætt við að fara í afmæli Ninu. Það er of mikið vesen að þeirra mati, og eins verður of margt fólk, sem þau þekkja ekki. Ég var búin að plana að fylgja þeim, en þarf þá ekki að fá frí í vinnunni. Þau reikna samt með að koma til okkar. Jarðarberin heilla.
Kannski maður skríði í bælið. Láti sig dreyma um sól og letilíf.
Vona að þið eigið líka góðar draumfarir.

5 comments:

Anonymous said...

Ég veit að þú hefðir gott af því að skella þér með Þórdísi og co !!! Ekki vera neitt að spökulera, bara framkvæma, svona einu sinni ;) Áfram, áfram, kv. Malla og co

Kristín E. said...

Ég held að þið mæðgur ættuð að skella ykkur í viku til Kanarí :o) alltaf gott að komast í sólina, mig langar svo mikið til útlanda í sumar, ætlum að reyna að komast í helgarferð og nota flugpunkta til að borga... erum að spara fyrir húsbyggingu :þ

Kristín E. said...

vá... við systur bara kommentum á sömu mínútunni :o)... aldeilis samtaka :D

Anonymous said...

Smá kæruleysi í staðinn fyrir útpæla þýska og danska planlagningu - væri það ekki málið systir sæl. Skella sér eitthvert óvænt eftir skyndilega hugdettu. Núna, því hver veit hvort rignir á morgun.
Hér er alt i det fine og við farin að hlakka til páskafrís sem verður fyrir norðan eða/og við Álftavatn eftir aðstæðum en þó aðallega veðri.
Hafðu það gott.
Diddi

Thordisa said...

Já bara eyða einu sinni í sjálfan sig ekki aðra og leyfa Margréti að vita að heimurinn er stærri en Þýskaland og Ísland. Ásta þráir að fá frænku sína saknar hennar.